Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 28

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 28
NAUTGRIPIR Niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar árið 2004 IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands Mynd 1. - Þátttaka 2004 Kýr, sem komu á skýrslu á ár- Þessi grein gefur á hefðbundinn hátt yfirlit um nokkrar niður- stöður sem lesa má úr skýrslu- haldi nautgriparæktarfélaganna árið 2004. Á árinu 2004 má skýrt greina framhald þróunar á síðustu ár- um til aukinnar sérhæfingar í mjólkurframleiðslunni. Fram- leiðendum fækkar með hverju ári en einingarnar í framleiðsl- unni stækka. Á sama tíma er hröð þróun til aukinna afurða eftir hvern grip. Afurðir eru því meiri en nokkru sinni éður og mörg eldri met falla. Framkvæmd skýrsluhaldsins hefur verið með óbreyttum hætti. Skýrsluhaldið byggir á mánaðarlegum skráningum á afurðum einstakra kúa, auk þess sem skráðar eru upplýsing- ar um burði kúnna og afdrif kálfa. Auk þess er skýrsluhaldið með skráningu á ætternisupp- lýsingum gripa. sem víða þyrftu skráir nokkur hluti skýrsluhald- ara einnig kjarnfóðurgjöf fyrir einstakar kýr. Á allra síðustu ár- um hefur hluti skýrsluhaldara skráð upplýsingar á rafrænu formi með aðstoð skýrsluhalds- forritsins (SKÝR og mun um fjórðungur upplýsinga skýrslu- haldsins skila sér á þann veg ár- ið 2004. Tafla 1 gefur á venjubundin hátt yfirlit um nokkrar af helstu fjölda- og meðaltalstölur, flokk- að eftir héruðum og fyrir landið í heild. Þar sést að bú í skýrslu- haldinu árið 2003 voru samtals 708 á landinu öllu og hafði þannig fækkað um 14 frá árinu áður. Því miður voru bú sem hættu framleiðslu á milli ára talsvert fleiri en þar á móti kom sú jákvæða þróun að talsverður fjöldi búa, sem ekki hafa áður verið með í skýrsluhaldi, hófu þátttöku á árinu. Flest af þeim búum voru í Skagafirði og á Austurlandi. inu 2004, voru samtals 28.731 (28.721) eða nánast sami fjöldi og árið áður en svigatalan er sambærileg tala fyrir árið 2003 eins og á öðrum stöðum sfðar í greininni þar sem svigatölur koma fram. FHeilsárskýr, sem eru þær kýr sem eru á skýrslu frá fyrsta til síðasta dags ársins, voru 14.170 og reiknaðar árskýr 20.765,2 (20.503,4) sem er fjölgun um 1,3% á milli ára. Skýringar þess að árskúnum fjölgar verulega meira en skýrslu- færðum kúm eru þær að eitt- hvað hærra hlutfall fyrsta kálfs kvígna ber fyrr á árinu en sami hópur árið áður, örlítið dregur úr förgun á kúm og nokkur bú hófu skýrsluhald síðla árs 2003. ( tveimur nautgriparæktarfélög- um, þeim sömu og undanfarin ár, voru fleiri en þúsund kýr á skýrslu árið 2004. Nf. Flruna- manna tók þar forystu, þegar önnur öldin hófst í starfi félags- ins, með 1.185 kýr samtals en í Nf. Austur-Flúnvetninga voru kýrnar samtals 1083. Þátttaka í skýrsluhaldinu er einn mælikvarði á faglegan styrk mjólkurframleiðslunnar. Einnig er upplýsingaöflun skýrsluhaldsins grunnurinn að öllu ræktunarstarfi í nautgripa- rækt í landinu. Sem mest hlut- fallsleg þátttaka í þessu starfi er því augljóst keppikefli. Mynd 1 sýnir hver staðan var í þessum efnum árið 2004 (ein- stökum héruðum. Þetta hlutfall er líkt og áður metið með því að skoða hve stór hluti greiðslu- marks í mjólkurframleiðslunni á hverju svæði er á búum þar sem er skýrsluhald. Metið á þennan hátt mælist þátttaka á árinu 2004 vera 90,0% og þarf tæp- lega að taka það fram að þetta er hlutfallslega meiri þétttaka en nokkru sinni hefur verið fyrir hendi áður. Á myndinni sést að hlutur þeirra héraða, sem að framan eru nefnd, Skagafjarðar og Austurlands, hefur breyst verulega til batnaðar, en Kjósar- sýslan er í þessum efnum orðin nokkuð ein á báti, fremur utan- veltu í þessum samanburði. Mest af þeirri mjólkurfram- leiðslu, sem utan skýrsluhaldsins er að finna, er á búum í Borgar- firðir, aðallega í Suður-Borgar- firði og síðan langmest á eystra svæðinu (Rangárvalla- og Vest- ur-Skaftafellssýslu) á Suður- landi. BÚIN STÆKKA ÁFRAM Eins og fram hefur komið í þeim tölum sem þegar hafa verið raktar er Ijóst að meðalbúið stækkaði talsvert árið 2004. Að jafnaði voru 40,6 kýr (39,8) skýrslufærðar á hverju búi árið að vera í betra horfi í dag. Þá Tafla 1. Nokkrar fjölda- og meðaltalstölur úr skýrsluhaldinu árið 2004 Búnaðarsamband Fjöldi búa Fjöldi kúa Árskýr Nyt, kg Kjarn fóður Kjalarnesþings 5 198 29,3 4.864 1.034 Borgarfjarðar 61 2.303 28,4 5.079 887 Snæfellinga 26 876 24,6 5.320 758 Dalasýslu 16 556 25,1 4.795 922 Vestfjarða 25 804 24,0 4.697 828 Strandamanna 1 38 30,3 5.083 1.102 V-Húnavatnssýslu 20 655 23,8 5.142 930 A-Húnavatnssýslu 34 1.083 30,9 5.037 952 Skagfirðinga 62 2.626 30,8 5.357 918 Eyjafjarðar 109 5.532 36,8 5.158 915 S-Þingeyinga 69 1.986 21,6 5.132 941 Austurlands 32 1.147 27,1 4.813 1.025 A-Skaftafellssýslu 12 472 29,4 5.595 1.205 V-Skaft., Rang. 113 4.642 28,3 5.422 865 Árnessýslu 123 5.813 33,3 5.415 1.059 Landið allt 709 28.731 29,3 5.229 942 24 FREYR 04 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.