Freyr - 01.04.2005, Qupperneq 18
NAUTGRIPIR
Kynbótamat
nautanna
vorið 2005
í ÞESSARl GREIN ER FJALLAÐ UM NOKKRAR
NIÐURSTÖÐUR ÚR ÚTREIKNINGUM Á
KYNBÓTAMATI NAUTANNA VORIÐ 2005.
Að þessu sinni eru felldar í eina
grein tvær af þeim hefðbundnu
greinum sem verið hafa í naut-
griparæktarblöðum síðustu ár-
ganga af Frey, annars vegar um-
fjöllun um kynbótamat naut-
anna hverju sinni og hins vegar
umfjöllun um afkvæmadóm
nautanna sem komu til dóms
að þessu sinni en það var nauta-
árgangurinn frá árinu 1998.
Ákaflega mikið af töflum,
texta og tölulegum niðurstöð-
um um nautin, sem voru í af-
kvæmaprófun að þessu sinni, er
að finna á vef Bændasamtaka
(slands www.bondi.is og er
þeim lesendum, sem áhuga
hafa á að afla sér nákvæmari
upplýsinga um þessi naut, bent
á þann upplýsingabrunn vegna
þess að þar á líklega að megi
leita svara við flestum spurning-
um sem kunnu að vakna um
þessi naut og afkvæmi þeirra.
Engar grunnbreytingar hafa
að þessu sinni verið gerðar í
sambandi við úrvinnslu niður-
staðna að baki kynbótamatinu.
Ræktunarmarkmið er óbreytt
frá fyrra ári og þar með heilda-
reinkunn nautanna. Vegna þess
að hún er grundvallaratriði fyrir
rétt mat á niðurstöðum og um-
fjöllun um þær er eðlilegt að
hún sé rifjuð upp þó að Ijóst sé
að hún sé mörgum vel þekkt.
Heildareinkunn =
0,55*Afurðamat
+0,09* Mjaltir
+0,08*Frumutala
+ 0,08*Júgur
+ 0,08*Ending
+ 0,04*Frjósemi
+ 0,04*Spenar
+ 0,04*Skap.
Umfjölluninni verður skipt í
kafla um einstaka nautahópa
og þar helst vikið af þeim hóp-
um sem mestra breytinga er að
vænta hjá vegna þess að miklar
upplýsingar hafa bæst við fyrir
dætur viðkomandi nauta, en að
síðustu verður aðeins vikið að
toppnautunum í heildaryfirliti
fyrir einstaka eiginleika. Eðlilegt
er að byrja á umfjöllun um nýju
nautin sem eru að koma úr af-
kvæmadómi vegna þess að eðli
hlutanna vegna hljóta þau ætíð
að vekja mesta forvitni. Einstak-
ar einkunnir nautanna koma
fram ( töflu með greininni. Þar
er að finna niðurstöður fyrir öll
nautin úr afkvæmarannsókn-
inni, auk allra helstu nauta sem
komið hafa til frekari notkunar
að lokinni afkvæmarannsókn
og eiga enn góðan hóp dætra í
framleiðslu.
NAUTAÁRGANGURINN 1998.
YFIRLIT OG UPPRUNI
Nautaárgangurinn á Nautastöð
Bf frá árinu 1998 er miklu stærri
en nokkru sinni hefur þar verið
og taldi hann samtals 29 naut.
Langflest þessara nauta voru
synir nautsfeðranna sem voru í
mestri notkun á þessum tíma,
þeirra Almars 90019, Tudda
90023 og Stúfs 90035.
Afkvæmadómur nautanna er
byggður á hliðstæðum upplýs-
ingum og áður. Eftir breytingar,
sem gerðar voru fyrir örfáum ár-
um á skoðun á kúm i landinu, er
kominn mjög góður grunnur
upplýsinga fyrir þá eiginleika
sem fást við skoðun dætra
nautanna. Undan nær öllum
þessum nautum höfðu verið
skoðaðar 50-100 dætur. Upp-
lýsingagrunnur fyrir þá eigin-
leika sem koma úr skýrsluhaldi
nautgriparæktarinnar er hins
vegar eins og ætíð verulega
breytilegur. Yngri nautin í ár-
ganginum hafa ekki enn fengið
afurðaupplýsingar nema fyrir
hluta dætra sinna á sama tíma
Umbi 98036
„Dætur hans eru
glæsilegar kýr,
ágætlega
mjólkurlagnar með
mjög hátt fituhlutfall
í mjólk, mat fyrir
júgurhreysti er mjög
gott og sömuleiðis er
dómur bæði um
mjaltir og skap
verulega jákvæður."
og flestar dætur eldri nautanna
hafa þegar lokið sínu fyrsta
mjólkurskeiði og jafnvel ein-
hverjar tveimur undan elstu
nautunum. Þetta leiðir til að
þessar fyrstu upplýsingar, sem
birtar eru fyrir þessi naut, eru
verulega breytilegar að öryggi
og nauðsynlegt að hafa það í
huga þegar niðurstöður eru
skoðaðar og metnar.
Þegar reynt er að meta heild-
arniðurstöður fyrir hópinn er
rétt að benda á eftirfarandi at-
riði. Fyrir afkastagetu er dómur
þessara nauta fremur góður.
Þarna vantar að vísu nær alveg
afgerandi toppeinstaklinga
hliðstæða þeim sem skarað
hafa fram úr í síðustu árgöng-
um. Nautin eru jöfn að þessu
leyti og fá verulega slök. Sér-
staða þeirra er hins vegar nokk-
ur gagnvart efnainnihaldi
mjólkur. Próteinhlutfall er hjá
stórum hluta þeirra í meðallagi
eða þaðan af betra. Fyrir fitu-
hlutfall þá koma hins vegar
fram ótrúlega mikil frávik til
hækkunar á fituhlutfalli. Þar
gætir að sjálfsögu langmest
áhrifa frá sonum Almars 90019
þó að heildarniðurstaðan fyrir
hópinn sýni ótrúlega mikið frá-
vik fyrir þennan eiginleika. Fyrir
frumutölu eru niðurstöður
ákaflega breytilegar eins og
taflan sýnir en þar eru í hópn-
um firnasterkir einstaklingar.
Mörg af þessum nautum eru að
gefa mjög góða júgurgerð hjá
dætrum sínum. Langmestum
vonbrigðum veldur slakur dóm-
ur hjá þessum nautum um
mjaltir dætra þeirra. Þetta þarf
að vísu ekki að öllu leyti að
koma að óvart f Ijósi þess að
nautsfeðurnir að baki árgangin-
um féllu talsvert í mati fyrir
þennan eiginleika þegar stóru
dætrahóparnir komu undan
þeim. Mat um skap er ákaflega
breytilegt en heildarmyndin já-
kvæð. Mat hjá nautunum í ár-
ganginum um endingu dætra
þeirra er heldur undir meðaltali.
Heildareinkunn þeirra er því all-
góð eins og taflan sýnir og að-
eins sex nautanna undir 100 í
heildareinkunn og aðeins tvö
með verulega slakan heildar-
dóm.
Heildarniðurstöður úr dómi
nautanna var sá að 12 þeirra
voru ekki talin áhugaverð til
frekari notkunar. Þau naut sem
þannig féllu á prófinu, voru
þessi: Viður 98002, Gambri
98004, Vagn 98007, Þór
98010, Rokkur 98011, Gísl
98013, Vogur 98025, Lóuþræll
98028, Leggur 98032, Gróði
98037, Kjói 98038 og Boði
98045. Hin 17 fengu notkunar-
dóm og var ákveðið að velja 10
af þessum nautum til dreifingar
frá Nautastöðinni á þessu ári og
eru það eftirtalin naut: Meitill
98008, Barði 98016, Sóli
98017, Trölli 98023, Glanni
98026, Fontur 98027, Sveppur
98035, Umbi 98036, Hræsingur
98046 og Þrasi 98052. Hér á
eftir verður aðeins vikið að
helstu kostum og göllum ein-
stakra nauta úr þessum hópi. Af
þessum nautum þá eru valin til
notkunar sem nautsfeður Font-
ur, Sveppur og Umbi.
14
FREYR 04 2005