Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 20

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 20
NAUTGRIPIR um júgur og spena og eru í góðu meðallagi um mat á mjölt- um og skapi. Yfirburðir Stígs 97010 aukast enn og hækkar hann talsvert í mati, með 125 í heildareinkunn, og sýnir í þeim efnum ótrúlega yfirburði um- fram öll önnur kynbótanaut í landinu. Af öðrum nautsfeðrum í þessum hópi er ástæða til að benda á það að Hersir 97033 styrkir mat sitt og er með 116 í heildareinkunn og styrkir hann mat sitt fyrir mjög marga eigin- leika og er tvímælalaust mjög athyglisverður valkostur í rækt- unarstarfinu. Kóri 97023 lækkar smávegis í mati og var í Ijósi þess ákveðið að taka hann úr al- mennri sæðisdreifingu, en Stall- ur 97025, sem er eini sonur Hvanna 89022 sem er í notkun, hækkar um stig í heildardómi. Þegar á allt er litið þá stendur þessi árgangur nauta sem sá langsterkasti sem hefur komið fram I ræktunarstarfinu. NAUTIN FRÁ 1996 OG 1995 Þessi naut eru sá hópur sem nú er í vissri biðstöðu, um þau voru þegar komnar traustar upplýs- ingar varðandi dætur, sem fram komu við afkvæmarannsókn nautanna, þannig að engar stórar sviptingar verða ( ein- kunnum þessara nauta. Á þessu og næsta ári koma síðan feiki- lega stórir dætrahópar undan þeim nautum úr þessum hópi sem fengu mikla framhald- snotkun og í Ijósi þess dóms, sem þá fæst, kann mat á ein- hverjum þeirra að breytast. Nautin frá 1996 styrkja mat sitt frekar og stendur Fróði 96028 nú með hæst heildarmat þessara nauta eða 117 í heilda- reinkunn og hefur hækkað um tvö stig frá fyrra ári. Þess má geta að við endurskoðun á dætrum nautsfeðra (þessum ár- gangi á árinu 2004 styrktu þau sína mynd mjög. Hjá nautunum frá 1995 koma fram sáralitlar breytingar eins og vænta má og þar standa þeir Túni 95024 og Soldán 95010 áfram á toppnum en lækka báðir um eitt stig í heildarmati. ELDRI NAUT Nautin sem fædd eru 1994 hafa nú f nokkur ár verið ákveðinn burðarás í ræktunar- starfinu þar til 1997 nautin tóku við á síðasta ári. Núna eru ákaflega stórir dætrahópar að koma í framleiðsluna undan mörgum af þessum nautum og við það breytist fyrri mynd sumra þeirra sem kynbótagripa talsvert þó að áfram standi óbreytt sú heildarmynd að hópurinn sé öflugur. Flestar dætur eiga þeir nú- orðið Kaðall 94017 og Völs- ungur 94006 og breytingarnar sem fram koma hjá þeim báð- um eru hliðstæðar. Báðir lækka þeir talsvert í afurðamati, þó að mat beggja sé áfram ákaflega hátt, en hins vegar hækka þeir báðir í mati um mjaltir, en kyn- bótamat um endingu lækkar hjá báðum þó að báðir standi þar áfram með mjög gott mat. ( heildareinkunn eru breytingar hjá þeim þær sömu, báðir lækka um tvö stig í matinu. Hjá Punkti 94032 eru minni breyt- ingar en hans sterka mat lækk- ar um eitt stig í heildina. Fjórði nautsfaðirinn í hópnum, Frískur 94026, hækkar hins vegar um þrjú stig í heildarmati og er með 113 í heildareinkunn. Af- urðamat hjá dætrum hans hækkar talsvert og einnig hækkar mat hans fyrir mjaltir verulega. Bæði Pinkill 94013 og Sokki 94003 hækka í af- urðamati og standa þar efstir í árganginum jafnir með firna- hátt mat, 129. Mat fyrir veik- ustu eiginleika þessara nauta, júgurgerðin hjá Sokka og mjaltir hjá Pinkli, tekur hins vegar litlum breytingum. Að síðustu er ástæða til að benda á að Drómi 94025, sem er eina nautið úr hópnum sem enn er ( almennri notkun, hækkar enn í mati og er með 114 í heilda- reinkunn og mat um endingu dætra hjá honum er 118 sem er með því albesta sem þekkist. Um eldri naut er tæpast ástæða til að fara mörgum orð- um. Árgangurinn frá 1993 var aldrei sterkur en yfirburðir Blakks 93026 verða skýrari með hverju ári eftir því sem dætrum hans fjölgar og meiri upplýsingar koma um hann. Þetta naut var því miður ekki notað sem skyldi þegar hann var í notkun sem reynt naut, en margar dætra hans eru að koma fram sem mjög öflugar nautsmæður. Árgangurinn frá 1992 var um margt öflugur þegar hann kom fram en þar stendur Smellur 92028 lan- gefstur nú þegar mjög traustur grunnur er kominn að öllu mati árgangsins, sem afgerandi toppgripur, og er með 115 í heildareinkunn, en veikleiki hans, eins og margra nautanna frá sama tíma, er lágt prótein- hlutfall mjólkur hjá dætrum þeirra. TOPPARNIR Að lokum skal örstutt vikið af toppnautunum í mati gagnvart einstökum eiginleikum. Eðlilegt er að byrja á að skoða heildar- einkunnina, kynbótamat naut- anna, en þar eru yfirburðir Stígs 97010 eins og fram hefur kom- ið ótrúlega miklir en hann er með 125 í heildareinkunn. Næstir honum koma síðan Kað- all 94017 og Punktur 94032 með 119 og nýliðinn Fontur 98027 fylgir þeim eftir með stigi lægra í heildarmati. Síðan koma þeir Völsungur 94006 og Fróði 96028 báðir með 117 f heilda- reinkunn og þeim fylgir Hersir 97033 með 116 í heildarein- kunn. Úr því fer mikið fjölgandi gripum á hverju einkunnaþrepi og verður ekki fetað lengra nið- ur þann stiga. Fyrir mjólkurmagn eru yfir- burðir hjá Randveri 97029 tals- verðir en hann er með 138 í kynbótamat fyrir þennan eigin- leika, næstur kemur Punktur 94032 með 134 og Sokki 94003 með 133. Fyrir prótein- hlutfall mjólkur er það Núpur 96013 sem trónir á toppi með 130 í mati, en fast á hæla hans með 129 koma þeir feðgarnir Bassi 86021 og Soldán 95010. Rétt er að benda á það að í toppinn í mati á fituhlutfalli rað- ar sér hópur nauta úr 1998 ár- ganginum með Sóla 98017 á toppi með mat sitt upp á 136. Afurðamatið er hins vegar sá þáttur úr kynbótamatinu sem telur í heildareinkunn nautsins og það er eins og margir þekkja sett saman af próteinmagni og próteinhlutfalli mjólkurinnar. Þarna er það Stígur 97010 sem er á toppnum með 136, Krossi 91032 kemur honum næst með 133, Randver 97029 er með 131 og síðan koma Sokki 94003 og Pinkill 94013 með 129. Þegar mat fyrir frjósemi er skoðað er fá af toppnautum síðustu ára að finna í efstu röð- um. Samt eru þar tvö naut, Klaki 94005 með 134, og síðan það sem líklegt er til að geta haft enn meiri áhrif, Völsungur 94006, sem er með 129 í mati fyrir þennan eiginleika. Fyrir frumutölu eru það enn nýir gripir sem birtast á toppn- um, en úr nautum úr notkun á síðustu árum standa þar efstir Sveipur 94016 með 136, Búri 94019 með 135 og Hersir 97033 með 133. Þá stendur Bætir 91034 enn með mjög hátt mat fyrir þennan eiginleika eða 131. ( gæðaröð, sem er mjög illa skilgreindur eiginleiki og telur ekki í kynbótamati en er engu að síður mikilvægur þar sem hún er eins konar heildarmat um dætur nautsins, er Stígur 97010 alveg einn á toppinum með 144, þá kemur Teinn 97010 með 132 og Punktur 94032 með 131 og síðan Kaðall 94017 með 127. Fyrir júgur er mat Sorta 90007 enn alveg sér en hann fær 148 fyrir þennan eiginleika. Trölli er þar með 122 og Kaðall 94017 og Smellur 92028 ásamt Þrasa 98052 eru með 121. Sorti 90007 er einnig sér í sérflokki með kynbótamat fyrir spena sem er 158 en þar má síðan benda á Smell 92028 og Glanna 98026 með 128. Úi 96016 er með hæsta kyn- bótamatið um mjaltir eða 133 en Holti 88017 er með 131 og þá kemur Prakkari 96007 með 125 en Úi og Prakkari eru báðir Holtasynir. Fyrir skap er það Pinkill 94013 sem hefur langhæst mat eða 139, Soldán 95010 kemur þar næstur með 133 og Krummi 95034 með 131. Fyrir endingu sem nú er með sem eiginleiki í matinu í þriðja skipti er það Þráður 96013 sem enn skipar toppsætið með 126 í heildareinkunn, en af yngri nautum kemur Stígur 97010 efstur með 121 og Drómi 94025 er með 118 og einnig er rétt að benda á feikilega gott mat þeirra Prakkara 96007 og Fróða 96028 fyrir þennan eigin- leika sem báðir hafa 116 í ein- kunn. 16 FREYR 04 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.