Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 5

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 5
aðist þá ekki að halda leiðum opn- um með snjóruðningi. A vetrum fór ég stundum með strandferða- skipum þegar ég þurfti að fara á syðsta hluta svæðisins, t.d. Geit- hellnahrepp. Þá tók ég stundum Esjuna til Djúpavogs. Eg man sér- staklega eftir einni ferð. Þá kom- um við kl. 4 að morgni til Djúpa- vogs og það var ekki hægt að leg- gja skipinu að bryggju vegna roks. Við vorum tveir farþegamir sem ætluðum í land á Djúpavogi, mánaðargamall kvígukálfur og ég. Var bmgðið um okkur stroffu en vegna veltings héngum við ut- anborðs í stroffunni helst til lengi en náðum loks ómjúkri lendingu í uppskipunarbátnum, eftir kalt sjó- bað. Búnaðarsambandssvæðið er eitt það stærsta á landinu og fyl- gdu því starfínu löng og ströng ferðalög og langar útivistir við j arðabótaúttektir, skurðamælingar og þess háttar, oft hálfur mánuður eðajafnvel lengur. Skiptuð þið Páll á milli ykkar svæðinu? Já, að sumu leyti. Eg var meira í suðursýslunni, en Páll í norður- sýslunni. En þó blandaðist það mikið, auk þess sem við ferðuð- umst mikið saman. Var ekki uppgangur i sauðjjár- ræktinni þarna á þesswn tíma? Jú, það er óhætt að segja og í landbúnaði almennt. A þessum tíma er hafrn komrækt á Austur- landi íyrir forgöngu Sveins á Eg- ilsstöðum og mjólkurbú tekur til starfa í Egilsstaðakauptúni. I sauðíjárræktinni var mikil gróska og almennur áhugi að auka afúrðir og bæta gæði framleiðsl- unnar, sem kom fram í ákaflega mikilli og almennri þátttöku í hrútasýningum á svæðinu. Meðal nafntogaðra sauðijárræktarmanna í suðursýslunni má nefna Gunnar á Hnaukum, Einar á Geithellum Hestur í Borgarfirði, bær og fjárhús. og Sigurð á Gilsá, sem allir seldu kynbótahrúta vítt um sambands- svæðið, á Héraði vom Þorstein á Sandbrekku og Guttormur í Geita- gerði og ekki má gleyma Jónasi tilraunastjóra á Skriðuklaustri. Á Jökuldal hygg ég að Eiríksstaða- féð hafí verið hvað víðfrægast og mikið selt af kynbótahrútum það- an. í Vopnafírði var kraftur í íjár- ræktinni með kaupum á hrútum frá Þistilfírði, en ég var ekki eins kunnugur fjárræktinni þar því að Páll annaðist hana að mestu. Þetta eru bara nokkur dæmi um afburða ræktunarmenn og efalaust mætti nefna miklu fleiri sem ég hef ekki á takteinum núna. Sauðfjártilraunir á Skriðu- klaustri? Um þessar mundir fóru fram viðamiklar tilraunir með afurða- getu íjár af austfískum og norður- þingeyskum stofni. Þessir Ijár- stofnar, fímm að tölu, voru úr Borgarfírði eystra, Jökuldal, Álftafirði, heimastofn frá Skriðu- klaustri og svo frá Þistilfirði. Jón- as Pétursson, tilraunastjóri, og Páll Sigbjömsson sáu um þær í upphafí en Stefán Aðalsteinsson annaðist, að mig minnir, uppgjör á þeim. Eg kom ekki mikið nálægt þessum tilraunum. Hins vegar að- stoðaði ég Jónas á hverju hausti við uppskemmælingar úr áburðar- tilraunum og lærði ég mikið af því þar sem Jónas var með eindæmum nákvæmur tilraunamaður. Sem nokkurs konar uppbót fyrir að- stoðina, fyrsta haustið, bauð Jónas mér að fara í göngur á Vesturöræfí fyrir Klaustursbúið, sem ég þáði umsvifalaust og sé ekki eftir því. Þar kynntist ég Fljótsdælingum vel og komu þeir mér mikið frek- ar fyrir sjónir sem lífsfílósófar og náttúruunnendur en stritandi bændur og einhvem veginn hef ég það á tilfínningunni að þeir bænd- ur sem ég kynntist i þessum göng- um en em nú flestir látnir, snúi sér við i gröfínni vegna þeirra nátt- úruspjalla sem nú em framin á heiðalöndum þeirra, þjóð og landi til ævarandi skammar. Mastersnám í Bandaríkjunum OG STARF Á RALA Hvað tekur svo við eftir árin fyrir austan? Vorið 1962 fór ég að starfa hjá Búnaðardeild Atvinnudeildar Há- Freyr 6/2004 - 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.