Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Síða 8

Freyr - 01.09.2004, Síða 8
Fé á Hesti i rétt. var tekið fyrir alla sölu nema á aðra garnaveikibæi. Þetta var mikið áfall fyrir starfsemina þar sem m.a. Sæðingarstöð Vestur- lands hafi verið flutt frá Hvann- eyri að Hesti 1969 og þá þegar farið að taka kynbótahrúta frá bú- inu á hana og má þar nefna víð- fræga kynbótahrúta, s. s. Soldán, Mola, Fursta og síðar Anga. Sæð- ingarstöðin var svo flutt í Borgar- nes og starfar þar enn. Haustið 1980, að ég held, fékk Hjalti Gestsson ráðunautur á Sel- fossi leyfí hjá Sigurði Sigurðar- syni, dýralækni Sauðljárveiki- vama, til að kaupa afkvæmapróf- aða lambhrúta frá Hesti fyrir sæð- ingarstöðina í Laugardælum með því skilyrði að þeir yrðu í einangr- un í tvö ár. Þetta leyfí gilti jafn- framt fyrir hinar tvær sæðingar- stöðvamar, Vesturlands og Norð- urlands, og vom fyrstu hrútamir teknir í notkun haustið 1982. Hrútarnir voru í einangrun í Bæ í Bæjarsveit, en leyfi fékkst til að nota þá í tvo daga um fengitímann í Mávahlíðarhúsunum til að af- kvæmaprófa þá. Gangmál ánna í samstillt og hleypt til þeirra á tveimur dögum og lambhrútamir svo fluttir aftur niður að Bæ. Þetta samstarf sæðingarstöðvanna og Hestbúsins stóð yfír að mig minn- ir í þrjú á og komu margir þekktir kynbótahrútar fram til notkunar á sæðingarstöðvunum og má þar nefna Ráðsnjall, Gýg og Þjón úr fýrsta hollinu og á næstu ámm Stramma, Snáða, Kain, Aron, Kokk og Stubb svo að einhverjir séu nefndir. Sióan er tekið til við að rann- saka erfðir fitusöfnunarinnar? Já, það gerist upp úr 1980. Ein- hvem tímann á áttunda áratugnum koma fram kenningar um óholl og hættuleg áhrif dýrafítu, bæði í kjöti og mjólk, á heilsu manna. Ýmsir læknar og næringarfæðing- ar hér á landi gripu þessa kenning- ar hráar á lofti enda þótt rann- sóknaniðurstöður væm mjög mis- vísandi svo að vægt sé til orða tekið, og rnæltu með að fólk hætti helst að borða kjöt og egg, drekka mjólk og nota smjör, en helst lifa á horkjöti, smjörlíki og undan- rennu. I kjölfarið fylgdu svo kröf- ur neytenda um fítuminna kjöt, þó ekki eingöngu vegna þessa hræðsluáróðurs, heldur vegna breyttra þjóðfélagshátta þar sem orkuþörf erfíðisvinnandi fólks hafði stórminnkað vegna tilkomu nýrrar tækni og jafnffamt vann sí- fellt fleira fólk við kyrrsetustörf. Við þessum kröfum markaðar- ins var snarlega bragðist og tekin í notkun kynbótaeinkunn sem byggðist á fallþunga og þeim skrokkmálum er sýndu hæsta arf- genga fylgni við fítu- og vöðva- þykkt. 1 kynbótaeinkunninni fékk fítuþátturinn neikvætt vægi en vöðvaþátturinn og fallþungi já- kvætt. Við gerð kynbótaeinkunn- arinnar var notuð svokölluð höf- uðþáttagreining og má heita að hafí þá verið ný af nálinni í búljár- erfðafræði. Niðurstöðumar sýndu að innan hjarðarinnar á Hesti væri að finna þrjár arfgerðir með mis- munandi hæfni til vefjavaxtar. I fyrsta lagi snemmþroska fé, þ.e. þær skepnur sem era fljótari að ná því þroskastigi þegar skriður til fitusöfnunar er meiri en til vöðva- söfnunar, andstætt seinþroska fé, og einkennast af stuttum og til- tölulega mjóum legg, þ.e. lágfætt fé með ríka eiginleika til fítu- söfnunar. I öðra lagi, seinþroska fé sem einkennist af löngum og fremur sveram leggjum, þ.e. háf- ætt fé sem fitnar seint á vaxtar- skeiðinu, og í þriðja lagi tiltölu- lega seinþroska fé með stuttum leggjum en sveram, þ.e. lágfætt fé með litla fítusöfnunareiginleika. Augljóst var að síðastnefnda arf- gerðin hentaði því kynbótamark- miði, sem sett var til að mæta kröfum um fituminna og vöðva- nreira dilkakjöt. Fyrsti hrúturinn sem sameinaði þessa kosti og endurspeglaði þessa arfgerð kom fram í afkvæmarannsóknunum 1984, en það var hrúturinn Strammi 83- 833. Yfirburðir afkvæma hans í vaxtarlagi og lítilli fitusöfnun og mikilli vöðvasöfnun yfír afkvæmi annarra hrúta í rannsókninni vora 18 - Freyr 6/2004

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.