Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.2004, Side 56

Freyr - 01.09.2004, Side 56
Gæðastýring, búrekstrar- leg nýting GÆÐASTÝRINa Flestar aðferðir við gæðastýr- ingu miðast að því að beita mark- vissu skipulagi og skráningum til þess að ná betri árangri í rekstri og stjórnun, ásamt því að fram- leiða vörur sem standast fyrir- fram ákveðnar kröfur um eigin- leika. Kerfin, sem unnið er eftir, eru margs konar en flest þeirra eru þó hönnuð með tilliti til ákveðinnar forskriftar að kröfum alþjóðlegrar staðlaraðar um gæðakerfi sem ber nafnið ISO 9000. Nái kerfm því að vera vottuð þannig að þau uppfylli kröfurnar er um að ræða gæða- kerfi. Þau lúta kröfum sem þekkt- ar eru um allan heim af bæði kaupendum og seljendum og tryggir viðskiptaaðilum að verk- lag varðandi framleiðsluna og viðbrögð við hinum ýmsu frávik- um (óhöppum, göllum) sem upp kunna að koma, eru markviss og undirbúin. Umhverfisstjórnun. Nátengd þessari tegund gæða- stýringar er svokölluð umhverfís- stjómun sem miðar að því að setja upp markvisst kerfi yfír stjómun þeirra rekstrarþátta sem varða samspil rekstrarins við umhverfíð. Þama eru líka til mörg og mis- munandi kerfí og einna þekktust em kerfí sem uppfylla ISO 14000 kröfustaðal um umhverfísstjóm- un. Sá staðall gerir reyndar engar kröfur um að starfsemin sé eitt- hvað sérstaklega væn fyrir um- hverfíð, einungis að uppi séu skráð markmið um að minnka eitthvað neikvæð áhrif hennar á það. GÁMES Gæðakerfi samkvæmt kröfum ISO 9000 eða ISO 14000 staðlar- aðanna em frjálst val þeirra fyrir- tækja sem þau nota og em afar al- geng í flestum tegundum iðnaðar og einnig í auknum mæli í þjón- ustufyrirtækjum. Framleiðsla á matvælum lýtur aftur á móti yfír- leitt ákveðnum kröfúm um gæða- kerfi. Hér á landi er skráning og eftirlit eftir svokölluðu GÁMES kerfí áskilin í reglugerð um mat- vælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifíngu matvæla, en GÁMES þýðir “Greining áhættuþátta og inikilvœgra eftir- litsstaða’’. í GÁMES kerfi þarf þvi að greina alla þætti í starfsem- inni sem geta valdið göllum á framleiðslunni og skipuleggja prófanir og skráningu niðurstaðna á mikilvægum eftirlitsstöðum. Sauðíjárframleiðsla, mjólkur- framleiðsla á býlum og uppskera garðávaxta er undanþegin áður- nefndri reglugerð ásamt veiðum, vinnslu og útflutningi sjávaraf- urða. Gæðakerfi sauðfjárbænda Gæðastýring í sauðQárfram- leiðslu er áþekk framangreindum gæðakerfum og byggir á skrán- ingum á ákveðnum upplýsingum úr framleiðslunni jafnt varðandi framleiðsluaðferðir og fram- leiðsluaðstæður. Markmiðið með skráningunum er tvíþætt, annars vegar að ná betri skilvirkni og hagkvæmni í framleiðsluna og hins vegar að upplýsa/sanna fyrir markaðnum, þ.e. neytendum dilkakjöts, hvernig framleiðslan fer fram. Þeir þættir sem skráðar eftir Sigurð Eiríksson, landsráðunaut í rekstrar- fræðum, Bænda- samtökum íslands eru upplýsingar um í gæðastýr- ingu í sauðijárframleiðslu eru skilgreindir í fylgiskjali með síð- asta sauðfjársamningi. Skráning- amar hafa misjafnt hlutverk þar sem sumar þeirra miða að því að upplýsa um framleiðsluaðstæður eða aðferðir á meðan aðrar hafa ákveðnara hlutverk í þá átt að geta hjálpað til við að bæta skilvirkni og framleiðni í rekstrinum. I sumum tilvikum fellur þetta alveg saman en oftar em það ítarlegri upplýsingar sem reksturinn þarín- ast en markaðssetningin. Búskaparleg nýting Búskaparleg nýting gæðastýring- ar liefúr verið umdeild og sýnist sitt hverjum um nýtingarmöguleika hinna ýmsu skráninga fyrir búr- eksturinn. Gæði skráninganna skipta einnig miklu máli þegar kemur að nýtingu þeirra en reynt hefur verið að láta einfaldleika skráninganna skerða sem minnst nýtingarmöguleika þeirra til þess að nota við vandamál eða sóknar- færi í búrekstrinum. Til þess að skýra þetta enn frekar er best að lista upp kröfúr um skráningar í gæðastýringu í sauðfjárframleiðslu og nefna nokkra nýtingarmögu- | 56 - Freyr 6/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.