Freyr - 01.09.2004, Qupperneq 60
INTERNORDEN 2004 -
Málþing um sauðfjárrækt
á Norðurlöndum
Dagana 17.-20. júní sl.
var haldinn í Visby á
Gotlandi í Svíþjóð 28.
fundur INTERNORDEN sem
er samstarfsvettvangur sauð-
fjárræktarfólks á Norðurlönd-
um. Kjarnann myndar fagfólk
sem vinnur við leiðbeininga-
þjónustu, rannsóknir og
kennslu en einnig slást í hópinn
starfsmenn afurðastöðva, dýra-
læknar og fjárbændur. Geit-
fjárrækt kemur einnig lítillcga
við sögu.
Sauðfjárrækt í Svíþjóð
Fundir þessir eru haldnir annað
hvert ár, síðast hér á landi í Reyk-
holti sumarið 2002. Við hæfi var
að halda Svíþjóðarfund á eyjunni
Gotlandi því að þar er sauðíjár-
rækt einna mest og tjárbúin stærst
en þegar á heildina er litið er
sauðíjárrækt ein af smærri bú-
greinunum í Svíþjóð og geitijár-
rækt enn minni. Kindakjötsneysla
er þó það mikil að innflutningur er
töluverður, m.a. frá íslandi. í Sví-
þjóð, og þá einkum á Gotlandi, er
löng hefð fyrir framleiðslu og
vinnslu gæra, einkum grárra pels-
gæra og ullariðnaður er þar tölu-
verður. Enn er mikil gróska í þess-
um iðnaði þótt hann sé ekki í þeim
blóma sem hann var á seinni
helmingi 20. aldar þegar gráar
gærur frá Islandi voru fluttar inn í
nokkrum mæli. Þegar best lét var
Visby á Gottandi er falleg, litil borg. Hún tengist sauðfjárrækt eyjarskeggja
traustum böndum og við höfnina og viðar má sjá steypta “hrúta" þar sem
ekki má leggja bílum. (Ljósm. Ó.R.D.).
eftir
dr. Ólaf R. Dýrmundsson,
Bænda-
samtökum
Islands
um helmingur tekna tjárbænda á
Gotlandi af gærum og ull en nú
vegur kjötið þyngra.
Fjölbreytt dagskrá
Dagana 17.-19. júní stóðu yftr
faglegir fundir í Visby en hún er
mjög sérstæð og falleg borg sem
byggðist upp á tímum Hansakaup-
manna og nýtur gamli bærinn þar
sérstakar vemdunar því að hann er
á Heimsminjaskrá. Þann 20. júní
voru heimsótt þrjú fjárbú en inn á
milli fagfiinda var skotið heim-
sóknum í gæru- og ullarvinnsluna
„Yllet“ og matvælarannsóknafyr-
irtækið „LivsTec“ í Visby. Allt var
skipulagt af prýði undir stjóm
Gun Bemes sem starfar við rann-
sóknir á beit og fóðmn sauðfjár í
Umeá í Norður-Svíþjóð. Þátttak-
endur vom 36 frá öllum aðildar-
löndunum nema Grænlandi og var
sá sem þetta ritar eini fúlltrúi Is-
lands. Samtals vom flutt 24 erindi
og 4 veggspjöld sýnd.
Staða sauðfjárræktarinnar
Svo sem áður var nefnt er sauð-
Ijárrækt lítil búgrein í Svíþjóð,
| 60 - Freyr 6/2004