Freyr - 01.09.2004, Page 62
Fagurhyrndur fullorðinn, gráflekkóttur hrútur af hinu forna “Gute" kyni. Allt fé
á Gotlandi ber plötumerki úr plasti eða áli að kröfu ESB (Ljósm. Ó.R.D.).
162 - Freyr 6/2004
á Norðurlöndum, þó einna skást í
Noregi.
Nordmenn efla
SÆÐINGASTARFSEMINA
A málþinginu voru m.a. flutt
nokkur erindi um ræktunarstarfið.
Ull og gærum er sinnt minna en
áður og mest áhersla lögð á að
bæta gæði kjötframleiðslunnar.
Skyldumerking er að komast á og
vaxandi kröfur eru gerðar um
rekjanleika, einkum vegna sjúk-
dómavama. I ESB löndunum em
venjulega notað litað plötumerki
með sérstökum áletmnum en á
Gotlandi varð ég var við töluverð-
an sveigjanleika í þessum efnum.
Þar var allt fé einstaklingsmerkt
en þar sem um eyju er að ræða
hafa verið veittar undanþágur til
að nota fleiri gerður merkja, jafn-
vel venjuleg, ólituð álmerki. Af
þeim erindum sem flutt voru um
ræktunarstarfsemi fannst mér at-
hyglisverðast hve Norðmenn eru
famir að leggja mikla áherslu á
sauðfjársæðingar. Þar hafa í raun
orðið mikil umskipti á tiltölulega
fáum árurn. Fyrir um áratug var
lítið sætt en nú er svo komið að
40.000 ær voru sæddar haustið
2003 með sæði úr 80 hrútum. Enn
hafa Islendingar þó vinninginn,
hlutfallslega, enda lengri hefð fyr-
ir sauðfjársæðingum hér á landi.
Sæði er dreift frá þrem stöðvum
og er athyglisverðast að um tveir
þriðju sæðinganna em með frystu
sæði þar sem rúmlega 60% ánna
festa fang miðað við rúmlega
70% þegar notað er ferskt sæði.
Þess má geta að Norðmenn em að
nýta aðferðir við sauðijársæðing-
ar sem Þorsteinn Olafsson dýra-
læknir þróaði á námsárum sínum
í Noregi og þekktar em hér á
landi. Vonandi tekst okkur að
auka notkun frysts sæðis með
viðunandi árangri likt og Norð-
menn en tilraunir hér siðustu árin
lofa góðu.
Á Skággs Gárd búa ung hjón og tók húsfreyjan, Emma (Ijóshærð t.h.), á
móti okkur og gaf greinargóðar upplýsingar um fjárbúið. Hún er frá Stokk-
hólmi, þekkti ekkert til búskapar áður en sér nú mest ein um féð, 350 vetrar-
fóðrað af Texel, Oxford Down o.fl. kjötkynjum. Hún fær nær tvö lömb eftir
ána, flest fara í sumarslátrun, hún lætur fullvinna hvítu gærurnar og selur
beint undir vörumerki búsins með kynningu á heimasiðu www.gotlamm.se.
(Ljósm. Ó.R.D.).
markaðssetningu fyrir nútima
neytendamarkað. Hreinleiki og
gæði em sem sagt efst á baugi,
einkum varðandi dilkakjöt frá
norrænum jaðarbyggðum. I heild-
ina er afkoma sauðljárbænda léleg
sömu slóð fyrr eða síðar hvað op-
inberan stuðning varðar. Reiknað
er með aukinni samkeppni, sér-
staklega við innflutt dilkakjöt frá
Nýja-Sjálandi og er Ijóst að vax-
andi áhersla verður lögð á gæði og