Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2002, Page 7

Freyr - 01.03.2002, Page 7
Kostir hinnar nýju heyverkunar- aðferðar hafa hins vegar vegið til muna þyngra í þessari breytingu en vistfræðileg sjónarmið. b. Breytt rœktun og fóðurfram- leiðsla Síðasta áratuginn hefur jarð- vinnsla vaxið. Veldur því tvennt: aukin endurræktun túna og vax- andi kornrækt (bygg). Allar horf- ur eru á að þessir þættir fóður- ræktar fari vaxandi á næstu árum. Jarðvinnsla er orkufrek. Elds- neytisþörf fóðurframleiðslunnar mun því vaxa af þessum sökum. Nú er bygguppskeran um 5000 tonn á ári. Hún virðist geta vaxið til muna því enn er hún aðeins brot af því kolvetnafóðri sem not- að er innanlands. Til þessa hefur mest af bygginu verið verkað og geymt sem súrbygg. Þurrkað bygg þykir þægilegra og ömggara í meðfömm og því má búast við vexti í þeirri aðferð. Mun hann kalla á eldsneyti, auk raforku og jarðvarma, þar sem bygguppsker- an fellur til á mjög skömmum skurðartíma og krefst tafalausrar þurrkunar, sú sem ekki er súrsuð. Framleiðsluhættir a. Gœðastýring framleiðsl- unnar Bændur taka í vaxandi mæli upp gæðastjómun í búrekstri sín- um (t.d. í svína- og alifuglarækt). Þorri sauðfjárbænda hefur nú hafið skipulegt átak í gæðastýr- ingu framleiðslu sinnar. Takist hún vel má gera ráð fyrir að bætt nýting aðfanga skili sér hvað fyrst, þar með talið bætt nýting eldsneytis. Sakir lítils efnahags- vægis þessa rekstrarþáttar mun hann þó varla verða í forgangsröð úrbótaþátta. b. Vistrænn, iífrœnn og lífefldur búskapur Offramboð búvara, áhyggjur af umhverfi og önnur lífssýn hafa öðm fremur kallað ffam umræðu um breytta framleiðsluhætti og -siði í landbúnaði. Sérstakir fram- leiðsluhættir, svo sem líffænn búskapur, hafa verið skilgreindir m.a. með lögum og reglugerðum. Athyglisvert er að í þessum til- skipunum er ekki vikið að hinni beinu orkunotkun, svo sem notkun eldsneytis. Hana má þó telja eina helstu forsendu þess hringferils sem búvömframleiðslan þarf að vera. Nýting orku í framleiðslu- ferlinum er engu þýðingarminni en nýting einstakra næringarefna. c. Nýjar búgreinar - skógrækt Ymsar nýjar áherslur eru nú í landbúnaði. Um þessar mundir eru tvennar einkum áberandi: I fyrsta lagi skógrækt (og land- græðsla) og í öðm lagi ferðaþjón- usta og ýmis afþreying tengd landi og landkostum. Frá sjónar- miði orkunotkunar landbúnaðar- ins munu þessar áherslur fremur litlu breyta: Skógræktin kallar á hefðbundið eldsneyti á vélar til fmmvinnslu landsins; plöntunar og umhirðu. Hins vegar skilar skógurinn í eldsneyti (ferilorku) sem nýst getur m.a. við staðbundna upphit- un. Ferðaþjónusta kallar einkum á raforku og jarðvarma, svo sem til upphitunar gistihúsnæðis, og jarðvarma vegna afþreyingarað- stöðu (sundlaugar, heitir pottar ofl.). Undir þessum lið má líka nefna hin foma aflgjafa, íslenska hestinn. Hann leikur nú mikið og vaxandi hlutverk í ferðaþjónustu landsmanna. Hesturinn kann líka að verða á ný hagkvæmur aflgjafi til léttari verka við hina „nýju” framleiðslusiði í landbúnaði, sbr. b. lið hér næst að framan. Köfnunarefni - niturnám Köfnunarefnið er mikilvægasti Með nýskógum bænda er verið að byggja upp mikilvæga auðlind sem nýtst getur framtíð til ýmissa orkuþarfa, bæði með beinum og óbeinum hætti. (Ljósm.: Bj.Guðm.). næringarþáttur fóðurræktarinnar. Einn stærsti hluti hinnar óbeinu orkunotkunar landbúnaðarins liggur í framleiðslu N-áburðar. Frá vistfræðilegu sjónarmiði var innlenda N-áburðarframleiðslan, sem hófst upp úr miðri síðustu öld, áhugaverð, þótt tæknilega kynni hún að teljast gamaldags. Raforka úr fallvötnum til raf- greiningar köfnunarefnis úr andrúmslofti stendur nærri belg- jurtum að nitumámi í vistrænu tilliti. Með þennan hluta siðfræði búvömframleiðslunnar í huga sýnist því nokkurs virði að - halda við köfnunarefnisnámi tii áburðarvinnslu byggðu á notkun (innlendrar?) ferilorku - halda áfram rannsóknum er eflt geta hlut niturbindandi plantna ífóðurrækt og land- grœðslu. Einnig á þessu sviði ráða verð- hlutföll því á hverjum tíma hvort lögmál vistfræðinnar megna að komast til áhrifa. Freyr 2/2002 - 7

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.