Sameiningin - 01.04.1910, Page 5
37
Hvernig læknir lítr á kraftaverk
Krists.
Eftir dr. Howard A. Kelly.
Þýtt úr The Sunday School 1 'imes, í Philadelphia.
Meir en lítið leiðinlegt og þreytanda myndi liið dag
lega líf vort verða, ef ekki væri neitt annað til að hvetj i
anda vorn en það, er vér nefnum vísindi. Maðr myndi
þá ekki verða annað en einskonar vél, sem sett hefði.
verið á stað og látin ganga innan í annarn stœrri vél,
liáðr þeim örlögum að dragast áfram leið sína gegn um
tilveru forgengilegs líkamslífs við ömurlega vanaiðju,
þangað til smáagnirnar ósýnilegu, er líkamann mynda,
fá loks upp úr hinni síðustu kvalaliríð lausn og mega um
stund hvílast í skauti jarðar, þar tii þær, ef svo vill verk
ast, lenda inn í annað líffœra-kerfi, og síðan alveg á
sama hátt í önnur á nýrri og nýrri hringför líkamslífs-
ins. En liér í lífi þessu miðju, svo litlaust og andsnautt
sem það er, eru hin yfirnáttúrlegu kraftaverk Krists og
hin óviðjafnanlega persóna lians, og birtast oss þar undr
svo mikil, að enginn lmfði áræði til að láta sig óra fyrir
nokkru þvílíku, dásamlegri undr en þótt öll liin skáld-
legu æfintýri œskunnar hefði rætzt, komandi með marg-
falda von um óendanlega dýrð, sem hér á jörð skal verða
eign manna, og um opinberun þeirrar dýrðarfyllingar
síðar meir, sem enginn fær skilið.
Þá er Jóhannes skírari var í böndunum í myrkva-
stofunni, gjörðist hann hrelldr og efablandinn út af þeim
kjörum sínum, því hann þekkti ekki millibil það, er átti
að skilja komu Krists í niðrlægingunni til þess að bera
syndir vorar frá endrkomu lians í dýrð; og er hann svo
sendi til Jesú til að spyrja hann: „Ertu sá, sem koma
á, eða eigum vér að vænta annars?“—, þá fékk liann eina
svarið, sem dugði, svar, sem miklu meir var sannfœr-
anda en afdráttarlaust já eða nei:
„Farið og kunngjörið Jóhannesi þoð, sem þér heyrið
og sjáið: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast