Sameiningin - 01.04.1910, Blaðsíða 12
44
GAMLA TESTAMENTIÐ SKOÐAÐ I ÞESS EIGIN LJÓSL
Kafli úx bóhimni „The Problem of the Old Testament“
eftir dr. James J. Orr. Lausl. þýðing eftir G. G.
Vér höíum nú litið yfir heimildarrit og sögu trúar
bragða Israels, og höfum hjá hvorutveggja fundið sér-
kenni, sem ekki er unnt að jafna við neitt, er liafi verið
uppgötvað annarsstaðar. Nú förum vér feti lengra, og
íhugum þá spurning, livort trúarbrögðin sjálf sé ekki
iíka ein í sinni röð. Þeir einir, sem ekki liafa sett sig
inn í anda þessarra trúarbragða, eða kunnað að meta
afstöðu þeirra á við önnur trúarbrögð, munu bera á móti
þeirri staðhœfing, að trúarbrögð Israels sé alveg einstök
í sinni röð. Deilan er ekkíi um það, hvort þau eigi sinn
líka eða ekki, heldr um hitt, hvort sérkennum þeirra sé
þann veg varið, að þau hljóti að vera af sérstökum, yfir-
nátíúrlegum rótum runnin. Vér munum þegar sjá, hvað
gamla testamentið sjálft segir um þetta atriði.
T. Sé einhver trúarbrögð frábær, mun frábærleiki
þeirra sýna sig í því, sem þau vantar, ekki síðr en því,
sem þau innihalda. Trúarbrögð Israels vantar margt,
sem vér mætturn búa.st við að finna í þeim, ef j>au væri
að eins eitt trúarkerfi meðal annarra. Svo sem að
sjálfsögðu svipar mörgu saman í'ytra búningi, eins og
áðr er tekið fram. í trúarbrögðum ísraels finnum vér
musteri, prestastétt, ölturu, fórnfœringar, helgisiði, og
margt fleira, sem samsvarar því, er þesskyns var í öðr-
um trúarbrögðum. En er vér líturn inn fyrir þennan ytra
búning trúarinnar, og sjúum hana eins og hún er í
hjarta sínu, þá föllum vér ekki í stafi yfir því, sem svip-
ar saman, heldr yfir hinu, scm gagnstœtt er. Ekki vilj-
um vér telja eftir oss að kannast við það, sem betr fer í
heiðnum trúarbrögðum. En hvort sem vér skipum þeim
háan sess eða lágan, þá stendr sá sannleikr óhaggaðr, að
í revndinni hefir lítið sem ekkert borið á hinum göfgari
myndum þeirra; skurðgoðadýrkan, öfgafullar goðsagnir
og margoft ósiðlegar, siðir og venjur svo spillandi sem
mest mátti verða, hafa skipað þar öndvegi. Ekki þurf-
um vér annað en að minnast á andadýrkun og kukl Babý-