Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1910, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.04.1910, Qupperneq 13
45 lonru-mamia; á sképnudýrkim og feðradýrkun Egýpta; á steinadýrkun, trjádýrkun, högg'ófmadýrkun, mannblót, tilbeiðslusiði saurgaða lauslæti og sjálfskemmdum, er hafa gegnsýrt flest trúarbrögð utan ritningaritinar. Eu hve fjarri er slíkt trúarbrögðum ísraels. Fáir munu dirfast að halda því fram, að trjádýrkun, steinadýrkun, ]löggormadýrkun, líkneskjadýrkun og þesskonar hindr- vitni, láti mikið yfir sér á blaðsíðum biblíunnar. Vér gefum það eftir, að þessir hlutir, eða sumir þeirra, komi fyrir í biblíusögunni, — að örfá og óglögg merki þeirra finnist á tíð feðranna. og Mósis, og að þeir sjáist aftr í stœrra stýl á tímum almennrar hrörnunar, þegar fólkið lét leiðast til hjáguðadýrkunnar og svívirðinga, sem tíðkuðust meðal grannþjóðanna. En slíkt myndar alls engan réttmætan þátt í trúarbrögðum Gyðinga, lieldr er það ætfð látið sæta mótspyrnu, liarðlega vítt, og lýst í bann, sem fráhvarf frá Jelióva. Hjáguðadýrkun sætir hörðum dórni í elztu löggjöfinni; galdr, andasœr- ingar og fréttaleitun af framliðnum er bannað. l)œmi finnast til, að slíkt liafi verið stundað, svo sem húsgoð Rakelar, sem hún stal frá Laban föður sínum, líkneski Míka (Hóm. 17), og fréttaleitan Sáls hjá galdranorninnl í Endor. En það eru stök tilfelli, sem ýmist eru leifar fornra hindrvitna, eða brot gegn grundvallaratriðum trúarbragðanna, eins og dœmi finnast til hjá öllum þjóð- um á öllum öldum. II. Vér orðlengjum ekki frekar þessi neikvæðu ein- kenni ísraelstrúarinnar, en snúum oss að jákvœðu hlið- inni, því þar hlýtr auðvitað að liggja ]jósasti vottrinn um frábærleik hennar. Nœgilegt mun að gefa gætr að' þrem grundvallarhugmyndum, sem ef til vill sýna einnu liósast djúp það, sem staðfest er milli þessarrar trúar og annarra trúarbragða. 1. Vér tökum fyrst það, sem efst liggr— hugmynd- ina um einn guð. Það er í sjálfu sér stórvægilegt, ef vér gáum að öhum þeim goðafjölda, sem dýrkaðr var hvervetna annarsstaðar um víða veröld. Lítum á hin fornu trúarbrögð Babýloníu, Assyríu og Egyptalandsr eða á trúarbrögð frænda og nágranna ísraels, sem

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.