Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1910, Page 7

Sameiningin - 01.04.1910, Page 7
39 mótbáru má beita gegn ölluin kraftaverkum af manna völdum; en mótmælandi glevmir því, að bér er um guÖ að rœða, sem allt skóp og ‘öllu heldr við’, liann, ‘er öllu stjórnar með orði máttar síns’. Ekki sá'gúð, sem snið- inn er eftir manninum, hugarsmíð náttúrufrœðinga, heldr guð, sem kristnir menn trúa á samkvæmt því, scm opinberað er í biblíunni. Sé fyrir mig við guð að eiga, þá er til ónýtis fyrir mig að grennslast eftir því, hvernig hann starfar. Hann á svo sem að sjálfsögðu jafn-hœgt með að stöðva sólina á braut hennar án þess að raska náttúrunni eins og barn að stöðva Jeikhnött án þess að láta verða vatnsflóð. Svo mörg og dásamleg voru kraftaverk Jesú, að aldrei réðst neinn óvina hans á dögum jarðneskrar liolds- vistar hans í að mótmæla þeim; þá er þeir komust í ó- göngur, leituðust þeir við að gjöra guðlastandi grein fvrir þeim, þar sem þeir kváðu satan vera að reka satan út. Enn fráleitari er sú ímvndan, að slíta megi krafta- verkin út lir umbúðum þeirra í guðspjöllunum og íhuga þau út af fyrir sig. Menn gjöri eins og eg hefi gjört: Taki penna smágjörvan og svart blek og undirstriki allt það í guðspjöllunum, sem yfirnáttúrlegt er; renni síðan í snatri augum yfir blaðsíðurnar og gæti að, hve undr- um-þrungnar þær eru. Þótt ekki sé meiri rannsókn við höfð en það, þá sést þó skýrt, að eins og guðspjöllin sjálf augsýnilega liafa sérstakan tilgang livert um sig, og sýna oss líf Krists og starf frá mismunanda sjónarmiði, eins er sömu kraftaverkunum þar með ýmsu móti raðað niðr og svo frá þeim skýrt, að orðið gæti þessum megin- tilgangi til stuðnings. Kristinn maðr kemst að raun um, að guðspjöllin eigi algjörlega heima í yfirnáttúr legu andrúmslofti. Gætum allra snögg'vast að, livernig kraftaverkin eru notuð í Matteusar guðspjalli; eins og fyrsta versið sýnir kemr það rit með fagnaðarboðskapinn um hinn fyrir- heitna konung, er sendr var hingað á jörð niðr, þá er tíminn var kominn, til þess að taka hér við stjórn. Hin mikla stjórnarskrá hans — eða Magna Charta — er í 5., 6. og 7. kap. þess guðspjalls; og hafði aldrei áðr á jörðu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.