Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1910, Síða 11

Sameiningin - 01.04.1910, Síða 11
43 Hvernig stendr á því, ;ið engiu kraftaverk koma fyrir á vorum dögum? Eg veit ekki; eg get og ekki sagt, livort svo er í raun og veru; en eg trúi því, að ef þau á annað borð gjörast nú, þá hljóti þau að veitast einstaklingum þeim, sem snúa sér til föður síns og þakka honum fyrir náð hans, en fara ekki með auglýsing um það fram fyrir almenning. Satan hefir á öllum öldum verið önnum kafinn við framkvæmdir fals-undra, en þau full- nœgja hvorki skilningi né anda, sem hin sönnu undr í guðspjöllunum gjöra. Margir þeirra, sem trúa á þessi nútíðar-fyrirbrigði, er nefnd eru kraftaverk, eru með ötlu sokknir niðr í liið auma tíkamstíf sitt — það dylst mér ekki — og hinar andlegu sýnir þeirra virðast ekki til muna risa upp yfir kröfur munns og maga. Sannkristinn maðr biðr guð, er liann er sjúkr, að veita sér lækning, og hvort sem hann fær það, er hann tiefir beðið um, fyrir sýnileg með- ul eða ekki, þakkar hann drottni árangrinn, og er þess engu síðr fullvís, að það er af sérstakri náð hans, er honum er levft að lifa og halda áfram að þjóna honum. Ekki veit eg það víst, bvort það kemr enn fyrir í Kína, Tndlandi og Afríku, að menn sé haldnir illum eða óhreinum öndum, en eg get bezt trúað því, að svo sé. Og ekki þœtti mér neitt ótrúlegt, þótt svo reyndist, að síðar meir, er menn hafa aflað sér meiri þekkingar en nú, verði margir vitfirringar, sem uppi eru á vorri tíð, taklir hafa alveg samskonar sjúkleik. Mesta undrið, sem fyrir getr komið, veit kristinn maðr, er það, hve dásamleg brevting verðr við það, er mannleg sál snýst frá þjónustu satans og syndinni til Krists. í augum heiðins manns er það kraftaverk mest, er honum birtist líf Krists f lífi sanntrúaðs iærisveins hans, sem hefir þau áhrif á hann, að hann tekr að biðja ‘abba, faðir!’ „Sá, sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem eg gjöri; og liann mun gjöra meiri verk en þessi, því eg fer til föðursins.“ Kristniboðs-starfið í heiminum á vorri tíð er uppfylling þess fyrirheitis.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.