Sameiningin - 01.04.1910, Qupperneq 17
49
xnálstað þeirra borgið. Hann lætr refsidóm sinn dynja
í steypiflóði yfir syndum-spillta jörð. Hann leggr í
auðn óguðlegar borgir eins og Sódóma og Gómorra.
Hann krefst þess af Abraham, að bann „gangi fyrir sér
algjör“ (1. Mós. 17, 1). Abraham vitnar það um hann,
að dómari alls lieimsins muni gjöra rétt (1. Mós. 18, 25),
—sjá endrskoðuðu þýðinguna ensku). Með áframhald-
andi opinberun kemr það æ betr í ljós, hve órjúfanlegt
er sambandið milli trúar og siðferðis. Aldrei hefir sið
gœði verið í eins miklum hávegum haft, aldrei hefir
breytni manna verið sett eins háleitt markmið, aldrei
hafa kröfur trúar og siðferðis runnið eins algjörlega
saman í eitt, eins og í þeim lireinu og háfleygu kenning-
um, sem vér finnum í Sálmunum og hjá spámönnunum.
„Hann hef'ir kunngjört þér, maðr! livað gott sé, og hvað
heimtar drottinn annað af þér en a.ð gjöra rétt, að
ástunda kærleik og framganga í lítillæti fyrir þínum
guði?“ (Mik. 6, 8). Svona löguð trúarbrögð — svona
háfleyg í hugmyndum sínum um guð, svona nærgætin við
þarfir mannsins, svona fullnœgjandi í ráðstöfunum sín
um til frelsunar mönnunum, svona lieilög í eðli sínu,
svona himinliá í siðferðiskröfum sínum — voru vissulega
aldrei uppfundning mannlegs hyggjuvits. Þau eru
langt fyrir ofan manninn; liann getr aldrei risið svona
hátt. Jafnvel þótt hann hefði getað komizt að liug-
myndinni, þá gat liann þó aldrei leitt liana fram á sjón-
arsvið lífsins í sögulegum viðburðum, eins og gjört er í
ritningunni. (Me'ira.)
Fólkið á Indlandi.
Eftir séra Friðrik Hallgrímsson.
Indland er eitt af stœrstu ríkjum heimsins. Það
er að stœrð 1,766,597 fermílur. Ibúar en; um 300
milíónir, eða nálægt 1/5 alls mannkynsins. Landið er
því þéttbvlt mjög, — nálægt 176 manns að meðaltali á
fermílu. Ekki er allt þetta fólk af einum kynþætti kom-
ið, heldr er þar mesti aragrúi af kvnflokkum og tungu-