Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1910, Side 18

Sameiningin - 01.04.1910, Side 18
5° málum. Af því leiðir, og eins af víðáttu landsins, að crvi’tt er að segja nákvæmlega frá þj.óðum og siðvenjum í stuttu máli; það, sem er landsvenja á einum stað, þekk ist stundum ekki á liinum landsendanum; margt er þar í því efni jafn-ólíkt og í Manitoba og á Kyrrahafsströnd- inni. Ólíkum lifnaðarháttum valda líka hin gagn-ólíku trúarbrögð, sem þar eru í landi, sérstaklega aðal-trúar- brögðin: Hindúa-trú, Múhameds-trú og Búdda-trú. Kynflokkar og tungumál. — Mestr liluti þjóðarinnar er af Aría-kyni, rúmar 220 milíónir; menn af þeim kyn- flokki byggja líka metsan hluta Norðrálfu og Norðr- Ameríku. Þeir eru mest norðr og vestr í landi. Fyrir sunnan þá eru um 60 milíónir af Ðravido-Munda-kyni. TJm J2 milíónir eru þar líka af fólki af indo-kínverskum ættum, sem á helzt lieima í Nepal, Birma og Assam. — Um síðustu aldamót var talið, að á Indlandi væri töluð 185 tungumál; eru sum þeirra að eins mállýzkur. Út- breiddast þeirra er liindústaní, sem nálægt 100 milíónir tala. Enska er stjórnmálið og mál hinnar œðri mennt- unar, og breiðist mjög út; margt af menntuðu fólki inn- lendu er farið að nota hana í daglegu tali. IÁkamleg og andleg atgervi. — Indlandsbúar eru mjög ólíkir í sjón, og veldr því ólíkt þjóðerni og loftslag. Aríar eru brúnir á hörund, meðalmenn á hæð og svart- hærðir; þeir, sem norðar búa, eru yfirleitt meiri hreysti- menn en þeir, sem sunnar búa. Dravidar eru dökkir á hörund, langleitir og ófríðir, stuttir og digrir. Austr í landi evu menn Ifkir Kínverjum. Út í Andaman-eyjum eru villimenn, ekki ólíkir dvergunum í Mið-Afríku. — Indverjar eru neyzlugrannir menn, en samt ótrúlega þolnir; en að afli og' skerpu er Ameríku-maðr talinn 6 manna maki, borinn saman við þá. Mikill munr er líka á andlegu atgervi fólksins á Indlandi; en yfir höfuð að tala stendr það í því efni ekki að baki neinni annarri ókristinni þjóð. Tamil-menn eiga þar mestar og beztar bókmenntir, og Bengals-menn eiga 14,000 nemendr á œðri skólum (colleges) í Caleutta. En eitt er einkenni legt við gáfur Indverja : þá vantar allan frumleik. Aldrei finna þeir upp neitt nýtt; búnaðar-verkfœri þeirra og

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.