Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1910, Page 29

Sameiningin - 01.04.1910, Page 29
6i ■ svo sem þurfti, horfði hann framan í tríbúninn og tók til ® máls: „Mér var kennt um, að eg hefði gjört tilraun til aS veita Valeríus Gratus landstjóra banatilræði." „í?ú!“ — sagði Arríus hátt, enn þá meir forviða, og lirökk undan lítið eitt. — „Þú sá morðingi! Sú saga kvað við í Róm hátt og lágt. Hún kom til mín, þegar eg var á skipi mínu yið Lodínum.“ Þeir horfðu hvor á annan þegjandi. „Eg hugði Húrs ætt upprœtta af jörðinni“ — mælti Arríus, er hann rauf þögnina. Angrblíðar endrminningar komu streymandi fram úr djúpinu í sál hins unga manns og báru karlmennsku-lund hans ofrliði. Það tindruðu tár á kinnum hans. „Móðir mín, — hún móðir mín! Og Tirza litla, elsku- systir mín ! Hvar eru þær? Herra tríbún ! Göfugi tribún ! Ef þú veizt nokkuð um bær“ — hann knýtti hendr sinar fast saman til fyrirbœnar—, „þá segðu mér allt, sem þú veizt. Segðu mér, hvort þær eru á lífi, og, ef þær eru lif- andi, hvar eru þær? Og hvernig líðr þeim? Ó, eg bið, segðu mér það.“ Hann fœrði sig nær Arríusi, svo nálægt honum, að hendr hans snurtu skikkju tríbúnsins, þar sem hún hékk niðr frá handleggjunum krosslögðum. „Þrjú ár eru liðin frá hinum hræðilega degi“ — hélt liann áfram, — „þrjú ár, herra tríbún! og hver stund þeirra ára eins og æfilöng eymd, — og alla þessa tíð ekki eitt orð frá neinum, hvorki hátt né lágt. Ó, ef vér að eins gætum sjálfir gleymt, þegar oss er gleymt! Gæti eg að eins byrgt fyrir augun, svo eg sæi ekki þá sjón, þegar systir mín var frá mér slitin og móðir mín leit til mín í síðasta sinn! Eg hefi fundið drepsóttina anda á mig og skipið engjast sundr og saman i orrustu. Eg hefi heyrt storminn lemja sjóinn, hlæjandi. þegar aðrir voru biðjandi. Dauðinn hefði verið niér frelsan. Beygja árina, — já, beita allri orku til þess, ef verða mætti, að skuggamyndir þeirra atburða, er gjörð- ust þann dag, hætti að elta mig. Hugsa um það, hve lítið getr orðið mér að liði. Segðu mér, að þær sé dánar, ef svo er, því ekki getr þeim liðið vel eftir að eg em týndr. Eg hefi heyrt þær kalla á mig á nóttu. Eg hefi séð þær gang- andi á sjónum. Ó, ekkert er eins satt og ást móður minn- ar! Og hún Tirza — eins og angan hvítrar lilju var and- ardráttr hennar. Hún var yngsta pálmaviðargreinin — svo blómleg, svo viðkvæm, svo yndisleg, svo fögr! Hennar vegna var mér dagrinn stöðugr morgun. Þegar hún kom * og þegar hún fór, þá var í því hljóðfœrasláttr. Og mín $

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.