Sameiningin - 01.07.1911, Side 7
135
Þórðarson, Tryggvi Ingjaldsson, P, Stefán GuSmunds-
son, Mrs. Guðrún Briem, C. B. Jónsson, Björn Walter-
son, Olgeir Friðriksson, Mrs. María Sigurðsson, Krist-
ján Johnson, Þorleifr Þorvaldsson, Guðmundr K. Breck-
man, Guðjón Finnsson, Gísli Egilsson, Jónas Samson,
Gunnar Jóhannsson, Indriði Skordal, Tómas Halldórs-
son, A. J. Björnsson.
Enginn munr.
Eftir séra N. Steingrím Þorláksson.
Oft hefir kveðið við í tjaldbúðum „modernistanna' ‘
(nýtízkumannanna), að með hinni nýju guðfroeða-stefnu
væri ekkert breytt til að efni, heldr aðeins að formi.
Ekki væri annar kristindómr fluttr, heldr búningi lians
ögn breytt, til þess að hann yrði sldlinn betr af mönnum
vorrar aldar og ætti erindi til þeirra. Barizt væri gegn
„kreddum“ og „bókstaf“, og ófrelsi því, sem ávallt sé
samfara allri bókstafs-dýrkun.
Margr hefir í ógáti látið glepjast á slíku hjali, og
trúað því, að um engan efnis-mun væri að rœða. Ekki
ólíklegt, að orðin „kredda“ og „bókstafr“, sem veifað
liefir verið, liafi átt sinn þátt í þv\. Það eru grýlur,
sem má liræða á. Ef kenningar eru merktar þeim
nöfnum, þá eru þær um leið brennimerktar í augum
fjölda fólks. Þetta vita nýunga-menn vorir. Það mun
þó ekki vera þess vegna, að þeir liafa orðin svo á tak-
teinum?
Þegar vér, menn gömlu stefnunnar, heyrum þessu
dreift, að um form eða búning sé aðeins að rœða, en
engan veru-mun — það sé aðeins missýning og ljósfælni
vorri að kenna, þegar vér staðhœfum annað—, þá finnst
oss það ekki einleikið. Oss finnst ekki þar muni af ein-
lægni mælt; því oss finnst, að menn, sem með oss hafa
verið og barizt hafa af alúð fvrir stefnu þeirri, sem vér
enn fylgjum, ætti að þekkja hana betr en ummæli þeirra
nú virðast benda tih Þeir ætti, finnst oss, að skilja
sjálfa sig og stefnu þá hina nýju, sem þeir hafa lent