Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1911, Side 17

Sameiningin - 01.07.1911, Side 17
145 því, sem Jesús segir nm baráttu þá, er liggi á leið krist- inna manna, bann liikar sér ekki við að ganga í kristinn söfnuð, þótt þar sé ófriðr. Hann lítr á allt stríðið útaf málefni trúarinnar í söfnuðinum sem kross, er hann hafi heilaga skyldu til að bera. Mannfélagið alJt er fullt af erviðleikum. Hví skyldi þá safnaðarlífið vera einsog sléttr vegrf Jesús Kristr hefir lagt líf sitt í sölurnar fyrir þig, og þú vilt ekki þola svolitla erviðleika í félagslífinu fyrir hann! Mér er ómögulegt að vinna rneð safnaðarfólkinu. Söfnuðrinn er víst svo vondr. að þú vilt ekki vera með slíku fólki. Margt má með réttu að safnaðarfólki finna. Sumt af ]>ví er léttúðugt, sumt drottnunargjarnt og margt fleira má finna því til foráttu. Setjum svo, að þú sért laus við þessa galla; setjum svo, að þú sért stað- fastr, sannkristinn maðr; livern rétt liefir þú þá til að svifta málefni drottins í söfnuðinum öllum þeim styrk, sem slík einkeuni gæti veitt því ? Hvenær hefir guð í heilögu orði sínu gefið þér rétt til að grafa pund þitt í jörðu? I’rammi fvrir guði verðr þú að gjöra grein fyrir því, livað þú hefir fyrir þig að bera, er þú neitar því að leggja málefni lians lið. Vel getr verið, að sökum ýmsra erviðleika í safn- aðarstarfinu fari bezt á því, að sumir jnenn leggi niðr embætti, en að fara úr söfnuðinum er allt annað mál. Ef þú liugsar meira um Jesúm Krist en sjálfan þig og reynir fyrir hans sök að lenrpa lund þína, og ef þú leitast ávallt fremr við að sjá það lijá mönnum, sem gott er, en að einblína stöðugt á galla þeirra, þá veit eg, að þú getr unnið að kristindómi með safnaðarfólkinu. Var- astu að kenna safnaðarfólkinu um það, sem kann að vera syndsamlegr geðbrestr hjá sjálfum þér. Söfnuðrinn hefir prest, sem ekkert hrífr mig. Þessi ástœða er víst, að þínu áliti svo sterk, að henni verði ekki svarað; því þér er allt of gjarnt til að hugsa, að söfnuðrinn sé til aðeins fyrir prestinn, og ef prestrinn bilar, Imgsar þú, að söfnuðrinn sé til einskis. Þú liugs- ar þér, að söfnuðr sé stofnaðr aðeins til þess að hafa

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.