Litli Bergþór - 01.12.1992, Síða 12
Skyggnst um á Kjalvegi..frh.
Brunnárlækir renna í Hvítá. Þar heitir Skógarhorn.
Rétt norðan við Sandána liggur vegur til vesturs að
Hagavatni. Hann liggur norðan við Sandvatnið
uðppá Sandvatnshlíðina. Það er allbrött melbrún,
sem liggur frá norðri til suðurs, að mestu leyti
gróðurlaus nema hvað syðst eru nokkrar grastorfur
og má þar sjá leifar af birki og stöku sinnum blæs þar
ofanaf gömlum kolagröfum. Þarna hefur vafalaust
verið skóglendi. Sagan segir að Skálholt hafi átti þar
skógarhögg.
Næst liggur leiðin uppúr Sultarkrikanum í stefnu á
Bláfell. Til beggja handa eru grýttir melar. Hér hefur
verið unnið merkilegt tilraunastarf í landgræðslu án
þess að leggja í kostnað við girðingar. Að því hafa
staðið Biskupstungnahreppur, Landgræðslan og
fjáreigendur. Á þetta svæði hefur verið sáð áburði
og fræi. Landið er opið fyrir fé, sem kemur af afrétti
þegar hallar sumri.
Horft til Bláfells úr Sultarkrika.
Við hækkum smátt og smátt í landinu. Hvítáin
rennur á hægri hönd. Hér koma vegamót Til
skamms tíma lá vegurinn niður í það sem heita
Brunnalækir, en nýlega hefur verið valin önnur leið
og er þá haldið til vinstri eftir greiðfærum melöldum í
stefnu á Bláfellsháls. Fljótlega hallar niður í breiðan
og mikinn vatnsfarveg sem í er allmikið vatn í
leysingum.
Ef við lítum til norðurs og norðvesturs má segja að
svæðið sé einn grjótapall, vestan frá Jarlhettum, ofan
frá Langjökli og austur í Bláfellsháls. Þetta svæði
heitir einu nafni Skálpanes. Af þessu svæði er
geysimikið vatnsrennsli í leysingum og rigningatíð og
lendir stór hluti af því í farveginum sem við erum að
koma að. í leysingum hafa myndast djúp gil og þrjú
þeirra vildi ég nefna. Eitt kemur frá norðvestri og
heitir Hellisgil. Þar er allmikill hellisskúti, og má þar
sjá gömul mannvirki þar sem hlaðinn hefur verið fyrir
skútann veggur til að loka honum að hluta til. í
þessum helli voru menn stundum nætur í
smalamennskum. Kaldur næturstaður það. Nokkru
austar er annað gil sem Valagil heitir og svo þriðja
gilið Kórgil eða Kór, mikil náttúrusmíð með háum
hamraveggjum. Trúlega vatnsfarvegur ofanaf
Bláfellshálsi. Vel þess vert fyrir ferðamanninn að
skoða sig þar um. Eitt gil getum við nefnt ennþá.
Það kemur frá austri ofanúr Bláfelli og hefur ýmist
verið kallað Hálsgil eða lllagil. Þessi gil sameinast öll
og renna niður í Hvítá og eru þá búin að fá nafnið
Grjótá.
Næst er að dóla upp Bláfellshálsinn. Það er all
bratt til að byrja með en uppá há hálsinn komumst
við og erum þá komin í 610 metra hæð. Við höldum
norður háhálsinn, stöldrum aðeins við þar sem er
geysimikil grjótvarða og er allavega stærsta varða á
Kjalvegi. Sá sem punktar þetta niður átti leið hér yfir
hálsinn áður en hafist er handa við að gera bílfæra
braut hér upp á Kjalarsvæðið. Þá var örlítið
vörðubrot hérna á melbrúninni. Vegamennirnir, sem
voru hér að verki að ryðja bílbrautina, voru búnir að
Ijúka sínu sumarverki og skyldi bíða til næsta sumars
að halda verkinu áfram. Þá voru sumir mannanna
orðnir á slitnum skóm og stígvélum. Þótti einum
vinnufélaganna ekki borga sig að fara með sína skó
til byggða og fleygði þeim í vörðubrotið sem var
þarna á melnum og fannst nauðsynlegt að hressa
vörðuna við. Það var ungur námsmaður er átti
þessa umtöluðu skó, sem geymast þarna undir
vörðunni. Hann varð seinna landskunnur maður
Eiríkur J. Eiríksson, um árabil þjóðgarðavöðrður á
Þingvöllum. Síðan er liðin meira en hálf öld. Margir
hafa átt leið hér um. Útsýnið sem opnast hér norður
á Kjalarsvæðið býður uppá að hér sé stansað og litið
yfir landið. Þá verður mörgum á að bæta steini í
vörðuna.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
Heimasími 98-68845
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Verkstæði sími 98-68984
LAUGARÁSI, BISKUPSTUNGUM Bílasími 985-37101
Litli - Bergþór 12