Litli Bergþór - 01.12.1992, Blaðsíða 13
Slysavarnastarf í Biskupstungum
Megináhersla, í starfi félagsins undanfarið, hefur
verið að reyna að koma sér upp húsnæði eða
aðstöðu yfir félagsstarfið, enda er það forsenda þess
að mögulegt sé að starfa vel og á þann hátt sem
tilgangur slysavarnastarfs er. Húsnæði er nauðsyn
til þess að hægt sé að geyma eigur félagsins og
búnað félagsmanna í góðri geymslu og tiltæk þegar
þörf er á til leitar og björgunarstarfa. Einnig er gott
að hafa aðstöðu fyrir félagsmenn til að gera við tæki
sveitarinnar og sömuleiðis til fundarhalda og annars
félagsstarfs.
Nú er húsbyggingarstarfið nokkuð á veg komið.
Búið er að taka grunn og steypa sökkla að skemmu.
Nú er verið að mála og ryðverja stálbita og er það
langt komið en síðan þarf að reisa húsið, klæða það
og gera fokhelt. Nóg er sem sagt enn að gera fyrir
vinnufúsar hendur. Félagið mun fá hluta af þessari
byggingu til sinna nota. Þetta er stálgrindarhús á
steyptum grunni 480 fermetra, sem skiptist í þrjá
hluta. 137 fermetrar verða fyrir Slysavarnadeild og
björgunarsveit. 205 fermetrar fyrir slökkvilið
Biskupstungnahrepps og 137 fermetrum er
óráðstafað.
Sveitarfélagið hefur stutt Slysavarnadeildina og
veitt fjármagn til starfs hennar og fyrir þann stuðning
erum við þakklát. Sveitarfélagið er eignaraðili þeirrar
byggingar sem nú er verið að reisa.
Slysavarnamenn langar aftur á móti að byggja sinn
hluta hússins með sjálfboðavinnu og heita enn á alla
félagsmenn og velunnara að leggja því málefni lið.
Sem dæmi um annað starf félagsins má nefna að í
haust fóru félagsmenn í samvinnu við aðra
björgunarsveitarmenn, meðal annars Reykvíkinga, á
Bláfell með rafgeyma í fjarskiptatæki, sem þar eru,
og koma snjósleðamönnum og öðrum
vetrarferðalöngum að góðu gagni.
Bíll var fastur við Hagavatn og
björgunarsveitarmenn fóru honum til hjálpar.
Snemma sumars var leitað að flugvél sem týndist.
Þann 21. nóv. var sameiginleg æfing
björgunarsveita sýslunnar í Þorlákshöfn. Auk þess
hafa einhverjir félagar farið á skyndihjálparnámskeið
sem haldið var í Árnesi.
Á miðju sumri voru sett upp skilti við allar þær ár á
afréttinum, sem óbrúaðar voru. Þessi skilti eru þáttur
í landsátaki til slysavarna og eru með aðvörunum og
leiðbeiningum um hvers menn skuli gæta þegar þeir
leggja í straumvötn.
Til fjáröflunar hafa verið settir upp dósakassar á
nokkrum stöðum í sveitinni og auk þess vinna
björgunarsveitarmenn við dyravörslu á samkomum í
Aratungu.
Formaður í deild Slysavarnafélagsins í
Biskupstungum er Svavar Sveinsson, Ólafur
Ásbjörnsson er gjaldkeri og Þórarinn Þorfinnsson
ritari en Jakob Narfi Hjaltason er varamaður í stjórn
og gegnir störfum ritara í fjarveru hans. Hjalti
Ragnarsson er formaður slysavarnasveitar og Helgi
Jakobsson varamaður hans. Félagar eru nálægt 70.
Ritari.
SUNNLENDINGAR!
,VIÐ ERUM
A SVÆDINU
TUDOR
RAFGEYMAR
ÁrtiAank'nir
viA
allar aðstæður
Haf-stæ/) verfl
ÖLL DEKKJA-
ÞJÓNUSTA
NÝOGSÓLUÐ
DEKKAFÖLLUM
STÆRÐUM
OG GERÐUM
SÓUMNGr
Austurvegi 58, Selfossi, simi 22722
Litli - Bergþór 13