Litli Bergþór - 01.12.1998, Blaðsíða 7

Litli Bergþór - 01.12.1998, Blaðsíða 7
Hreppsnefndarfréttir Kynnt bréf Sigurlaugar Angantýsdóttur 29. 7. 1998 til Vegagerðar um umbætur á veginum í gegnum Laugarás með tilliti til umferðaröryggis. Bréf félagsmálaráðuneytisins, dreifibréf til allra sveitarfélaga um álagningu fasteignagjalda á gististaði. Kynnt og starfsfólki falið að samræma álagningu gististaða. Dómur Héraðsdóms Suðurlands. Mál höfðaði Hrefna Markan Harðardóttir Einholti I, Bisk. gegn Biskupstungnahreppi þar sem henni var synjað um kennarastöðu við Reykholtsskóla 1997. Dómurinn hljóðaði upp á að Biskupstungnahreppur greiði henni 900 þús. í bætur auk vaxta frá stefnubirtingardegi, þar að auki 250 þús. í málskostnað. Oddvita falið að kanna og meta framhald málsins í samráði við lögfræðing Sambands ísl. sveitarfélaga. Firmakeppni Loga. Formaður hreppsráðs ákvað að taka þátt í keppninni fyrir hönd Sundlaugar, Farfuglaheimilis, Aratungu og Biskupstungnahrepps. Aratunga hlaut bikar í keppninni til varðveislu næsta árið. Erindi frá umferðaröryggisfulltrúa Suðurlands þar sem hann óskar eftir að við bönnum lausagöngu búfjár á vegum og huga að skyldum hreppsfélagsins í þessu efni. Akveðið að vísa málinu til samgöngunefndar. Lögð fram frumáætlun að virkjun Hrútár, erindi frá Gunnari Hafsteinssyni rafvirkjameistara. Hreppsráði finnst hugmyndin áhugaverð en mælir með að hugmyndin verði unnin áfram og þá í samræmi við skipulag svæðisins. Hreppsráð minnir á að hugsanlegar framkvæmdir eru á viðkvæmu svæði og því beri að hafa fyllstu aðgát. Hreppsnefndarfundur 11. ágúst 1998. Tillaga Páls Skúlasonar um sameiningarmál. Páll dró tillögu sína til baka og lagði fram aðra tillögu svohljóðandi: Hreppsnefnd samþykkir að sœkja fund að Flúðwn þann 3. september tilfrekari viðræðna um sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykktu sameiningu í kosningunum 27. júní 1998. Hreppsnefnd telur, að þar eð sameining var samþykkt með miklum meirihluta í 4 hreppum: Biskupstungnahreppi, Hrunamannahreppi, Laugardalshreppi og Þingvallahreppi sé eðlilegt framhald að þessir hreppar taki upp viðræður um sameiningu nú á haustmánuðum með það að markmiði að unnt verði að kjósa um sameiningu þeirra samhliða Alþingiskosningum nœsta vor. Tillagan var felld með sex atkvæðum gegn einu. Bjarni Kristinsson og Pétur Skarphéðinsson voru kosnir fulltrúar í bókasafnsnefnd. Osk um stuðning vegna heimsóknar danskra skólabarna til Reykholtsskóla. Sveinn A. Sæland og Páll Skúlason viku af fundi vegna tengsla við málið. Hreppsnefnd samþykkti fjárveitinguna en vænti þess að kostnaði verði haldið í lágmarki. Erindi Sigurlaugar Angantýsdóttur varðandi vegamál í Biskupstungum, götulýsingu og leikvöll í Laugarási er vísað til hreppsráðs. Hreppsráðsfundur 8. september 1998. Tillaga að gjaldskrá fyrir leikskólann 1998-1999: Fyrir vistun alla 5 daga vikunnar: kl. 9-17 kr. 20.500 á mánuði kl. 9-12 kr. 7.700 kl. 9-13 kr. 12.500 kl. 13-17 kr. 10.100 Fyrir vistun 3 daga vikunnar: kl. 9-17 kr. 13.400 kl. 9-13 kr. 7.700 kl. 9-12 kr. 4.600 kl. 13-17 kr. 6.300 Systkinaafsláttur og afsláttur fyrir einstæða foreldra verður 25%. Ef dagur verður lengdur til 17:30 þarf að breyta gjaldskrá samsvarandi því. Hreppsráð staðfestir þessa gjaldskrá auk þess verður heimilt að koma með bömin 8:40 að morgni og vera lengur á daginn en greitt verður kr. 130,- fyrir hvern fjórðung sem bam er lengur en getið er um í gjaldskrá seinni part dags. Umsókn Vegagerðar um framkvæmdaleyfi á uppbyggingu vegar með bundnu slitlagi frá Úthlíð að Múla (Laugarvatnsvegar) nr. 37 og töku á efni til verksins. Leyfið afgreitt. Kaupsamningur vegna Norðurbrúnar, þar sem Svanhildur Eiríksdóttir og Gísli G. Guðmunsson selja Bergrósu Gísladóttur og Hermanni Guðmundssyni. Hreppsráð leggur til að neyta ekki forkaupsréttar. Bréf frá Landgræðslu ríkisins. Þar sem farið er fram á samstarf um forðagæslu og eftirlit með beitarálagi vegna breyttra laga um búfjáreftirlit þar sem skýrt er kveðið á um að búfjáreftirlitsmaður skal einnig fygljast með beitilandi í byggð á starfssvæði sínu. Oddvita falið að kynna málið fyrir forðagæslumönnum. Tillaga vegna vegamála í Biskupstungum, kannað er hvort hreppsfélagið taki að sér framkvæmd á uppbyggingu og viðhaldi safnvega. Hreppsráð telur að best sé að framkvæmd sé í höndum Vegagerðar en ákörðun um framkvæmdir og framkvæmdaröð sé í höndum hreppsnefndar eins og verið hefur en ástæða er til að fyrir hendi séu skýrar reglur um framkvæmd heflunar og snjómoksturs. Um götulýsingu í Laugarási. Á fjárhagsáætlun er ætluð 1 milljón í götulýsingu en komið hefur tilboð í að setja götulýsingu á Skúlagötu og Ásholtsveg (Dunkabraut) fyrir 1,25 milljónir. Hreppsráð samþykkir að því tilboði verði tekið. Um leikvöll í Laugarási. Þar sem lagt er til að rekstraraðilar tjaldstæða í Laugarási leggi til viðhald á leiktækjum og leikvelli. Hreppsráð telur það eðlilegt svo framarlega sem tjaldsvæði verði samþykkt á væntanlegu deiliskipulagi. Samningur milli Svæðisvinnumiðlunar Suðurlands og Biskupstungnahrepps þar sem ákveðið er Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.