Litli Bergþór - 01.12.1998, Side 8
Hrepp snefndarfréttir
að Biskupstungnahreppur sjái um atvinnuleysisskráningu
en Svæðsvinnumiðlun um vinnumiðlunarþáttinn.
Hreppsráð samþykkir samninginn.
Bréf náttúruverndar ríkisins þar sem forstjóra er
falið að kanna við Biskupstungnahrepp hvort grundvöllur
sé fyrir yfirtöku hreppsins á umsjón og rekstri
friðlandsins við Gullfoss. Hreppsráð samþykkir að
ganga til þessara viðræðna.
Borist hefur umsögn skipulagsnefndar miðhálendis
íslands um athugasemdir við skipulagstillögu
miðhálendisins upp á 33 blaðsíður. Umsögnin er til
kynningar á skrifstofu oddvita. Afgreiðslu vísað til
hreppsnefndar.
Hreppsráð stefnir að því að frá og með áramótum
sjái skrifstofa Biskupstungnahrepps um útreikning launa
kennara og álagningu fasteignagjalda. Kostnaður 1997
v/álagningar fasteignagj. 175.745,- v/útreikninga
kennaralauna 69.120,-.
Hreppsráð gerir að tillögu sinni að kennurum verði
greiddar 100 þús. kr. á ári miðað við fullt starf, greitt
verði 1/2 í des, 1/2 í maí. Þetta á við um kennara sem
ekki búa í húsnæði á vegum Biskupstungnahrepps.
Bensínstyrkur fellur þar með niður.
Hreppsráðsfundur 15. september.
Sigurlaug Angantýsdóttir sat fundinn í stað Margeirs
Ingólfssonar.
1 mál á dagskrá, ráðning sveitarstjóra. Margeir sat
ekki þennan fund vegna tengsla við umsækjanda um
sveitarstjórastarfið. Auglýst hafði verið í dagblöðum.
Alls bárust 34 umsóknir. Hreppsráð valdi 6
umsækjendur til frekari skoðunar, reynt var að kanna
þeirra feril og í framhaldi af því voru þeir
kallaðir í viðtal. Þessir sex voru:
Guðmundur Kr. Jónsson
Vallholti 38, Selfossi.
Ragnar S. Ragnarsson
Ásvallagötu 46, Reykjavík.
Ásborg Amþórsdóttir
Kistuholti 17, Biskupstungum.
Björn Nielsson
Birtingakvísl 64, Reykjavík.
Björn Hermannsson
Arbakka 1, Laugabakka, Miðfirði.
Gylfi Þ. Gíslason frá Kjarnholtum, Bisk.
Við nám í Skotlandi.
Eftir ítarlegan samanburð og viðtöl
ákveður hreppsráð að gera tillögu um að Ragnar Sær
Ragnarsson, Ásvallagötu 46, Reykjavík verði ráðinn
sveitarstjóri í Biskupstungum.
Hreppsnefndarfundur 15. september 1998.
Tillögur komu frá Öglu Snorradóttur,
svohljóðandi: „Eg legg til að oddvita verði falið að
kanna þá möguleika að taka allt húsið sem leikskólinn er
íþ.e. „skápurinn“ og íbúðin við hliðina á, til afnotafyrir
leikskólann. I þeirri könnun felist kostnaður
sveitatfélagsins við rekstur hússins, kostnaður við
6 valdir en 28
óvaldir.
breytingar sem henta leikskólarekstri og möguleika
leikskólans á nýtingu plássins. Viðkomandi tillögur verði
lagðar fyrir hreppsnefnd fyrir áramót til umrœðu. “
Tillögurnar voru samþykktar.
Viðbótarskýring um kaupauka kennara:
Miðað við 100 þús. eingreiðslu á ári verði greidd fyrir
hlutastörf í réttu hlutfalli við kennslumagn.
Leiðbeinendur njóta ekki þessarar eingreiðslu.
Desembergreiðsla greiðist fyrir ágúst - des. og
maígreiðsla jan. -júlí.
Kosning 3 fulltrúa á aðalfund SASS. Ákveðið er að
Sveinn Sæland, Margeir Ingólfsson og Margrét
Baldursdóttir verði fulltrúar hreppsnefndar á
aðalfundinum.
Erindi Snæbjarnar Magnússonar Iðufelli.
Hreppsnefnd ákveður að leigja Snæbirni Magnússyni
viðbótarland.
Kynnt var staða mála vegna aðalskipulags í
Biskupstungum. Samþykkt var að koma á fót vinnuhóp
um skipulagsmál í Reykholti og Laugarási og fela
oddvita að skipa nefndarmenn á hvorum stað.
Gjaldskrá húsaleigu aldraðra. Ákveðið er að
hækka húsaleigu minni íbúða í kr. 5.000,- á mánuði og
stærri íbúða í kr. 10.000,- á mánuði. Leigan verði
endurskoðuð árlega og miðist við vísitölu neysluverðs.
Gjaldskrá mötuneytis í Aratungu. Samþykkt var
að hækka gjald vegna skólamáltíða grunnskólanema í kr.
180,- á máltíð.
Ráðning sveitarstjóra. Hreppsnefnd staðfestir
fundargerð hreppsráðs og samþykkir ráðningu Ragnars S.
Ragnarssonar í starf sveitarstjóra með fimm samhljóða
atkvæðum.
Álagning fasteignagjalda vegna aldraðra og
öryrkja. Ákveðið er að fella áfram niður fasteignagjöld
á íbúðarhúsnæði aldraðra en vísa umfjöllun um álagningu
fasteignagjalda á öryrkja til hreppsráðs.
Hreppsráðsfundur 6. okt.1998.
Ragnar S. Ragnarsson sveitarstjóri var boðinn
velkominn til starfa.
Skýrsla samgöngunefndar um ástand girðinga
með vegum sem eru með bundnu slitlagi í sveitinni. Þar
kemur fram að víða er viðhaldi ekki sinnt sem skyldi.
Því er beint til samgöngunefndar að ræða við Vegagerð
um að klára gerð girðinga og hliða með vegum sem hafa
bundið slitlag, og boða landeigendur til fundar í
framhaldi af því og skipuleggja framhald verksins.
Fundargerð fundar sveitarstjórnarfulltrúa v/
sameiningarviðræðna. Niðurstaða þessa fundar var
eftirfarandi tillaga sem var samþykkt: Fundur
sveitarstjórna Þingvalla, Laugardals, Biskupstungna og
Hrunamannahrepps, sem samþykktu sameiningu í
sameiningakosningum s.l.vor, haldinn á Flúðum 3. sept.
1998, lýsir fullum vilja á áframhaldandi viðræðum sem
leiða munu til sameiningar á kjörtímabilinu. Ákveður
fundurinn að næsti fundur verði haldinn fyrir lok mars-
mánaðar 1999 og mun oddviti Biskupstungnahrepps
Litli - Bergþór 8