Litli Bergþór - 01.12.1998, Síða 19

Litli Bergþór - 01.12.1998, Síða 19
og er að það litla sem við sáum af þessari borg þennan dag bauð af sér góðan þokka. Þeir eru farnir að taka upp á því þama að skikka langferðabifreiðar til að leggja óravegu frá miðborginni og var tækifærið þarna nýtt til að teygja úr sér á hressilegri gönguferð. í fjarska sást í turn dómkirkjunnar og að sjálfsögðu var ferðinni heitið þangað. Dómkirkjan eru nú bara kapítuli út af fyrir sig. Fegurð hennar, stærð, umhverfí og ævafornt klukkuspil. Allt átti þetta sinn þátt í að hún stendur upp úr þessum degi í Strassbourg. Fólkið tók sér ýmislegt fyrir hendur þarna, hver fór í sína áttina, sumir fóru í siglingu á ánni 111, aðrir mældu göturnar, enn aðrir heimsóttu stórverslanimar eða útimarkaðina og það voru meira að segja dæmi um einhverja sem fóru á síður siðsama staði í jólagjafaleit. Hver flýgur eins og hann er fiðraður, eins og þar stendur. torfhleðslan, áminningin, musterið Eftir heimsóknina til borgarinnar skruppum við heim til Barr þar sem beið okkar eftirrétturinn frá því kvöldið áður, og síðan var haldið sem leið lá til þorpsins Epfig. Heimsóknin þangað hófst með því að við komum í kirkjuna. Ekki verður annað sagt en að hún hafi komið gestunum umtalsvert á óvart. Hún er ævaforn, frá 11. öld að mig minnir, og mjög ólík öðrum þeim kirkjum sem við höfðum áður séð í ferðinni og má með sanni segja að þær hafi ekki verið svo ýkja fáar. Eg vil jafnvel ganga svo langt að þegar þarna var komið hafi mátt segja að sérfræðingar um byggingarlist og búnað kirkna í Þýskalandi og Frakklandi, hafi verið á ferð. Þetta segi ég til að leggja áherslu á séreinkenni kirkjunnar. Ef ég ætti að skella einhverju fram væri það helst það að meðal þeirra byggingarefna sem mest voru áberandi í kirkjunni voru hauskúpur og til að þétta hauskúpuvegginn voru notuð önnur mannanna bein. Þetta var svona nokkurs konar torfhleðsla úr mannabeinum. Torfveggir - beinveggir. Um tilurð þessarar hleðslu fengust fá svör. Eitthvað var franska byltingin nefnd, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti. Auðvitað má líta á þennan vegg sem áminningu til okkar mannanna um hversu litlu máli við skiptum hver um sig í sköpunarverkinu. Við erum bara örlítið brot af vegghleðslunni á þessari jörð. Við eigum ekki að gera okkur of háar hugmyndir um okkur sem hluta af því lífi sem á jörðinni er. Við skiljum síðan líkamann eftir héma niðri en göngum að öðru leyti inn í musterið. Andinn hverfur úr einu musteri og í annað. Eg er viss um að þarna gefast margir möguleikar á efni í góða prédikun. rausnin, lofræðurnar Perla, formaður segir svo frá: „Þannig var að Elísabet, fararstjóri okkar í Barr stundar það að versla á mörkuðum og hitti þar konu sem hún keypti hjá egg. Hún fór að segja þessari konu, sem hún reyndar þekkti ekki neitt, að hún ætti von á kór frá Islandi. Konan sagði henni bara um leið að koma með kórinn í heimsókn til sín, og þar með var það ákveðið. Þau tóku á móti okkur af þvílíkri rausn. Amma, afi, frænka, frændi, mamma, pabbi og Makakórinn undir stjórn Hófíar. litlu börnin. Þar var vínsmökkun: einar átta tegundir, brauð, pylsur og margt fleira.“ Heimsókn okkar til þessarar ágætu fjölskyldu var undra vel heppnuð, en að henni lokinni var haldið á hótelið þar sem lokasamkoman var haldin. Og enn er það Perla, formaður sem fær orðið: ,,....þar sem áhangendur (eins og þau vildu kalla sig) og makar héldu lofrœður hver íkapp við annan “. Sameinaður maka- og áhangendakór söng þjóðlega söngva og allir voru góðir vinir. fímmtudagurinn, 8. október hamskiptin, tiltækið, vöruvagnarnir, vopnið Þessi hluti ferðarinnar var tími umskipta. Svona eins og þegar lirfa er að breytast í púpu. Lirfan er búin að éta fylli sína af grængresinu og er tilbúin í næsta þroskastig, púpustigið, þar sem hún síðan býr sig undir að verða að fögru fiðrildi, sem flögrar um loftin blá, gefandi af sér fegurðina. Eigum við ekki bara að halda því fram að Skálholtskórinn hafi með þessu tiltæki sínu verið að sluðla að því að auka við fegurðina í mannlífínu hérna uppi á Islandi. Aksturinn til Frankfurt er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Fólkið fór dálítið inn í sig í hugsanir sínar. Varþað ekki þessi blanda söknuðar og tilhlökkunar sem allir kannast við þegar komið er að ferðalokum? Það síðasta sem við sáum að Úlfur og Gisli á bakvið. meginlandi Evrópu þennan dag var malbikið á flugvellinum nokkrir vöruvagnar og einmana miðaldavopn, vafið í pappír. Vopnið átti að vera hluti af farangrinum í vélinni sem var á norðurleið, til landsins nyrst í Atlantshafínu, þar sem skammdegið var að setjast að, en það fór hvergi. Hvar það er nú veit undirritaður ekki á þessari stundu. Litli - Bergþór 19

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.