Litli Bergþór - 01.12.1998, Page 27
Frá íþróttadeild U.M.F.B
í sumar
Á sl. sumri stóð
Iþróttadeildin fyrir svipuðum
æfingum og undanfarin
sumur. Frjálsar íþróttir,
fótbolti og sundnámskeið
fyrir yngstu krakkana, auk
hins hefðbundna
leikjanámskeiðs á vegum
HSK. En núna bættust við
sundæfingar, sem ekki hafa
verið í nokkur ár, svo og
fótbolti fyrir stelpur og
frískar konur, sem hún Rut í
Daltúni tók að sér.
Laugardaginn 6. júní
var fjölskyldudagur Iþróttadeildar haldinn í fyrsta sinn.
Þá buðum við öllum sem höfðu æft íþróttir veturinn áður
og ætluðu að æfa um sumarið, upp í Haukadal. Þar
fórum við í ratleik og grilluðum pylsur. Það er gaman að
koma svona saman og leika sér, en það hefðu fleiri mátt
mæta.
I vetur
Vetrarstarfið er nú komið á fulla ferð og virðist
vera mikill áhugi fyrir íþróttum. Mér finnst lrklegt að
tilhugsunin um íþróttahúsið okkar eigi mikinn þátt í
þeirri vakningu sem orðin er. Frjálsíþróttaæfingar sem
eru á þriðjudögum eru afskaplega vel sóttar. Þangað
mæta 35 böm frá 1 .-7. bekk, þrátt fyrir það að flytja
þurfti tímann yfir að kvöldinu, sem er vissulega óhentugt
fyrir suma og óþægilega seint fyrir lítil böm þegar skóli
er daginn eftir. En það er ekki hægt að hafa allar greinar
íþrótta kl. 3-5 og ég er hrædd um að menn eigi eftir að
reka sig á það þegar framboð íþróttagreina fyrir alla
aldurshópa eykst með nýja húsinu að stundum verði
menn að taka þeim trma sem býðst en hafi ekki endilega
neitt val.
Á miðvikudögum eru borðtennisæfingar með um
14 þátttakendum og að kvöldinu eru, þegar þetta er
skrifað, nýlega hafnar æfingar á sjálfsvarnaríþróttinni Ju-
jitsu.
Á fimmtudagskvöldum fer stór hópur krakka að
Laugarvatni, og fer þeim alltaf fjölgandi, nú komið í 31,
og þurfa því ansi margir foreldrar að keyra þangað. Við
leigjum allt húsið og er spilaður körfubolti á 2 völlum og
badminton á 3 völlum, auk þess höfum við þreksalinn og
hlaupabrautina. Krakkamir eru afskaplega dugleg og það
hefur verið mjög gaman að fylgjast með þeim geysast
áfram af fullum krafti. Þama hefur verið skemmtilegur
andi, þetta hefur verið þeirra félagsmiðstöð í vetur (tekið
við af heita pottinum?). Það sem hefur þó verið
ánægjulegast er að sjá alla þessa krakka aðallega stelpur
sem ekki hafa áður verið í neinum íþróttum, ýmist
þjálfaralausar í þreksalnum eða að hlaupa, eða þar sem
stærsti hópurinn er, í badminton. Þar höfum við nú í
fyrsta skipti þjálfara, en það vora tvær stelpur, nemendur
í ÍKÍ sem tóku það að sér. Enda hefur orðið mikil
framför hjá krökkunum í badmintoninu.
Tímamót
Framundan era allmiklar breytingar þegar nýja
íþróttahúsið verður tekið í notkun. Þá geta þeir sem eldri
eru farið að liðka stirnuð
liðamót og rifja upp gamla
heljarstökkið. Það fréttist
reyndar af Þóri á Geysi, hann
er víst búinn að prófa nokkur
stökk á beru steingólfinu, og
lék sér að því. Hinir yngri
eiga eflaust eftir að vilja
prófa ýmsar nýjar
íþróttagreinar. Nú verður
hægt að æfa badminton, blak,
innifótbolta, fimleika og
fleira. Eg er ekki að segja að
við í Iþróttadeild ætlum að
bjóða upp á allt þetta einn,
tveir og þrír. En nú opnast
nýjir möguleikar. Og þá reynir á foreldrana.
Þeir sem ekki eru svo „lánsamir“ að búa í
Reykholti, þurfa alltaf að keyra og finnst sumum nóg um
nú þegar. Okkar kynslóð finnst við, sem foreldrar,
stundum vera í fullu starfi við að keyra börnin okkar út
og suður í hvers kyns félagsstarf. En þó við nöldram
stundum yfir því held ég að við ættum að þakka fyrir að
við vitum þó hvar börnin okkar eru. Og þau eru ekki að
taka þátt í neinni vitleysu. Eigum við ekki að þakka fyrir
kostina við að búa hér í þessu samfélagi okkar, sem getur
gefið okkur svo margt. Og ég fullyrði það að krakkarnir
og unglingarnir hér í Tungunum eru heilbrigðir og frískir
krakkar og mjög dugleg.
Hver á að borga?
Nú er ég komin út fyrir Iþróttadeildina, en
varðandi starf hennar þá hef ég stundum velt því fyrir
mér, hver á að borga fyrir starfsemina. Eins og er þá
borga krakkarnir æfingagjöld, sem eru 1500 kr. fyrir
allan veturinn en það dugar sjaldnast til að greiða
þjálfarakostnað, og það sem verst er að oftast þurfum við
að borga allt of mikinn bílakostnað til þjálfara. Sumir
krakkanna eru félagar í deildinni og oft foreldrarnir líka
og þau borga þá öll sín árgjöld. Stundum hefur verið rætt
um það hvort ekki ætti að skylda alla sem æfa með
félaginu til að gerast félagar, og/eða hitt að láta þau
greiða hærri æfingagjöld ef þau eru ekki félagar. Eins
hefur verið rætt hvort ekki ætti að taka upp það
fyrirkomulag að þau borgi bara eitt talsvert hærra gjald
og geti þá tekið þátt í öllum greinum sem boðið er upp á.
Eins þurfum við enn frekar að bjóða upp á systkina
afslátt.
Ekkert af þessu hefur komið til framkvæmda en
líklegt er að einhverjar breytingar verði á næstu
misserum. Eins og staðan er í dag þá þurfa þeir fáu
foreldrar sem í félaginu starfa að sjá um að afla þess fjár
sem vantar upp á að reksturinn gangi, auk styrkja sem við
fáum frá sveitarfélaginu.
Mér þætti gott að fá einhver viðbrögð við þessu
greinarkorni mínu, hvað foreldrum finnist um þessi mál.
Eins ef einhver vill tjá sig um þau opinberlega, þá er
auðvitað hægt að skrifa í Tungnatíðindi, það er svo langt
í næsta Litla-Bergþór.
Kveðja frá stjórn íþróttadeildar
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir.
í Þriggjafélagamótimi í sumar.
Litli - Bergþór 27