Litli Bergþór - 01.03.2000, Síða 10

Litli Bergþór - 01.03.2000, Síða 10
Þorrablót 2000 Minni kvenna Þegar ég var beðinn um að taka að mér aðflytja minni kvenna, sagði ég já kokhraustur. En þegar til átti að taka hafði ég ekki hugmynd um, um hvað minni kvenna œtti aðfjalla. Eg hafði aldrei almennilega hlustað á þessa pistla , sem kom nátturulega aftan að mér núna. Nú voru góð ráð dýr meira að segja rándýr. Atti þetta aðfjalla um minni kvenna og þá hvað þœr myndu mikiðfrá degi til dags, eða átti þetta að vera óður til minni kvenna? Atti ég að tala um dvergvaxnar konur, eða átti ég að minnast kvenna almennt. Ja nú var ég í djúpum..... Eg ætla að reyna að gera öllu þessum „minnum“ skil á einhvern hátt. Eg œtla að byrja á minninu. Þessi texti er ortur við ágœtt lag sem sumir kannast við, en ég ætla að lesa hann, því hann væri mikið verri efég reyndi að syngja hann. Ég man þá tíð í minni æ það er að minni kvenna mikið virtist betra. Því alltaf mundi amma eftir mér uns hún var orðin áttatíu vetra. Að heiman fór því heldur brattur er ég heiman vildi skjótur yfir renna. Kynnast flestu því sem fyrir ber og fræðast líka vel um minni kvenna. Ég víða fór og viss'að konu þá er voðalega vandasamt að finna, sem aðeins lítur eiginmanninn á til æviloka vill af ástúð sinna. Arndís, Hilmar, Hójy, Linda og Sigrún. Hjalti íÁsakoti flytur minni kvenna. Ég fann þá réttu og fyrsta árið var svo fullkomið, þó einkanlega'í húmi. Aldrei skugga á ástarleikinn bar við eyddum flestum stundum upp í rúmi. Ég komst að því að konu minni er sem kræklótt hrísla'í stífum norðan vindi. Þær virðast muna allt sem útaf ber en öllu hinu gleyma þær í skyndi. í ógáti ég einatt fæ mér tár ákafleg glaður verð í sinni. Eins þó viti alveg upp á hár að úthaf verður það í hennar minni. Það er svo margt sem að mér hefur sótt því ofur minni karla lítið heftir. Ég áfram gæti alveg fram á nótt úthellt því sem er í hausnum eftir. Lœt ég þetta nægja um hvað konur muna. En efég sný mér að öðru, þá rakst ég á dögunum á lýsingu manns á draumakonunni. (lag: hœ dúllía dúllía) Vöxturinn minnir á vanfæra kind vörpulegt nefið á öræfatind :Tryllir mig allan af taumlausri gimd titringi veldur neðan við þind: A níðhrakið hey minnir hárið þitt ljóst helst minna á Keili þín framstæðu brjóst. :Af leggjunum svona hef leng'eftir sóst langhelst þeir minna á gangstéttar póst: Til þín að fara hef tæplega þor tölti þó áleiðis reikult er spor. :Þar stendurðu keik eins og stóðhryssa um vor stífluð í nefi og lekur þar hor: Tennurnar hvítu, ja önnur hver er, andskoti fara þær vel uppí þér. :Lafandi rassinn svo laglega fer mig langar að sjá hvemig þú ert allsber: Að loknu minni kvenna er ekki úr vegi að leiða hugann að því hvernigkonan kom til sögunnar ogfara allt aftur í aldingarðinn Eden og afþví við erum á þorrablóti þá gæti þetta verið einhvern veginn svona: Að hausti rif tók Adam úr. Enginn var þá streitan. Fyrstur Drottinn setti í súr síðubita feitan. Guð af súmm gerði skil Greip þar fulla hnefa. A miðjum þorra þar varð til þokkadísin Eva. Það er lengi von á einni efég tek þetta allt saman í eina vísu þá gœti þetta verið svona: Ég margoft geri minni skil og minni hennar tékka. Aminni konur minna vil og minni kvenna drekka. Skál!!!!! Litli - Bergþór 10

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.