Litli Bergþór - 01.03.2000, Blaðsíða 18

Litli Bergþór - 01.03.2000, Blaðsíða 18
Þjóðlendumál Landamörk og þinglýsing jarða. Páll Lýðsson, Litlu-Sandvík. Rœðaflutt áfundi í Aratungu 26. janúar 2000. Þinglýsing fasteigna og jarða hefur verið mjög til umræðu í þeirri orrahríð sem nú geysar um afréttina. Einkum þinglýsing landamerkja sem gera skal samkvæmt landamerkj alögum. Ólafur Jóhannesson prófessor fjallaði svo um nauðsyn þinglýsingar í riti sínu „Lög og réttur", sem fyrst kom út árið 1952: „Kaupbréfuin umfasteignirþarf að þinglýsa.... Þinglýsingar er þörftil tryggja rétt kaupanda, hins nýja eiganda gagnvart grandlausum kaupendum og skuldheimtumönnum hins fyrri eiganda, seljanda. “ Og ennfremur segir Ólafur: „Þinglýsingin er ennfremur nauðsynleg til þess að veita hinum nýja eiganda formlega heimild sem eiganda fasteignarinnar“. i) Hvemig gerðust þessar öryggisráðstafanir með eigur manna í upphafi þjóðarsögunnar? Ekki var þá pappírinn, ekki heldur sýslumenn, sýsluskrifstofur né veðbækur. En lög höfðum við þó við upphaf þjóðveldisaldar og brátt voru þau öll skráð í lagasafninu Grágás. I Grágásarlögunum er fjallað um eignsönnun manna í Landbrigðisþætti og kemur fram að þessi athöfn var munnleg og gerðist um leið og kaup fóm fram. Skulu þeir, kaupandi og seljandi, nefna sér votta að kaupunum. „Jafitfullt er vottorð að séu tveir sem tíu. En efland er eigi með votta handsalað, þá er sem ókeypt sé“. 2> Um leið og landakaup áttu sér stað var ríkt eftir því gengið að landamörkum væri lýst. Settu vottar sig svo vel inn í þau mál, að þeir gátu síðar meir svarið á dómþingi og staðfest rétt landamerki ef deilur komu upp. Þegar Jónsbók var lögtekin árið 1281 er Landsbrigðabálkur gerður ennþá fyllri en þó um margt líkur Grágásarlögum. Þar er kafli um landamerki og lagakaup og hefst svo: „Nú vill maður selja land sitt við verði; þá skulu þeir kveða á um merki með sér um land og skóga og engjar og reka, veiðar og afréttu eferu, og allra gœða skulu þeir geta þeirra er því landi eiga að fylgja, þó að það sé í önnur lönd, eða aðrir menn eigi þannig ítök; síðan skulu þeir takast í hendur og kaupa með vottum tveim eðafleirum,,.3) Hér er ennþá gert ráð fyrir munnlegum samningum en í votta viðurvist, minnst tveimur. Athygli vekur og hversu hörð lögbókin er á því að rifjuð séu upp Litli - Bergþór 18 -------------------------- landamerki og öll ítök séu dregin í ljós. Öldum saman er þessi háttur hafður á um landakaup og auðvitað hefur oftast allt fallið í ljúfa löð -eins og gengur víða í dag. En hafi komið upp vanefndir voru vottamir óspart kvaddir til. Það kemur í ljós í elstu varðveittu bréfum í íslensku fornbréfasafni, svo og í Alþingisbókum Islands sem ná aftur til ársins 1570, þó í brotum fyrstu árin. Grípum fyrir forvitni sakir niður í skjal eitt frá fyrsta ári Alþingisbókanna þar sem Narfí Ormsson kaupir áriðl569 tuttugu hundruð í jörðunni Reykjavík á Seltjarnarnesi. I skjali þessu meðkenndu fjórir heiðursmenn að þeir hefðu það ár tveimur nóttum eftir krossmessu um haustið verið í Reykjavík: „að vér vorum í hjá, sáum og heyrðum á orð og handaband þessara manna Natfa Ormssonar og þeirra bræðra Þórðar Asbjarnarsonar og Jóns Asbjarnarsonar. En þaðfaldist undir þeirra handabandi að þeir brœður, Þórður og Jón, seldu Narfa Ormssyni 20 hundruð í Reykjavík “. 4) Þegar kemur fram á pappírsöld, verða kaupbréfin fleiri og er þá þeim mikilvægustu þinglýst á Alþingi. Ég tek sem dæmi kaupbréf Ófeigs Magnússonar fyrir 6 hundruðum og 80 álnum í Brúnastöðum í Arnesþingi af Helgu Erasmusdóttur fyrir lausafé, dagsett 19. júlí 1710. Þann 25. september sama ár nær Ófeigur að kaupa jafnstóran part Brúnastaða af Guðlaugu, systur Helgu. Og báðum þessum kaupum lýsir hann í Alþingisbókinni 1711.5) Víkjum nú sögunni til miðrar 18. aldar. Þá er Sveinn Sölvason orðinn lögmaður hér norðan og vestan. Sveinn var einna fyrstur Islendinga að ljúka lögfræðiprófi við Hafnarháskóla. Hann var fyrstu einkunnar maður. Það þýddi að honum voru allir vegir færir til embætta. A farsælum embættisferli er Sveinn Sölvason þekktastur fyrir tvennt: I fúlustu alvöru lagði hann til að Islendingar tækju upp danska tungu. Og hann gaf fyrstur Islendinga út lögfræðilega handbók sem hann nefndi „Tyro juris“ þ.e. „Barn í lögum“. Að minnsta kosti tvær útgáfur eru til af þeirri bók og vitna ég til hinnar síðar er kom út í Kaupmannahöfn 1799. Um eignarhald afrétta vitnar Sveinn bæði í Jónsbók og Norskulög Kristjáns V og segir: „Svo skulu almenningar vera sem aðfornu, item fra gammel Tid“. Hann heldur fram hefðarhaldi eigna, en tekur þó fram „að eign skuli vera átölulaus, þ.e.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.