Litli Bergþór - 01.11.2002, Síða 3
Ritstjómargrein
Með sameiningu sveitarfélaganna þriggja, Þinvalla-, Laugardals- og Biskupstungnahrepps, í júní sl. var gerð
mesta skipulagsbreyting sem um getur á stjórnkerfi á þessu svæði. Eðlilegt er að fólk sé um þessar mundir að
velta fyrir sér hvort þessi breyting hafi æskileg áhrif eða sé til óþurftar. Væntanlega er niðurstaðan mjög mis-
munandi. Hún getur ráðist af búsetu og félagslegri stöðu hvers og eins svo og hvernig viðkomandi gengur að
sætta sig við breytingar. Sumir vilja alltaf vera að breyta til að reyna nýtt fyrirkomulag, en öðrum finnst best að
hafa sem flest eins og það hefur verið og telja ekki ástæðu til að leggja af það sem bærilega hefur gefist.
Bæði þessi sjónarmið eiga rétt á sér, en þegar ákvörðun hefur verið tekin um breytingu er mest um vert að
reyna að stuðla að því að nýja fyrirkomulagið verði fólki til heilla í bráð og lengd. Því þarf að leggja áherslu á
að aukið afl stækkaðs sveitarfélags sé nýtt til að veita öllum íbúum þess sem besta þjónustu og stuðla að velferð
þeirra. Þetta er margþætt verkefni; aðstaða til atvinnurekstrar, menntun bama og unglinga, þjónusta við íbúa og
einkum þá sem hafa sérstaka þörf fyrir hana vegna elli, fötlunar eða sjúkleika og fleira og fleira. Vonandi verður
auðveldara að fá fram úrbætur í ýmsum atriðum, svo sem samgöngumálum, eftir því sem að kröfunni stendur
fjölmennara sveitarfélag. Skólana ætti að vera unnt að reka með viðráðanlegum kostnaði þannig að allir nemen-
dur þeirra fái góða fræðslu og uppeldi, ef þeir eru ekki mjög litlir. Svipað má segja urn aðra þjónustu, hana er í
flestum tilvikum auðveldara að veita svo vel sé, ef einingin er ekki mjög lítil. Væntanlega verður einnig auðvel-
dara en áður að hlynna að ýmiskonar mennigarstarfsemi á svæðinu.
í Bláskógabyggð er fjölbreytt félagslíf af ýmsum toga. I flestum tilvikum er það miðað við “gömlu” sveitar-
félögin. Sameiningin mun ekki hafa sjálfkrafa áhrif á það skipulag. Væntanlega munu ungmennafélögin í
Laugardal og Biskupstungum starfa áfram og einnig mörg önnur félög, sem þar eru til. Þingvallasveitarmenn
sem starfa með Grímsnesingum í Ungmennafélaginu Hvöt gera það líklega áfram og Hestamannafélagið Trausti
mun starfa sem fyrr í Grímsnesi, Laugardal og Þingvallasveit. Ef til vill verður sameiningin hvatning til að brey-
ta skipulagi einhverra félaga. Eðlilegt er að bjóða öldruðum Laugdælingum og Þingvallasveitarbúum aðild að
Félagi eldri borgara í Biskupstungum, þar sem slík félög munu ekki starfandi þar, og skoðunarvert er að sameina
önnur félög, svo sem búnaðarfélögin og búfjárræktarfélögin. Sama gæti einnig átt við um kvenfélögin, björgu-
narsveitirnar, lionsklúbbana og fleiri. Þetta verður að gerast að frumkvæði forustumanna félaganna, ef þeir meta
það þannig að þau verði öflugri sameinuð en sitt í hverju lagi.
Líklega verður ekki í bráð áhugi fyrir sameiginlegu þorrablóti fyrir alla Bláskógabyggð, þar sem núverandi
fyrirkomulag hefur mótað þeirra ramma.
Ein fyrsta breytingin, sem fólk varð vart við vegna sameiningarinnar, varðaði útgáfumál, þegar
Tungnatíðindum var breytt í Bláskógafréttir. Vonandi gefur það öllum íbúum hir.s nýja sveitarfélags færi á að
fylgjast vel með því sem er að gerast á vettvangi sveitarstjórnar.
Ekki eru enn áformaðar breytingar á útgáfu Litla-Bergþórs af þessu tilefni að öðru leyti en því að nú verður
í hreppsnefndarfréttum greint frá málefnum, sem snerta alla Bláskógabyggð. Þar sem Ungmennafélag
Biskupstungna gefur blaðið út eru skyldur þess fyrst og fremst við félaga þess og þeirra umhverfi, en hjá ritnefnd
er áhugi á að tengjast á einhvem hátt öðrum hlutum hreppsins. Því er það ósk hennar að íbúar þar gerist
áskrifendur að blaðinu og sendi ritnefnd áhugavert efni úr þeirra umhverfi.
A. K.
V___________________________________________________________________________J
Litli Bergþór 3