Litli Bergþór - 01.11.2002, Side 13
Hreppsnefndarfréttir
viðkomandi aðilar eru jafnframt eigendur. Samkvæmt
samþykkt frá aðalfundi Selmúla ehf árið 2000 sem
sveitarstjórn lítur á sem ákvörðunarvald þess félagsskapar
er að finna ákvörðun um að umræddar lóðir verði feldar út
af skipulagi. Svar: Sveitarstjóm samþykkir að fella út af
skipulagi fjórar lóðir 1,3,5 og 7 við Holt og jafnframt að
bætt verði inná skipulagsuppdrátt heimreið frá Háholti að
Hlíðarholti nr. 5.
Að þessu gefnu sér sveitarstjórn ekki ástæðu til annars
en að samþykkja breytt skipulag. Á fundi sveitarstjómar
Bláskógabyggðar er því þann 1. október 2002, samþykkt
að óska eftir að breyting á samþykktu deiliskipulagi frí-
stundabyggðar á Felli, Biskupstungum verði afgreidd af
Skipulagsstofnum samkvæmt lögum nr. 73/1998.
Skipulagstillögur lágu frammi á skrifstofu Bláskóga-
byggðar, Aratungu, 801 Selfoss, frá 17. júlí til 14. ágúst
2002 og frestur til að skila inn athugasemdum rann út 28.
ágúst 2002.
Deiliskipulag frístundabyggðar og ferðaþjónustu að
Kjarnholtum III í Biskupstungum. Á fundi sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar þann 1. október var samþykkt að óska
eftir að deiliskipulag frístundabyggðar og ferðaþjónustu í
Kjarnholtum III, Biskupstungum verði afgreidd af
Skipulagsstofnum samkvæmt lögum nr. 73/1998. Skipu-
lagstillögur lágu frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar
Aratungu, 801 Selfoss, frá 17. júlí til 14. ágúst 2002 og
frestur til að skila inn athugasemdum rann út 28. ágúst
2002. Athugasemd (dagsett 25.08 2002) barst frá eigend-
um frístundabyggðar í Aukatúni 2, 4, 8, 10 og 12 í þremur
liðum á umræddu tímabili.
Inntak athugasemdar:
Að útsýni verði ekki spillt með húsbyggingum eða
trjám.
Mænishæð húsa verði lækkuð.
Að húsin snúi til suð-vesturs.
Afgreiðsla sveitarstjórnar:
í deiliskipulaginu er tekið tillit til útsýnis, m.a. eru
ekki skipulagðar lóðir á horni Kjarnholtavegar og
Aukatúns heldur leikvöllur. Hús á lóðum 7,9,11 og 13
koma ekki til með að skyggja á útsýni yfir Tungufljót og
Geysi því þau eru norð-austan við Aukatún. Lóð 3 er á
holti og hús á þeirri lóð mun liggja vestan í holtinu og ekki
skyggja á útsýni frá Aukatúni. Á lóð 5 mun byggingar-
reitur verða minnkaður um 10 m að austan og vestan. Um
plöntun trjáa er erfitt að setja kvaðir í skilmálum.
í skilmálum deiliskipulagsins verður mænishæð frá
jörðu lækkuð úr 6 m í 5 m.
Hús á lóðum nr. 3 og 5 munu snúa í suð-vestur.
Kynnt vinnuferli vegna endurskoðunar fjárhags-
áætlunar 2002 og gerð áætlunar fyrir 2003. Stefnt er að því
að leggja endurskoðaða fjárhagsáætlun vegna ársins 2002
fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar þann 5. nóvember n.k.
þar verða einnig afgreiddar ákvarðanir um álagningarstof-
na Bláskógabyggðar 2003. Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun 2003 verður 3. desember en sú síðari á aukafundi
sveitarstjómar 25. febrúar 2003.
1. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar
haldinn 18. júní 2002.
Mættir voru byggðaráðsfulltrúar sveitarfélagsins:
Margeir Ingólfsson formaður byggðaráðs, Drífa Kristjáns-
dóttir og Sveinn A. Sæland auk Ragnars Sæs Ragnars-
sonar, sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, úttekt í Reykholts-
skóla, leikskólanum Álfaborg og félagsheimili/mötuneyti
Aratungu. Verkstjóri áhaldahúss verði fengin til þess að
fara yfir athugasemdirnar og vinna að úrbótum í samvinnu
við stjómendur viðkomandi stofnanna.
Bréf frá foreldraráði Reykholtsskóla þar sem bent er
á 5. gr. starfsreglna foreldraráðs Reykholtsskóla og 16. gr.
grunnskólalaga um umsagnarrétt foreldraráðs. Byggða-
ráð vill benda á að foreldraráð er með áheyrnafulltrúa í
fræðslunefnd og hefur hann aðgengi að öllum gögnum sem
lögð eru fram varðandi skólastjómun Reykholtsskóla.
Félagsmálaráðuneytið/Jöfnunarsjóður sveitarfél-
aga, bréf frá 10. júní sem segir að tekið hefur verið til
endurskoðunar áætlun um úthlutun framlags til sveitar-
félagsins vegna nýbúafræðslu. Kynnt og því fagnað að
aukin áhersla sé á að jafna aðstöðu barna í íslenskukunn-
áttu, en það hlýtur að vera forsenda farsældar og betri líðan
barna af erlendum uppruna.
Skjóni fer á fjall. Beiðni um aðstoð sveitarfélagsins
við gerð kvikmyndar um íslenska hestinn. Kynnt og
samþykkt að koma til móts við óskir viðkomandi eftir því
sem það er hægt enda komi það skýrt fram að myndin sé
tekin upp í Bláskógabyggð.
Lögð fram drög að ráðningasamningi við organista
Skálholts en þar kemur m.a. fram að sveitarfélagið greiðir
ein mánaðarlaun. Kynnt og samþykkt.
Umsókn um starf leikskólastjóra í leikskólanum
Lind, Laugarvatni. Kynnt og samþykkt að ráða Sigurveigu
Björnsdóttur kt. 280966-3129, í starf leikskólastjóra.
2. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar
haldinn 2. júlí 2002.
Kjör varaformanns byggðaráðs. Bjarni Þorkelsson var
kjörin varaformaður.
Sýslumaðurinn á Selfossi. Umsögn vegna leyfis til
gistingar á einkaheimili að Gilbrún Biskupstungum.
Samþykkt að veita leyfi til heimagistingar að Gilbrún með
ákveðnum skilyrðum s.s. um umgengni gesta, næturró og
bflastæði sem eru ákvæði sem gert er að kröfu í sambæri-
legum rekstri í þéttbýli.
Umsókn Huldu Jónsdóttur kt. 010163-4479 þar sem
sótt er um rekstur gistiskála að Skógarhólum, Þing-
vallasveit. Samþykkt með skilyrðum um að góð umgeng-
ni og öryggiskröfur séu hafðar að leyðarljósi.
Bréf frá Umf. Laugdæla vegna aldursflokkameist-
aramóts Islands í sundi á Laugarvatni 28.- 30. júní. Oskað
er eftir að sveitarfélagið styrki Ungmennafélagið vegna
þessa verkefnis. Samþykkt að veita Umf. Laugdæla styrk
að fjárhæð krónur 100.000.- Byggðaráð Bláskógabyggðar
vill af gefnu tilefni benda á að fyrirspumum um fjárbeiðnir
á árinu 2002 verður að jafnaði hafnað, eða vísað til
íjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2003. Ábendingar
Litli Bergþór 13