Litli Bergþór - 01.11.2002, Síða 14
Hreppsnefndarfréttir
um verkefni félaga, stofnanna og einstaklinga á árinu 2003
þurfa því að berast sveitarstjórn fyrir 1. nóvember 2002.
Sjálfsskuldarábyrgð vegna Biskupstungnaveitu.
Samþykkt ábyrgðaryfirlýsing vegna yfirdráttarláns í
Landsbanka íslands vegna Biskupstungnaveitu kt. 630580-
0139, allt að kr. 3.000.000,- Kynnt og samþykkt
Útboð vegna vegagerðar Torfholti, Laugarvatni.
Tilboð voru opnuð 1. júlí 2002. Fjögur tilboð bárust.
Samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda
Asvélar ehf, kt. 640594-2179, um framkvæmd verksins
en tilboðsupphæð bjóðanda var krónur 962.000,-
Forstöðumanni áhaldahúss á Laugarvatni verði falið að sjá
um eftirlit með verkinu.
Gjaldbreyting á fjallaskálum frá og með sumrinu
2003, verðskrá verði eftirfarandi: Gisting per. nótt kr.
1.500, íbúar með lögheimili í Bláskógabyggð fá 50% af-
slátt. Gjald fyrir hest í gerði kr. 75 per. dag. Helstu við-
skiptavinum verði sent bréf vegna þessa og verðbreytingin
auglýst í Bláskógafréttum í haust. Kynnt og samþykkt.
Upplýsingar frá fundi oddvita og formanns
byggðaráðs með framkvæmdastjóra Byggingarfélags
Námsmanna um byggingu íbúða fyrir námsmenn á
Laugarvatni. Byggingafélag Námsmanna hefur í hyggju
að byggja 18 nýjar leiguíbúðir á Laugarvatni og hefja
byggingu þeirra næsta haust. Byggingarfélagið fer fram á
fyrirgreiðslu sveitarfélagsins vegna þess að íbúðir náms-
manna njóti almennt lækkunar hjá þeim sveitarfélögum þar
sem íbúðir þeirra hafa verið byggðar. Samþykkt að fram-
lag sveitarfélagsins verði kr. 280.000,- á íbúð sem er í sam-
ræmi við samþykkt Laugardalshrepps frá 6. nóvember
2001. Auk þess verði önnur fyrirgreiðsla sveitarfélagsins
að tjárhæð kr. 223.000,- á íbúð miðað við að ráðist verði í
byggingu 18 íbúða. Frágangur málsins verður í höndum
sveitarstjóra.
Lögð fram sameiginleg fjárhagsáætlun Bláskóga-
byggðar 2002 samkvæmt áðurgerðum fjárhagsáætlunum
sveitarfélaganna sem sameinuðust 25. maí 2002. Kynnt.
Verður til umfjöllunar á næsta fundi sveitarstjórnar.
Margeir sagði frá óformlegum viðræðum sem hann
hefur átt við Kristján Einarsson slökkviliðsstjóra hjá
Brunavömum Arnessýslu. Lögð fram drög að heildar-
kosnaði Bláskógabyggðar við inngöngu í Brunavamir
Arnessýslu. Aframhaldandi viðræður munu fara fram í
ágúst.
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá 27. júní
2002. I bréfinu koma fram nokkrar athugasemdir sem
gerðar voru við reglubundið eftirlit í Iþróttamiðstöðinni í
Reykholti. Forstöðumanni áhaldahúss í Reykholti er falið
að fara yfir athugasemdirnar með starfsfólki Iþrótta-
miðstöðvarinnar og koma fram með tillögu að úrbótum.
Bréf frá Hreini Oskarssyni, skógarverði á Suður-
landi varðandi hug sveitarstjómar um bann við sauðfjárbeit
á skógræktarsvæðum og að lausaganga búfjár verði
bönnuð innan afmarkaðra svæða. Byggðaráð sér ekki
ástæðu til þess að gera athugasemd við það að einstakir
landeigendur taki þá ákvörðun að halda sauðfé frá sínu
landi. Hver og einn getur tekið ákvörðun um nýtingu á sínu
landi og gerir byggðaráð ekki aðra kröfu til þess en að það
samræmist skipulagi svæðisins og þeim lögum og reglum
sem um það gilda.
3. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar
haldinn 16. júlí 2002.
Hitaveita Laugarvatns. Til að ræða þetta mál og
kynna fyrir byggðaráðinu voru mættir: Knútur Armann
formaður veitustjórnar, Gunnar Sigurþórsson gjaldkeri og
Sveinn A Sæland oddviti. Knútur sagði frá stöðu Hitaveitu
Laugarvatns sem hann telur ekki rekstrarhæfa í dag en þar
kom fram að á síðustu árum hefur verið lögð ný hitaveita á
Laugarvatni og kominn er stofn inn að Miðdal. Búið er að
tengja nokkur hús í Miðdal en ekki virðist vera mikill
áhugi fyrir tengingum þar. í landi Snorrastaða er tölu-
verður áhugi fyrir tengingum en lítið búið að framkvæma.
I dag skuldar veitan kr. 65.000.000 og verður að taka kr.
15.000.000 að láni til viðbótar til að ljúka þeim tengingum
sem liggja fyrir. Ljóst er að þær tekjur sem veitan kemur
til með að hafa duga engan veginn fyrir afborgunum lána
og rekstrargjöldum ef miðað er við að afskrifa veituna á 20
árum, en það er af mörgum talinn eðlilegur afskriftartími,
þannig að grípa þarf til aðgerða og það strax.
Rætt var um vandamál veitunnar og þá möguleika sem
menn sáu í stöðunni.
Fram kom að huga þarf að hækkun á gjaldskrár sem
fyrst en hún ein og sér bjargar engu.
Formanni byggðarráðs og sveitarstjóra er ásamt veitu-
stjóminni falið að leita allra leiða til að tryggja rekstur
veitunnar, hvort sem það er endurljármögnun, samruni við
aðrar veitur, sala veitunnar eða annað sem tryggt gæti
áframhaldandi rekstur hennar.
4. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar
haldinn 31.júlí 2002.
Bréf frá Dagnýju Rut Grétarsdóttur. Efni: Óskað er
eftir að sveitarfélagið greiði niður vistun hjá dagmömmu
fyrir börn yngri en tveggja ára. Þar sem að leikskólinn
Lind á Laugarvatni tekur inn börn frá eins árs aldri en leik-
skólinn Alfaborg í Reykholti frá tveggja ára aldri þá leggur
byggðarráð til að sveitarsjóður Bláskógarbyggðar greiði
kr. 10.000 á mánuði með hverju bami sem náð hefur eins
árs aldri og er hjá dagmömmu. Þessar greiðslur haldast
þangað til að barnið kemst inn á leikskóla.
Lánasjóður sveitarfélaga. Umsókn um lán af endur-
lánafé. Byggðarráð leggur til að Hitaveita Laugarvatns taki
þetta lán en það er að upphæð kr. 6.000.000 og nýti það til
þeirra framkvæmda sem fyrir liggja hjá veitunni. Lánið ber
6,33% vexti og ábyrgist sveitarfélagið greiðslu þess.
Bréf frá Barna og Kammerkór Biskupstungna um
styrk til vinnslu á geisladiski. Byggðarráð vill benda á að
Biskupstungnahreppur hefur styrkt Barnakór Biskups-
tungna undanfarin ár en ráðið leggur til að þetta verkefni
verði styrkt með því að kaupa styrktarlínu.
A fundi byggðaráðs sem haldinn var 2. júlí 2002 var
samþykkt framlag til byggingar 18 íbúða Byggingarfélags
námsmanna að upphæð kr. 9.054.000. Eftir viðræður við
framkvæmdarstjóra Byggingafélagsins þá leggur
byggðarráð til að framlag þetta verði kr. 11.500.000 og
Litli Bergþór 14