Litli Bergþór - 01.11.2002, Blaðsíða 17
Eyjaferð aldraðra
Þriðjudagurinn 18. júní rann upp eilítið þungbúinn og
talsverður vindur. Félag eldri-borgara í Biskupstungum
hafði efnt til þriggja daga ferðalags til Vestmannaeyja.
Klukkan 12 átti hópurinn að fara með Herjólfi frá
Þorlákshöfn. Þá var komið
blankalogn, milt og hlýtt veður.
Allir voru mættir stundvíslega alls
24 félagar. Síðar um kvöldið
komu hjónin á Stærribæ í
Grímsnesi, en þau komust ekki
með fyrri ferðinni. Þau hafa
aðeins verið með okkur í ferðum
og á samkomum. Örlítill kvíði
var hjá sumum um hvort einhver
yrði sjóveikur, en það var óþarfi
því allir stóðu sig eins og hetjur,
enda mátti segja að sjórinn væri
spegilsléttur. Sjóferðin var
skemmtileg, rabbað saman, sötrað
kaffi og súkkulaði.
Þegar til Eyja kom tók á móti
okkur Gísli Magnússon, en hann
hafði umsjón með ferðinni.
Keyrði hann hópinn í skoðunarferð
um Heimaey. Fremur var þung-
búið, því var útsýnið ekki eins og skyldi, en leiðsögu-
maður útskýrði allt skilmerkilega fyrir okkur svo við
nutum vel. Undirritaður hafði fyrir löngu komið til Eyja,
það er ólýsanlegt hversu mikil breyting hefur orðið á
Helgi Kr. Einarsson, Guðmundur Indriðason og Guðjón
Gunnarsson. Veðurathugunarstöð á Stórhöfða í baksýn.
eyjunni eftir gosið, en nú liggja vegir jafnvel í tugmetra
hæð frá frá því sem áður var og hálfbrunnir húsveggir
gægjast undan hrauninu. Vagga þjóðhátíðar,
Herjólfsdalur og lundabyggð voru skoðuð og margt
fleira. Þama á þessum stað er allt svo undur fagurt að
unun er að sjá. Snyrtimennska er allsstaðar á Heimaey
þar sem við komum og búið að vinna þrekvirki á því
sviði svo eftir verður tekið. Stórkostleg sjón. Eftir þessa
ágætu ferð um alla Heimaey var farið á gistiheimilið
Heimi, farið úr ferðafötunum og síðan vorum við keyrð í
Höllina þar sem framreiddur var dýrindis matur, og spjal-
lað saman fram eftir kvöldi, svo gengið til náða.
19. júní rann upp bjartur og fagur, og nú átti að sigla
umhverfis Heimaey, sú ferð var eftirminnileg, stórbrotið
að sjá eyjuna frá þessu sjónarhomi, siglt inn í víkur og
skorur, inn í berghvelfingu, (Hellirinn) og stoppað þar,
skipstjórinn kom upp á dekk, tók
upp trompett og spilaði af list 3
lög svo undir tók í öllu.
Eftirminnileg stund. Eftir hádegi
þennan dag fór hópurinn í
skoðunarferð á fiskisafnið og
byggðasafnið. Þá var heimsókn á
Skansinn, Stafkirkja og fleira
skoðað. Eftir kvöldmat í Höllinni
var smá kvöldvaka hjá okkur á
gistiheimilinu, undu allir glaðir
við sitt.
Öll móttaka af hálfu Eyjabúa
var með ágætum.
20. júní dumbungsveður, rölt
um eyjuna eftir vild hvers og
eins. Klukkan 4 var svo gengið
til skips. Eftir góða ferð á
sjónum var komið að landi í
Þorlákshöfn klukkan 7 um kvöld-
Borðað í „ Höllinni “ í Eyjum.
ið. Allir voru sammála um að ferðin hefði tekist vel,
enda allir jákvæðir og þá gengur allt að óskum.
Sigurður Þorsteinsson.
Á Stórhöfða.
Sigurður Erlendsson við Vestmannaeyjahöfn.
Litli Bergþór 17