Litli Bergþór - 01.11.2002, Qupperneq 21
Við vorum með rafmagn frá ljósavél þarna, en hún
átti það til að bila, og þá kom Óskar á Brú og gerði við.
Aðstaðan væri náttúrlega ekki nokkrum manni bjóðandi
nú á dögum. Við sváfum þarna 5-6 í einu herbergi,
Sigríður, Katý, 5 ára dóttir Katýar og 2-3 starfsstúlkur.
Hreinlætisaðstaða var engin, aðeins léleg klósettaðstaða.
L-B: Var veitingaskálinn við Gullfoss rekinn allt
árið?
Njörður: Nei, veitingaskálinn var bara rekinn á
sumrin. Þær komu hérna uppeftir þegar snjóa leysti og
vegir urðu færir. Þá var bara gamli vegurinn, sem lá hér í
gegnum hlaðið, það var enginn vegur kominn milli
Geysis og Gullfoss. Skálinn var rekinn í áratugi, hún hét
Sveinlaug, sú sem byggði skálann upphaflega og rak
þetta á undan Sigríði. Einar átti landið og leigði þeim
skika undir skálann. Mamma vann stundum í skálanum
þegar hún kom hér á sumrin.
Lára: Það er gaman að segja frá því, að Tómas í
Helludal sagði okkur að Einar hafi byrjað greiðasölu hér
við veginn hjá Brattholti strax árið 1930 eða '31. Hann
var með aðstöðuna í tjaldi, sem hann keypti eftir
alþingishátíðina 1930.
Sennilega var hann þó bara
eitt ár með aðstöðuna hér
heima en flutti hana síðan
upp að Gullfossi og var með
hana eitt sumar þar, áður en
Sveinlaug tók við. Þessi
Sveinlaug rak áður Hótel
Hafnarfjörð.
Svo talaði Tómas líka um
að fyrir konungskomuna 1921
hafi Sigríður í Brattholti og
systur hennar unnið við að
lagfæra stíginn af neðra plan-
inu niður að fossinum. Það
hefði nú sennilega verið talið
karlmannsverk á þeim tíma,
en það voru auðvitað ekki
aðrir karlmenn heima í
Brattholti þá en Tómas gamli,
faðir Sigríðar, svo þær hafa
tekið þetta að sér.
L-B: Fóruð þið strax að
búa hér í Brattholti?
Lára: Nei, við giftum
okkur 10. desember 1965 og bjuggum fyrst á Minni-
Borg í eitt ár, en Njörður hafði mikinn hug á því að
búa í sveit og ég fylgdi á eftir. Við vorum þar með
kýr og nokkrar kindur. Eg var nú hálf hrædd við
kýrnar til að byrja með, en það rjátlaðist af manni!
En Minni-Borg var leigujörð, sem var ekki góður
kostur, svo við fluttum okkur árið 1967 að
Kjartansstöðum í Hraungerðishreppi og þar fæddist
Jón Harrý sama ár. Kristján fæddist árið eftir, 1968,
og Svavar árið 1971.
Sigurjón fæddist svo 1979 hér í Brattholti. Fyrir
átti Njörður dótturina Lindu Margréti, fædd 1962, en
hún býr í Vestmannaeyjum og á 2 böm.
Á Kjartansstöðum vorum við í 11 ár, vorum
komin með 25-30 kýr, 4 kindur og á tímabili vorum
við með 4-6 þúsund hænsn.
Kristján, Svavar og Jón Harrý í sparifötunum.
Njörður: Við byggðum þar 40 kúa fjós og
uppistaðan í kúastofninum voru kvígur, sem við keyptum
af Sighvati á Miðhúsum.
Kjartansstaðir eru ríkisjörð, svo þegar Einar
Guðmundsson bauð okkur
að taka við Brattholti
þáðum við það og fluttum
hingað árið 1978. Þá var
hér fyrir nýlegt fjós, sem
Loftur og Vilborg frá
Kjóastöðum byggðu og
við keyptum af þeim.
Fluttum við allan
bústofninn hingað, kýr,
hey og vélar. Einar lét
okkur hafa 20-30 lömb og
vorum við mest með á 2.
hundrað fjár. Sá stofn var
síðar seldur fyrir
mjólkurkvóta. Síðan tók
við ræktun og uppbygging
eins og gengur.
Lára: Njörður vann
alltaf sem umsjónarmaður
við Gullfoss, hafði umsjón
með kömrunum eftir að
þeir voru byggðir. Svo
þegar þrengdist urn með
Njörður og Lára á brúðkaupsdaginn.
Fjós og hlaða séð heiman frá íbúðarhúsinu.
Litli Bergþór 21