Litli Bergþór - 01.11.2002, Blaðsíða 22
Lára, Njörður og synirfyrir framan nýja andyrið vorið 1987.
Á myndina vantar Jón Harrý.
kvótann fórum við út í ferðaþjónustuna. Það var Guðni
Lýðsson, sem hjálpaði okkur að byggja andyri við húsið
og síðan tókum við 3 herbergi uppi á lofti undir gistingu
sumarið 1987. Hvert þeirra 3-4 manna. Strákamir fluttu í
kjallarann, þegar þeir voru heima.- Það var fullbókað á
hverju sumri, auk matsölu og annarrar þjónustu og
aðsóknin var svo mikil að þetta litla hús sprakk gjörsam-
lega utanaf þessu og það var ljóst að það var nauðsynlegt
að byggja, ef við ætluðum að halda þessu áfram.
Jón Harrý kom inn í félagsbúið 1992, nýútskrifaður
búfræðingur frá Hvanneyri. Svo þegar þau Iris fóru að
búa drifu þau í að byggja nýja íbúðarhúsið árið 1994. Þar
var frá upphafi reiknað með að hægt væri að leigja 3 her-
bergi, en eftir að litlu stelpumar fæddust varð erfiðara að
samræma fjölskyldulífið og ferðaþjónustuna. Og þá
kviknaði hugmyndin að hótelbyggingunni.
Við byrjuðum að byggja um veturinn 2000, snjóa-
veturinn mikla, sem gerði okkur mjög erfltt fyrir. En við
tókum við bókunum allan veturinn í nýja hótelið og þrátt
fyrir alla erfiðleika stóðust allar áætlanir. En það er best
að Iris og Jón Harrý segi ykkur meira um það segir Lára.
Og það stendur heima, þegar hér er komið viðtalinu
drífur að vegavinnumenn í mat til Láru og Njörður þarf
að skreppa í eftirlitsferð upp að Gullfossi. Svo
blaðamaður vendir sínu kvæði í kross og bankar upp á hjá
þeim Irisi og Jóni Harrý.
Iris og litlu stelpumar, Eva Osk og Elín Helga, bjóða
gesti í bæinn, en Jón Harrý er þessa dagana í slátur-
hússvertíðinni á Selfossi og ekki kominn heim. Þegar við
erum sestar yfir kaffibolla inn í notalegt eldhúsið er tekið
til við spumingarnar.
L-B: Til að koma þér inn á kortið Iris, hvaðan ert þú
og hverra manna?
Iris: Eg heiti Iris Inga Svavarsdóttir og er fædd í
Garðinum árið 1966, en ættuð að austan, úr Borgarfirði
eystri, í báðar ættir. Pabbi var reyndar eitthvað ættaður úr
Flóanum líka. Hann hét Svavar Óskarsson og fórst í
sjóslysi árið 1992. Móðir mín heitir Sigríður
Halldórsdóttir og býr enn í Garðinum. Eg á einn bróður,
Steinar, sem er ári eldri en ég og sér um gæðastjórnun hjá
Þormóði Ramma á Siglufirði.
Jón Harrý, Iris og dœtur á brúðkaupsdaginn 21.04.2001.
L-B: Vilt þú segja mér eitthvað frá uppvextinum?
Iris: Eg gekk náttúrlega í barnaskóla í Garðinum og
byrjaði svo í Fjölbraut í Keflavík. Þá eignaðist ég soninn
Birgi Pál Marteinsson og hætti í skóla. Fór reyndar
seinna í Skrifstofu- og ritaraskólann. Nú, svo vann ég hér
og þar og 1993 fór ég sem ráðskona í Helludal og kynnt-
ist þá Jóni fljótlega. Vorið 1994 byrjuðum við að byggja
íbúðarhúsið, svo það var ekki langur aðdragandi! Húsið
reis á met tíma, fyrsta skóflustungan var tekin 9. apríl og
við fluttum inn 17. júní. Það var byggt á staðnum, nema
grindin, sem kom tilbúin og það var Steinar Árnason frá
Selfossi, sem byggði það. Við vorum búin að bóka í
húsið 1. júlí, svo það var ekki eftir neinu að bíða.
Leigðum strax út 3 herbergi.
L-B: Og svo hafið þið tekið þátt í félagsbúinu.
Iris: Jú, jú. Ferðaþónustan var sumarverkefnið og
kýmar meira vetrarvinnan. Svo var Jón að rúlla hey út
um alla sveit fyrstu sumurin og ég var oft með honum að
pakka. Ég vann líka í sundlauginni í Úthlíð og í Réttinni
um helgar. Svo þetta varð oft langur vinnudagur og
ferðaþjónustan lenti meira á Láru.
Oft voru 20-30 manns í mat og þá var borðað í stof-
unni hjá okkur. Stærsti hópurinn sem við tókum í mat
var 50 manns og þá þurfti að tvísetja og þvo upp á milli,
því við áttum ekki nógu ntikið af leirtaui fyrir svo margt
fólk. Allt var þvegið upp í höndunum fyrstu árin, en svo
fékk ég uppþvottavél þegar Eva Ósk fæddist árið 1996.
Það var auðvitað svolítið mikið að hafa svona stóra
hópa inni á heimilinu. Og þegar Elín Helga fæddist árið
1998 var ljóst að það fór ekki saman að hafa 2 lítil böm
og hótelrekstur. Þær voru að kíkja inn í herbergin hjá
gestunum og gramsa í töskunum, sem var auðvitað ekki
Litli Bergþór 22