Litli Bergþór - 01.11.2002, Qupperneq 27
austast í Lambafellsveri, þar sem er beygja á ánni rétt á
móti þar sem Hvítá og Jölulkvísl mætast.
Bátarnir voru notaðir þarna á ánni þar til brúin kom.
Þeir voru tjargaðir á hverju ári. Um það sá Jón Jónsson
eldri, bóndi á Laug. Eftir að hætt var að nota bátana á
Hvítá var annar fluttur inn á Jökulkvísl, staðsettur austan
í Innri-Skúta og sér enn í dag móta fyrir byrgi sem hlaðið
var yfir hann. Ætlunin var að göngufólk sem kom úr
Hvítárnesi og ætlaði í Kerlingafjöll gæti stytt sér leið. En
báturinn var ekki nýttur þarna lengi, e.t.v. 1-2 ár, því ekki
var gott að vita aldrei hvoru megin hann væri. Hinn
báturinn var hafður við Hvítárvatn og nýttur af ferðafólki.
Voru báðir bátarnir hafðir um skeið við vatnið. Byggt var
yfir þá skýli þar sem Tjarná rennur í vatnið. Var það
bárujárnsskúr á trégrind sem gaf sig svo í vondu veðri.
Að minnsta kosti annar báturinn fór í vatnið. Mér er ekki
kunnugt um hvað af hinum varð.
Byrjað var að byggja brú á Hvítá haustið 1935.
Meðan á brúarsmíðinni stóð, eða áður en byrjað var, var
sett göngubrú rétt neðan við núverandi brúarstæði. Um
haustið, áður en aðalbrúin varð fær var féð rekið yfir á
þessari göngubrú og hestar teymdir yfir. Brúarsmiðimir
voru þama með flutningabíl og tvo hesta til að keyra á
steypumöl í brúarstöplana. Eftir fjallferð, sennilega hefur
það verið í október, gerði slíkt hret á smiðina að þeir
flýðu til byggða. Höfðu þeir ætlað að vera lengur fram á
haustið, en þorðu ekki að fara aftur því Hálsinn varð svo
fljótt ófær. Þegar komið var að vorið eftir í fyrstu grenja-
leitum lágu verkfæri og þess háttar út um allt. Smiðimir
komu svo þegar fært varð fyrir bíla og luku við verkið.
Um sumarið var lagður slóði í Hvítámes en árið 1937
var gert bílfært á Hveravelli. Þá var kominn vísir að
þeim samgöngum um hálendið sem menn þekkja nú.
Inga Kristjánsdótitr,
systurdóttir Tómasar,
skráði frásögnina í október
Afmælishátíð
/
leikskólans Alfaborgar
Erindi flutt af Drífu Kristjánsdóttur þann 4. maí 2002
Kæru leikskólabörn, foreldrar, og
starfsfólk leikskólans Alfaborgar!
Gleðilega hátíð og til hamingju með 15
ára afmælið.
Nú eru liðin 15 ár frá því að við, nokkrir
foreldrar sem áttum heima hér í
Biskupstungum, tókum okkur saman og
mynduðum vísi að leikskóla. Reyndar er
heldur lengra síðan.
Þegar ég fór að skoða bréf og efni sem
ég hafði sent frá mér í þeim tilgangi að
athuga hvort fólk vildi reyna að mynda leik-
skóla hér í Tungunum, þá kom í ljós að við
settum allt í gang í september 1986 en síðan
eru orðin tæplega 16 ár. En við getum
auðvitað bara aftur haldið uppá 16 ára afmælið í haust.
Ég verð að viðurkenna að ég var einn af hvata-
mönnum að stofnun leikskólans og ég ætla að segja
ykkur söguna á bak við það.
Á Torfastöðum var alltaf mikið fjör á sumrin. Þar
var mjög margt fólk, og líka krakkar en Björt, stelpan
mín, sem var rúmlega þriggja ára, naut mjög félagsskapar
barna sem systkini mín og vinir áttu, og fengu að vera hjá
okkur stóran part sumarsins. Á haustin þurftu allir að
fara í skólana og þá fóru allir burt frá Torfastöðum nema
við, sem áttum heima þar.
Einn dag um miðjan september, fann ég Björt,
þriggja ára gamla, inni í stofu og hún grét mjög sárt. Ég
vildi fá að vita hvað væri að, og þá segir hún mér að hún
væri svo leið, það færu allir farnir og hún einmana og
ekkert gaman lengur.
Við þetta velti ég því mjög fyrir mér
hvað ég gæti gert, og niðurstaða mín var
að ég yrði að biðja einhvem sem ætti böm
á hennar aldri að leyfa henni að koma til
sín einu sinni eða tvisvar í viku svo hún
gæti notið samveru jafnaldra sinna. Ég
hringdi í nokkrar mæður sem ég þekkti og
spurði hvort börnin þeirra vantaði ekki
félagsskap annarra bama eins og mín
gerðu. Þá kom í ljós að enginn var beint
til í að passa fyrir mig, en fleiri foreldrar
en ég, vildu gjarnan athuga hvort við
gætum ekki leyft börnunum að leika sér
saman einhvem tíma úr deginum.
Við ákváðum að halda fund og var
hann haldinn 2. októberl986 á Torfastöðum. Á þann
fund komu Áslaug á Espiflöt, Drífa og Ólafur á
Torfastöðum, Hafdís og Jón Þór í Friðheimum, Oddný á
Brautarhóli, Perla í Reykholti, Sigga Jóna í Hrosshaga og
Steinunn en hún bjó á Felli.
Þessi hópur ákvað að hann vildi reyna að stofna
lítinn leikskóla og við sendum út bréf til allra íbúa
sveitarinnar sem áttu börn og báðum fólk að hafa sam-
band við okkur ef það vildi vera með.
Undirtektir voru alveg ágætar og við bættust átta
foreldrar sem bjuggu sunnar í sveitinni þ.e. í Skálholti og
Laugarási. Þetta voru Sigurlaug og Magnús í Hveratúni,
Hanna María og Sigurður Árni í Skálholti, Sigrún og
Ingólfur á Engi, Gylfi læknir og Sigríður Gísladóttir, sem
var um tíma ráðskona hjá Gylfa lækni.
Við vildum ekki baka okkur óvild neinna, og reyn-
____________________________________Litli Bergþór 27
Drífa Krístjánsdóttir.