Litli Bergþór - 01.12.2003, Qupperneq 3
\
Ritstjómargrein
Ásýnd þessarar sveitar hefur breyst mikið á síðustu áratugum og er ekkert lát á því. Þær breytingar, sem eru mest
áberandi, eru annars vegar nýr skógur og his vegar frístundahús. Skógræktin er á ýmsa vegu. Víða er komið þétt
limgerði og há tré við íbúðarhús. Hvorttveggja veitir skjól fyrir næðingnum og þar með betri skilyrði til ræktunar
blóma og annarra jurta til gagns og yndisauka. Okostur við trjárækt við íbúðarhús er að þegar tré verða há byrgja þau
sýn og skyggja á það sem fólk vill sjá frá híbýlum sínum. Svipuð vandkvæði fylgja trjáplöntun meðfram vegum.
Oft virðist ekki hugað að því þegar verið er að setja niður plöntur að fyrr en varir eru þær orðnar stór tré, sem þurfa
mikið rúm fyrir laufskrúð sitt og loka sýn til umhverfisins. Víst er það verðugt verkefni að rækta tré til skjóls og
skrauts en tæplega tilhlökkunarefni að sjá aðeins fáa metra út frá vegum og götum í þéttbýli, þegar eftir þeim er farið.
Lág limgerði hafa ekki þessi vandkvæði en þjóna sama tilgangi og eru því æskileg bæði við hús og ferðaleiðir.
Hér eru einnig nokkur skógræktarsvæði, sem eru orðin eða eru að verða sýnileg. Þau breyta landslaginu mikið og
geta í einstaka tlvikum orðið til ama, ef þau byrgja fyrir fallega útsýn. En þau eru skemmtileg um að fara hvort sem
er gangandi eða ríðandi, ef þar eru opnar færar leiðir. Kostir skógræktarsvæðanna eru helstir friðsæld og gróður-ang-
an. Því verður að gæta mjög hófs í að beina þangað almennri umferð vélknúinna tækja, sem menga umhverfið með
hávaða og útblásturslofti. Slíkt ætti aðeins að vera fyrir þá sem þar eru að vinna eða geta.ekki komist um gangandi.
Ef til er það sjónarmið að gott sé að byrgja sumsstaðar sýn frá veginum, er það vissulega rétt að til eru staðir hér í
sveit, sem hvorki eru til ánægju fyrir heimamenn né sóma að sýna gestum. Við blasa byggingar,
sem er illa haldið við og allskonar drasl til lýta. Hús þurfa stöðugt viðhald, ef þau eiga að
líta vel út. Hér er oft umhleypingasamt veður, miklar hitabreytingar, úrkoma og vindur,
sem máir viðkvæma fleti svo flest hús þarf að mála á fárra ára fresti. Það kostar mikið,
bæði efni og vinnu, sem margt fólk hefur ekki ráð á, þó sumsstaðar sé vissulega sinnuleysi
um að kenna. Önnum kafið heimafólk hættir með tímanum að taka eftir skellum í málningunni, litlum
skemmdum, rusli og tækjum í óhirðu. Þá getur einhverskonar jákvæð hvatning komið að gagni.
Mögulegt er að einhver beiti sér fyrir að útvega ódýra málningu, og ef til vill væri til bóta að veita
viðurkenningu þeim sem breytti verulega umhverfi sínu til bóta. Þeir sem eru með hús sín vel hirt og
umhverfi fallegt þurfa yfirleitt ekki utanaðkomandi hvatningu, en hinir, sem ekki hefur tekist þetta,
gætu tekið sig á ef þeir fengju einhverskonar uppörvun. Mikill sigur væri unninn, ef allsstaðar væru
mannvirki eins vel útlítandi og þar sen þau eru fallegust og umhverfið hvarvetna eins og það gerist
best. Þá liði íbúum áreiðanlega vel og gestir færu héðan ánægðir og bæru þessari sveit vel söguna.
\
BISK-VERK
Tökum aö okkur alla byggingastarfsemi
Nýsmíði ■ Viðhald
Sumar húsaþj ónusta
Þorsteinn Þórarinsson, sími 486 8782
Bílasími 853 5391
GSM 893 5391
Fax 486 8745
J
Litli Bergþór 3