Litli Bergþór - 01.12.2003, Page 8
veginn höfðu menn meiri tíma, eða gerðu sér minni rellu út
af tímanum í þá daga.
L-B: Fluttist þú beint hingað í Laugarás frá S-
Reykjum?
Skúli: Jú, og þá var ástin komin í spilin — segir Skúli
og brosir við. -
Þarna á Syðri-Reykjum kynntist ég konu minni,
Guðnýju Pálsdóttur, frá Baugsstöðum í Gaulverjabæjar-
hreppi og það endaði auðvitað þannig að við fórum að
hugsa um hreiður eins og fuglarnir!
Hún var fædd 1920 og við höfðum reyndar kynnst áður
þegar hún var á Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og
mun það hafa verið fyrir mína tilstilli að hún kom að S-
Reykjum til að hjálpa til við heimilishaldið, með Elínu
ráðskonu okkar, í verkamannabústaðnum Nýborg. En það
var húsið þar sem við verkafólkið bjuggum og mötuðumst.
Þar búa nú þau Olafur Stefánsson og Barbara kona hans.
En þarna þróaðist semsé kunningsskapur okkar, sem hélst
óslitinn þar til hún lést árið 1992.
Arið 1945 frétti ég af lausri lóð hér í Laugarási sem var
til sölu. Lemmingsland var það kallað, en danskur maður,
sem Lemming hét hafði verið þar með garðyrkju. Þessa
lóð keypti ég og það voru skrítin kaup. Eg þurfti ekki að
borga krónu, heldur fékk bunka af víxlum, sem voru svo að
falla allan ársins hring. Það var Steindór Gunnlaugsson,
bróðir Skúla í Tungu, sem hafði milligöngu um kaupin og
hann skrifaði uppá hjá mér. Svo var framlengt og borgað
inná, þar til tókst að borga upp. Þetta var strembið, þótt
45.000,- þætti ekki stór upphæð í dag. En þetta var árið
1945 og þá var þetta þó nokkur upphæð.
Konunni þótti ómögulegt að búa á Lemmingslandi svo
við sóttum um nafn til Örnefnanefndar. Máttum senda inn
þrjár tillögur að nöfnum og átti Örnefnanefnd síðan að
Skúli og Guðný nýgift 1945. sr. Arelíus Níelsson gifti þau heima á
Baugsstöðum.
velja eitt af þeim. Ég stakk upp á 2 nöfnum, en þá vantaði
eitt og ég bar mig upp við sr. Eirík Stefánsson á
Torfastöðum, sem spurði hvort ég vildi ekki kalla býlið
Hveratún. Þá var Hilmar Stefánsson bróðir Eiríks í
Örnefnanefnd, og svo vildi til að Hveratún varð fyrir val-
inu. Ég kalla því að sr. Eiríkur hafi skírt býlið og þykir
heiður að því.
A lóðinni voru 3 lítil gróðurhús, um 100 ferm hvert
þeirra og lítið og lélegt íbúðarhús og þar byrjuðum við
Guðný búskap okkar. Fyrstu árin vorum við með kýr og
kindur til heimilisins, en svo lagðist það af.
L-B: Hverjir bjuggu í Laugarási þegar þið fluttuð
þangað og voru menn byrjaðir með garðyrkju hér þá?
Skúli: Á næstu lóð við okkur, á Sólveigarstöðum, var
gróðararstöð á vegum Náttúrulækningafélagsins, sem
Gróska hét og hafði Bjöm Kristófersson, síðar skrúðgarða-
verkstjóri í Reykjavík, forstöðu fyrir henni. Það voru einu
gróðurhúsin, fyrir utan okkar.
Hveratún 1968, séð til norðurs. lbúðarhús Skúla á miðri mynd.
Lengst t.h. gróðurhúsin þrjú og gamla íbúðarhúsið, sem Skúli
keypti. Sólveigarstaðir fremst og Ljósaland í baksýn.
Nú, fyrsta árið, sem við vorum hér, var Ólafur
Einarsson, læknir, í læknishúsinu og var þar með einhvern
búskap. Síðan kom Helgi Indriðason frá Ásatúni í
Hrunamannahreppi og tók við búskapnum ásamt Guðnýju
Guðmundsdóttur konu sinni, og nokkru síðar kom
Guðmundur bróðir hans og Jónína Jónsdóttir, kona hans, og
keyptu lóð með sumarbústað í Lindarbrekku og byrjuðu þar
með garðyrkju.
Um sama leytið og við fluttum í Laugarás, keypti svo
Jón Vídalín, (bróðir Guðnýjar, konu Helga,) Gróskuna og
hann varð næsti nágranni okkar.
Ég man líka eftir Guðrúnu í Höfða, en hún kom hingað
fyrstu árin til að þvo. Mér fannst alltaf gaman að koma til
hennar, því hún var mjög fróð og sérstök, en kannski
öðruvísi húsmóðir en maður átti að venjast.
L-B: Hvað ræktuðuð þið til að byrja með?
Skúli: Við byrjuðum með grænmeti, tómata, gúrkur og
steinselju. Svo var byggt við og stækkað smátt og smátt,
og nú eru þetta aðallega paprika, salat og steinselja sem við
erum með. Við höfum byrjað á ýmsu, byrjuðum einu sinni
á blómum, en þá féll verðið og allt fór í afföll, svo við
hættum við það. Núna eru um 2000 fermetrar undir gleri.
Yngsti sonur minn, Magnús, er garðyrkjufræðingur og
hefur starfað með mér frá því hann korn heim úr námi, um
1980 og tekur væntanlega við þessu öllu bráðlega. Hann
byggði íbúðarhúsið sitt á grunni gamla hússins 1983 og býr
núna þar með fjölskyldu sinni.
L-B: Hver eru börn ykkar Guðnýjar.
Skúli: Við eignuðumst 5 börn og af þeim búa 4 í
Litli Bergþór 8