Litli Bergþór - 01.12.2003, Page 25
dags. 15. júlí 2003 varðandi sameiningu heilsugæslu-
stöðva og heilbrigðisstofnunar á Suðurlandi. Óskað er
eftir afstöðu Bláskógabyggðar til sameiningarinnar.
Byggðaráð vill taka fram að Heilsugæslustöðin í
Laugarási hefur þjónað íbúum sveitarfélagsins vel og
allar breytingar sem stuðla að því að viðhalda þeirri
þjónustu eða auka eru jákvæðar. Ef sameining
heilbrigðisstofnana á Suðurlandi verður til þess að skerða
þjónustu Heilsugæslustöðvarinnar í Laugarási þá er
breytingunni mótmælt. Byggðaráð vill jafnframt benda
ráðuneytinu á nauðsyn þess að miða þjónustu, s.s. heilsu-
gæslu, við þann fjölda sem dvelur á svæðinu. íbúar á
svæði Heilsugæslustöðvar Laugaráss eru um 2.500 auk
þess sem fólk dvelur í auknum mæli í yfír 4000 frístunda-
húsum stóran hluta ársins. Áætlað er að íbúafjöldi á
svæðinu fjórfaldist yfir sumartímann auk stöðugt aukinn-
ar umferðar um helstu ferðamannastaði landsins s.s.
Þingvelli, Laugarvatn, Gullfoss, Geysi, Skálholt, Flúði og
Þjórsárdal. Auk þess má benda á að öflugt og vaxandi
skólahald er á Laugarvatni bæði á framhaldsskólastigi og
háskólastigi
Bréf frá Félagsmálaráðuneytinu dags. 24. júní 2003
þar sem fram kemur að Bláskógabyggð er úthlutað kr.
3.429.804- en það er tekjujöfnunarframlag sem er út-
hlutað óbreytt út kjörtímabilið í kjölfar sameiningar
sveitarfélaganna.
Sala á Lindarbraut 10. Guðmundur B. Böðvarsson
kt. 180366-4079 og Kristrún Sigurfinnsdóttir kt. 040368-
3379 hafa samið við Bláskógabyggð um kaup á
Lindarbraut 10 (Hjúkkó). Byggðaráð felur Sveini A.
Sæland oddvita að ganga frá sölunni.
18. fundur sveitarstjórnar haldinn 15. júlí.
Mættir voru allir starfandi sveitarstjóranrmenn nema
Margrét Baldursdóttir, sem boðaði forföll
Sveitarstjórn vill taka fram að ein af forsendum
fyrir sameiningu Brunavarna Ámessýslu og Slökkviliða
Laugardals og Biskupstungna var að tækjakostur
slökkviliðsins á svæðinu verði endurnýjaður. Formanni
byggðaráðs er falið að vinna að málinu áfram.
Sveitarstjórn samþykkir framkomna viljayfirlýsingu
í orkumálum og leggur til að sem fyrst verði tekið upp
samstarf við Orkuveitu Reykjavíkur á gmndvelli hennar.
Fyrirspurnir T-listans.
a. Óskað er eftir að fá starfslýsingu þá sem
Kjalvörður er ráðinn eftir. Sveinn lagði fram starfslýsingu
afréttarvarðar á Kili og var rætt um starf afréttarvarðarins
og starfslýsingar almennt.
b. Fyrirspurn um heimasíðu Bláskógabyggðar þ.e.
hverju það sæti að gerð hennar er ekki komin lengra.
Sveinn greindi frá því að vegna sumarleyfa og anna á
skrifstofu sveitarfélagsins þá hefur ekki tekist að klára
verkið.
19. fundur sveitarstjórnar 27. ágúst 2003.
Allir starfandi sveitarstjómarmenn mættir.
Ársreikningur Bláskógabyggðar fyrir árið 2002, auk
ársreiknings Biskupstungnaveitu og Hitaveitu
Laugarvatns, fyrri umræða.
Einar Sveinbjörnssson endurskoðandi hjá KPMG
kynnti ársreikninginn ásamt Ragnari S. Ragnarssyni auk
þess sat fundinn undir þessum lið Elsa Pétursdóttir
skoðunarmaður reikninga. Árið 2002 var um margt
sérstakt vegna sameiningar þriggja sveitarfélaga í
Bláskógabyggð. Á árinu var unnið að breytingum á
reiknisskilum sveitarfélagsins í samræmi við ný lög og
reglugerð nr. 944/2000 um bókhald og ársreikninga
sveitarfélaga. Þær breytingar eru helstar að
ársreikningur er færður til samræmis við fyrirtæki al-
mennt en ekki með sértækum aðferðum eins og verið
hefur. Samkvæmt ársreikningi A og B hluta eru rekstrar-
tekjur 374.057.000- rekstrargjöld 381.169.000- og fjár-
magnsliðir 27.296.000-. Rekstramiðurstaða var neikvæð
um 34.408.000- sem er frávik uppá 15.375.000- frá
fjárhagsáætlun. Fjárfesting A og B hluta samtals nema
16.8 milljónum en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð
fyrir fjárfestingum að fjárhæð 5.5. millj. kr. Þá var gert
ráð fyrir sölu eigna að fjárhæð 16.4 millj. kr. sem ekki
gekk eftir. Ljóst er að vinna þarf verulega að lækkun
rekstrarkostnaðar og er lagt til að byggðaráð vinni
tillögur að því hið fyrsta og leggi fyrir sveitarstjóm eigi
síðar en í október þannig að þær nýtist við gerð fjárhags-
áætlunar 2004. Orðið var gefið laust um reikninginn og
komu fram ýmsar spurningar ásamt óskum um nánari
sundurliðun á honum. Kjartan spurði m.a. um uppgjör
fjallskila í sveitarfélaginu og verða þau mál skoðuð fyrir
næsta fund. Nánari sundurliðun reikningsins verður send
til fundarmanna fyrir næsta fund og óskað er eftir því að
spurningum varðandi hann verði skilað fyrir síðari
umræðu með minnst sólahrings fyrirvara. Stefnt er að
síðari umræðu um reikninginn fimmtudaginn 4. sept.
2003. Reikningnum er vísað til síðari umræðu.
Fundargerð fræðslunefndar frá 21. ágúst 2003 lögð
fram til staðfestingar. Fundargerðin er staðfest en í lið 2
er því vísað til sveitarstjórnar að taka afstöðu til umsókna
um leikskólavist í Álfaborg. Stefna sveitarstjómar hefur
verið sú að hafa leikskólapláss fyrir þau börn sem þess
þurfa. Þegar að starfsemi Álfaborgar skólaárið 2003 -
2004 var skipulögð þá var hægt að verða við óskum allra
sem rétt höfðu á leikskólaplássi fram til áramóta 2003 -
2004. Rétt áður er leikskólinn opnaði þá bárust
umsóknir fyrir 3 börn til viðbótar. Eins og staðan er í
dag þá er ekki hægt að vista þessi böm en þau verða
tekin inn eins fljótt og auðið er.
Deiiiskipulag Skálabrekku, Þingvallasveit.
Samkvæmt bréfí dagsettu 20. ágúst 2003 frá Guðmundi
Hólmsteinssyni þá er óskað eftir samþykki sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar á drögum að skipulagi hluta
Skálabrekkulands í Þingvallasveit. Sveitarstjóm telur
skipulagstillöguna ekki samræmast niðurfelldu
svæðisskipulagi Þingvallasveitar, sem samþykkt hefur
verið að starfa eftir. Sveitarstjóm telur eðlilegt að þar sem
um viðamikla frístundabyggð er að ræða ásamt verslunar-
lóð við Þingvallaveg, þá sé eðlilegt að tillagan verði tekin
fyrir við afgreiðslu aðalskipulags, sem nú er í vinnslu og
áætlað að ljúki eigi síðar en á miðju ári 2004. Áætlað er
að ræða við alla hagsmunaaðila í haust og samræma óskir
þeirra í heildarskipulagi fyrir allt svæðið.
Minningarsjóður Biskupstungna, ársreikningur
2002. Sveinn kynnti reikninginn og var hann samþykkt-
Litli Bergþór 25