Litli Bergþór - 01.12.2003, Blaðsíða 26
ur. Tekjur sjóðsins á árinu 2002 voru kr. 16.700-, gjöld
kr. 0- og vaxtatekjur ásamt verðbótum kr. 209.820-.
Niðurstaða rekstrar var kr. 205.539- og skuldir og eigið fé
erkr.2.731.779-.
Námsleyfi sveitarstjóra. Lagt fram bréf Ragnars S.
Ragnarssonar sveitarstjóra þar sem hann óskar eftir því
að starfshlutfall hans verði minnkað um 20% til þess að
honum gefist tækifæri til þess að stunda nám með starfi
sínu næstu tvo vetur. Samþykkt að verða við ósk Ragnars
og mun Sveinn A. Sæland taka að sér 20 % staðgengils-
hlutverk. Fulltrúar T-listans sátu hjá við afgreiðslu
málsins.
Kynnt breytt fyrirkomulag á skrifstofu Bláskóga-
byggðar. Helstu breytingarnar eru á opnunartíma skrif-
stofunnar og símatíma. Eftirfarandi var samþykkt:
a. Skrifstofa Bláskógabyggðar verður opin mánudaga
til fimmtudaga frá kl. 8:30 - 16 og föstudaga frá kl. 8:30 -
12:30.
b. Símatími verður frá kl. 8:30 - 12:30 alla virka daga
vikunnar.
c. Símatími sveitarstjóra verður á föstudögum frá kl.
10- 12.
d. Viðtalstími oddvita verður á þriðjudögum frá kl. 10
- 12.
Með þessu móti verði betur hægt að stýra vinnufyrir-
komulagi, ná meiri afköstum og árangri í verkefnum
skrifstofunnar. Þessum breytingum er ætlað að auka skil-
virkni, draga úr yfirvinnu og álagi á starfsfólk skrifstof-
unnar, sem verið hefur umtalsvert frá sameiningu sveitar-
félaganna vorið 2002.
20. fundur sveitarstjórnar 4. sept. 2003.
Allir aðalmenn mættir.
Arsreikningur Bláskógabyggðar vegna ársins 2002
síðari umræða. Við fyrri umræðu um ársreikninginn var
spurt um uppgjör fjallskila í Laugardal en þegar þau mál
voru könnuð þá kom í ljós að uppgjör hafði ekki verið
gert og verða þau mál skoðuð með uppgjöri þessa árs.
Fulltrúar T-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Það vekur furðu T- listans að ársreikningur skuli fara 15
milljónum fram úr endurskoðaðri fjárhagsáætlun sem
afgreidd var af sveitarstjóm 18. desember 2002. Athygli
vekur að eftirtaldir liðir hafa farið mjög fram yfir fjár-
hagsáætlun. Félagsþjónustan 6,9 milljónir, byggingar-
fulltrúi 2 milljónir, atvinnumál / tjaldsvæði við
Laugarvatn 1,4 milljónir. Sameiginlegur kostnaður /
sveitarstjórn 2 milljónir, endurskoðun 1 milljón, skrif-
stofukostnaður 5 milljónir. Samtals fer sameiginlegur
kostnaður 10 milljónir framúr fjárhagsáætlun. Áhalda-
hús kr. 4,5 milljónir."
Fulltrúar Þ-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Þ-listinn álítur að hluta af þessari bókun T-listans hafi
verið svarað. Að öðru leyti vísum við til bókunar í 1. lið
19. fundar sveitarstjórnar.“
Þá lagði T-listinn fram eftirfarandi bókun:
„Sveitarstjórn skorar á veitustjórn að endurskoða og sam-
ræma gjaldskrá beggja veitnanna, Biskupstungnaveitu og
Hitaveitu Laugarvatns, þar sem ekki verður séð af fram-
lögðum reikningum veitnanna, að tekjur dugi fyrir gjöld-
um og afskriftum."
Tillagan var borin upp og var hún felld með 4
atkvæðum Þ-listans gegn 2 atkvæðum T-listans og einn
sat hjá.
Þ-listinn lagði fram eftirfarandi tillögu: „Skorað er á
veitustjórn að hún endurskoði gjaldskrár sínar í ljósi
breyttra aðstæðna og niðurstöðu ársreikninga veitnanna.“
Tillagan var borin upp og var hún samþykkt með 4
atkvæðum Þ-listans en 3 sátu hjá.
Ársreikningur Bláskógabyggðar var síðan samþykktur
samhljóða.
Umræða um eyðingu refa og minka.
Tillaga T- listans:
Hvatning til ríkisstjórnarinnar (umhverfisráðherra):
„Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hvetur stjómvöld til
að leggja fram aukið fjármagn til eyðingar refa og minka
og stuðli þannig að því að þessi meindýr hafi hvergi
griðland“. Tillagan var samþykkt samhljóða og var
Drífu og Margeiri falið að semja greinargerð með til-
lögunni.
Fyrirspurn T- um framtíðarskipan áhaldahúsanna.
Fram kom í svari Margeirs að nefnd sú sem skipuð var til
að koma með tillögur að framtíðarskipan áhaldahúsanna
hefur sett sér það markmið að skila tillögum til
byggðaráðs fyrir fund ráðsins í október.
Fyrirspurn T-listans um heimasíðu Bláskógabyggðar.
Fram kom í svari oddvita að gerð heimasíðunnar er
lokið og búið að safna saman miklu af grunnupplýs-
ingum. Vegna sumarleyfa hefur enn ekki tekist að færa
inn á hana þær upplýsingar.
Heimasíðan verður opnuð á næsta sveitarstjórnar-
fundi 7. október 2003. Bjarni lagði til að á næsta fundi
sveitarstjórnar verði tekin upp umræða um sameiningu
sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu.
5. Fyrirspurn T-listans: Hvað líður reglugerð um
hundahald. Hundareglugerð fyrir Bláskógabyggð var
staðfest í Umhverfisráðuneytinu 1. sept. 2003. Gjaldskrá
um hundahald í Bláskógabyggð var lögð fram til staðfest-
ingar og var hún staðfest með 6 atkvæðum en 1 sat hjá.
21. fundur byggðaráðs 30. sept. 2003
Mættir voru byggðaráðsfulltrúar sveitarfélagsins.
Ragnar S. Ragnarsson sveitarstjóri ritaði fundargerð.
Skipulagsmál. Mál sem verið hafa í auglýsingu.
Samkvæmt 1. mgr. 25.gr. og 1. mgr. 26. gr. Skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 var óskað eftir athugasemdum
við eftirfarandi deiliskipulagstillögur:
a) Haukadalur, gert ráð fyrir byggingu íbúðarhúss
vestan Geysissvæðisins, sunnan Biskupstungnabrautar.
b) Kjarnholt I, gert er ráð fyrir 5 lóðum undir frí-
stundabyggð
c) Torfastaðir, gert er ráð fyrir 10 lóðum undir
frístundabyggð
d) Einihlíð í landi Einiholts, gert er ráð fyrir 48
lóðum undir frístundabyggð í landi Einiholts 3 meðfram
Hvítá, austan þjóðvegar nr. 358.
e) Grænahlíð í landi Grafar, gert er ráð fyrir 11
nýjum lóðum undir frístundahús.
f) Reykholt/Efling, gert er ráð fyrir 7 parhúsalóðum í
landi Eflingar í suðurhlíðum Reykholts, norðan
Tungufljóts.
Litli Bergþór 26.