Litli Bergþór - 01.12.2003, Page 29
Bréf frá Sigurði Halldórssyni dags. 9. október 2003
þar sem hann lýsir áhuga á kaupum á áhaldahúsi sveitar-
félagsins á Laugarvatni. Áhaldahúsið á Laugarvatni hefur
ekki verið sett á sölu en þegar að því kemur þá leggur
byggðaráð til að rætt verði við Sigurð sem og aðra áhuga-
sama kaupendur.
Bréf frá Samvinnunefnd miðhálendisins dags. 27.
setember. 2003 þar sem óskað er eftir umsögn um að
Kerlingarfjöll verði færð upp um flokk frá því að vera
skálasvæði í að vera hálendismiðstöð. Byggðaráð gerir
ekki athugasemd við það að Kerlingafjöll verði gerð að
hálendismiðstöð.
Bréf frá Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytinu
dags. 16. október 2003 varðandi sameiningu heilbrigðis-
stofnana og heilsugæslustöðva á Suðurlandi. Lagt fram
til kynningar.
Bréf frá Félagsmálaráðuneytinu dags. 17. október
2003 varðandi framlag vegna jöfnunar á tekjutapi sveitar-
félaga í kjölfar breytinga á álagningastofni fasteigna-
skatts. Samkvæmt þessu er endanlegt útreiknað framlag
til Bláskógabyggðar vegna ársins 2003 kr. 13.838.458-.
Bréf frá Jóni Helgasyni dags. 21. október 2003
varðandi lagningu nýs Gjábakkavegar og mögulega
breytingu á aðalskiplagi. Byggðaráð telur að um óveru-
lega breytingu á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000 -
2012 sé að ræða en óskar eftir staðfestingu
Skipulagsstofnunar á því að svo sé. Sveitarstjóra falið að
vinna greinargerð með áliti byggðaráðs.
Byggðaráð leggur til að sveitarstjóra verði veitt heim-
ild til að leita hagstæðra tilboða í tryggingar og endur-
skoðun fyrir sveitarfélagið í samvinnu við önnur sveitar-
félög.
Bréf til Fjárlagsnefndar Alþingis / þingmanna
Suðurlands dags. 22. október 2003 varðandi flóðlýsingu
við Gullfoss. Byggðaráð styður erindið og felur oddvita
að fylgja því eftir.
22. fundur sveitarstjórnar 4. nóv. 2003
Mætt: Sveinn A. Sæland, Margeir Ingólfsson, Drífa
Kristjánsdóttir, Kjartan Lárusson, Snæbjöm Sigurðsson,
Bjarni Þorkelsson, Sigurlaug Angantýsdóttir og Ragnar
Sær Ragnarsson, sem ritaði fundargerð.
Fundargerð byggðaráðs frá 28. október 2003, tekin
fyrir og staðfest.
Ákvörðun um álagningu gjalda 2004. Eftirfarandi
tillögur voru samþykktar.
A. Útsvarsstofn 13,03 %.
B. Álagningarprósenta fasteignagjalda, A-flokkur 0,6%
og B-flokkur 1,2%. Ákveðið að fasteignagjöld á
íbúðarhúsnæði sem aldraðir eiga og búa einir í, falli niður.
Þetta á ekki við um þjónustugjöld þ.e. vatnsskatt, seyru-
losunargjald, sorpeyðingargjald né annað húsnæði í eigu
viðkomandi.
C. Vatnsskattur 0,3% af álagningarstofni fasteigna.
Hámarksálagning verði kr. 17.000,- á sumarhús og
íbúðarhús.
D. Sorpeyðingargjöld verði kr. 7.980.- á íbúðarhús, kr.
5.880,- á sumarhús og kr. 17.640.- á lögbýli og smá-
rekstur. Aukagjald fyrir að sækja rusl heim að húsum á
Laugarvatni verði kr. 8.300,- innheimtist með
fasteignagjöldum. Byggðaráði falið að útfæra gáma-
þjónustu og gjaldskrá fyrir fyrirtæki og stofnanir sem yrði
innheimt eftir á í samræmi við umfang.
E. Holræsagjald vegna kostnaðar við fráveitukerfi /
seyrulosun á Laugarvatni verði 0,1% af fasteignamati.
Samþykkt að unnið verði í samráði við önnur sveitarfélög
í uppsveitum Árnessýslu að gerð gjaldskrár fyrir seyru-
losun í heild fyrir öll uppsveitarfélögin.
F. Lóðarleiga hækkar samkvæmt visitölu, sem bundin
er í viðkomandi samningum eða sem prósenta af mati
lóðar.
G. Gisting í fjallaskálum verði kr. 1500.- per gistinótt.
íbúar Bláskógabyggðar fái 50% afslátt.
H. Þjónusta vegna lengdrar viðveru í Grunnskóla
Bláskógabyggðar verði kr. 170/klst.
Beiðni um stofnun nýbýlis í landi Reykjavalla.
Osk frá Oskari Bjömssyni og Jóhönnu Óskarsdóttur,
Hafnarfirði um stofnun lögbýlisins Goðatúns á 13 ha.
spildu úr landi Reykjavalla. Áætlað er að hefja þar skóg-
rækt og aðra uppgræðslu lands ásamt hestamennsku í
smáum stíl. Engar athugasemdir.
Deiliskipulag fylgir með umsókninni þar sem skipu-
lagsfulltrúi fer þess á leit við sveitarstjórn að hún sam-
þykki að auglýsa tillöguna. Sveitarstjóm samþykkir
deiliskipulagið og felur skipulagsfulltrúa að fullvinna
málið þar sem m.a. yrði tryggð aðkoma landeiganda að
landinu.
Deiliskipulag við Háholt 10, Laugarvatni, grenndar-
kynning.
Breyting skipulagsins snýst um að lóðarmörkum við
Háholt 10 er breytt og kvöð er sett á skólplögn og
bflastæðum fjölgar. Grenndarkynning hefur farið fram.
Samþykkt.
Lögð fram fundargerð fastafulltrúa fræðslunefndar
26. október 2003. Sveitarstjórn leggur til að í framhaldi
af fundi fastafulltrúa verði tekin upp vistunartími 8:00 —
16:00 á leikskólum Bláskógabyggðar. Einnig samþykkt
að taka upp gjald kr. 600, ef bam er sótt eftir umsamdan
tíma. Þá er sveitarstjóra falið að skoða nánar vistun frá
7:45 í samráði við leikskólastjóra.
Önnur mál. Fyrirspurnir: (frá T- lista)
a) Ljósafossskóli: Fyrirspurn: Samkvæmt upp-
lýsingum sem T listinn hefur, er fulltrúi Bláskógar-
byggðar í fræðslunefnd Ljósafossskóla ekki boðaður
lengur á fundi fræðslunefndar Ljósafossskóla. Hverju
sætir það?
í svari oddvita kom fram að þar sem Bláskógabyggð
hefur selt 14% hlut sinn í Ljósafossskóla til Grímsnes og
Grafningshrepps féll niður aðkoma að skólanefnd
Ljósafossskóla. T-listinn telur eðlilegt að fulltrúi
Bláskógabyggðar hefði verið látinn vita um þessa aðkomu
að fræðslunefnd.
b) Lýsing í þéttbýli. Samþykkt að skora á
Vegagerðina að ljúka uppsetningu lýsingar í gegnum
Laugarvatn og Reykholt hið fyrsta. Sveitarstjóra falið að
fylgja málinu eftir með greinargerð.
c) Lögð fram ósk frá T-listanum um upplýsingar unt
rekstur mötuneyta skólans. Hver eru kjör þeirra kvenna
sem starfa við mötuneytin?
Litli Bergþór 29