Litli Bergþór - 01.12.2005, Page 21
2004 vantaði 40 milljónir króna uppá að endar næðu
saman í rekstrinum. Árið 2002 vantaði 34 milljónir og
árið 2003 var rekstrarkostnaður umfram tekjur 22
milljónir. Alls er rekstrartap áranna 2002-2004 kr. 96
milljónir á verðlagi hvers árs. Það virðist fyrirséð, að tap
ársins 2005 verði ekki minna en fyrri ára, enda eru lán-
tökur vegna framkvæmda mjög miklar. Það virðist stutt í
að Bláskógabyggð lendi í gjörgæslu hjá félagsmála-
ráðuneytinu.”
Bókun Þ- lista: „Ljóst er að samkvæmt skýringum
sveitarstjóra á fundi sveitarstjómar þann 24. maí s.l. þarf
að taka rekstur sveitarfélagsins til alvarlegrar skoðunar.
Uppbygging í sveitarfélaginu hefur verið mikil og hröð
og fylgir henni mikill kostnaður. Einnig er ljóst að ekki
hefur náðst samstaða til hagræðingar í veigamiklum
málaflokkum þannig að ávinningur sameiningar hefur
ekki skilað sér sem skyldi. Ásökunum um fjárhaldsóreiðu
er vísað alfarið á bug.” Reikningurinn var samþykktur
með 5 atkvæðum en 2 sitja hjá.
Reikningurinn staðfestur með undirritun sveitar-
stjómar og sveitarstjóra
Seyrulosun. Gestur undir þessum lið var Elsa
Ingjaldsdóttir, framkv.stj. Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Farið var ítrarlega yfir heimildir sveitarfélagsins til að
leggja á seyrulosunargjöld og var upplýst af fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að þær em
skýrar og samþykktir til staðar. Lagðar fram samþykktir
og gjaldskrá sveitarfélagsins. Kynnt tölvusamskipti
sveitarstjóra við umhverfisráðuneytið.
T- listinn lagði fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjóm
samþykkir að fresta álagningu seyragjalda árið 2005.”
Tillagan felld með 5 atkvæðum gegn 2.
Bókun Drífu:
„Eg tel ákvörðun um að leggja á seyrugjald hefði átt
að vera miklu betur unnin og ígrunduð. Meirihluti
sveitarstjómar lagði fram tillögur sínar um seyrugjald í
nóvember 2004 og tók ákvörðun um álagningu þess á
fundi sveitarstjómar 7. desember 2004.1 umræðum kom
fram að ég setti stórar spumingar á fyrirkomulag seyru-
losunar og gjaldtöku vegna hennar. Með bókun minni vil
ég árétta að ég tel að vinna hefði átt betur og lengur að
undirbúningi málsins áður en það var samþykkt. Mér
finnst að í losunargjaldi eigi að liggja hvati til að frá-
rennsli og rotþró sé unnið sameiginlega fyrir mörg
sumarhús. Með fyrirliggjandi ákvörðun um seyrugjald
þykir mér vanta hvata til að staðið sé vel að frágangi og
gerð rotþróa í samfélögum frístundabyggða.”
Bókun Þ- lista: „Sveitarstjómum er skylt að sjá til
þess að komið sé á kerfisbundinni tæmingu á seym úr
rotþróm í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 799/1999
um meðhöndlun seyru. Samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998
um hollustuhætti og mengunarvamir er sveitarstjómum
heimilt að setja samþykktir og gjaldskrá um meðferð
úrgangs og skólps.”
Kosningar í nefndir til eins árs:
a. Kosning oddvita. Tillaga um að Sveinn A. Sæland
verði kosinn oddviti. Samþykkt með 5 atkvæðum og 2
sátu hjá.
b. Kosning varaoddvita. Tillaga um að Snæbjöm
Sigurðsson verði kosinn varaoddviti. Samþykkt með 5
atkvæðum og 2 sátu hjá.
c. Kosning þriggja fulltrúa í byggðaráð og þriggja til
vara. Kosin vora sem aðalfulltrúar í byggðaráð: Margeir
Ingólfsson formaður, Sveinn A. Sæland og Kjartan
Lárusson. Til vara Snæbjöm Sigurðsson, Margrét Bald-
ursdóttir og Drífa Rristjánsdóttir. Samþykkt samhljóða.
d. Kosning yfirkjörstjómar. Kosningu frestað til næsta
fundar sveitarstjómar.
e. Kosning undirkjörstjómar fyrir Þingvallasveit.
Kosin voru: Ragnar Jónsson, Jóhann Jónsson og
Steinunn Guðmundsdóttir. Til vara Gunnar Þórisson,
Rósa Jónsdóttir og Guðrún S. Kristinsdóttir.
f. Kosning undirkjörstjómar fyrir Laugardal. Kosin
voru Ámi Guðmundsson, Halldóra Guðmundsdóttar og
Elsa Pétursdóttir. Til vara Páll Pálmason. Helga Jóns-
dóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
g. Kosning undirkjörstjómar fyrir Biskupstungur.
Kosin vom Gústaf Sæland, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
og Oskar T. Guðmundsson. Til vara Elínborg
Sigurðardóttir, Bjami Kristinsson og Ólafur Einarsson.
h. Kosning fulltrúa á aðalfund SÁSS. Kosin voru:
Sveinn A. Sæland, Margeir Ingólfsson og Drífa
Kristjánsdóttir. Til vara Sigurlaug Angantýsdóttir,
Snæbjöm Sigurðsson og Kjartan Lárusson.
Aðalskipulag Iðu. Lagðar fram fjórar aðalskipulags-
breytingar vegna Iðu I og II. Sveitarstjóm samþykkir að
auglýsa aðalskipulagsbreytingamar í samræmi við 18. gr.
skipulags — og byggingarlaga en minnir á að við gerð
deiliskipulags verði tekið tillit til vatnsbóls sveitarfélags-
ins. Skipulagsfulltrúa falið að auglýsa viðkomandi
breytingar.
45. fundur byggðaráðs 28. júní 2005.
Mættir voru allir aðalfulltrúar og ritaði formaður fund-
argerð.
Bréf frá Karli Axelssyni f.h. Þingvallanefndar, dags.
1. júní 2005, varðandi ólögmætar framkvæmdir á lóðinni
Neðristígur 9 í landi Kárastaða. Skipulagsfulltrúa sveitar-
félagsins hefur verið sent erindið og mun hann vinna að
því eins og lög og reglur gera ráð fyrir.
Lagður fram listi yfir gamlar útistandandi kröfur
sveitarfélagsins, sem ekki er talið að náist að innheimta.
Um er að ræða mötuneytisskuldir kr. 510.112 og leik-
skólaskuldir kr. 408.637. Byggðaráð samykkir að
skuldimar verði felldar niður.
Verðkönnun vegna flutnings og útjöfnunar á muln-
ingi. Samkvæmt könnuninni buðu Ásvélar ehf lægsta
verðið, eða kr. 1.508.500, og er samþykkt að semja við
þá á grundvehi þess verðs.
Bréf frá Ásgeiri Margeirssyni fyrir hönd Orkuveitu
Reykjavíkur, dags. 23. júní 2005, þar sem fram kemur að
Orkuveitan er tilbúin að leggja kr. 2.500.000 til
verkefnisins „hækkun Hagavatns”. Byggðaráð þakkar
Orkuveitunni framlagið og mun sjá til þess að hún fái
send umbeðin gögn um verkefnið.
Bréf Ragnars S. Ragnarssonar, sveitarstjóra
Bláskógabyggðar, dags. 27. júní 2005, ásamt samningi
um starfslok hans. Af persónulegur ástæðum óskar
Ragnar eftir því að láta af störfum sem sveitarstjóri
Bláskógabyggðar frá og með 1. ágúst n.k. Byggðaráð
staðfestir starfslokasamninginn.
Erindi lögð fram til kynningar:
Bréf til Jöfnunarasjóðs sveitarfélaga varðandi styrk
við undirbúningsvinnu sameiningar sveitarfélaga.
Jöfnunarsjóður mun styrkja verkefnið um kr. 3.731.750.
Bréf frá ÍSÍ, dags. 10. júní 2005, varðandi íþróttir og
heilsurækt eldri borgara.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 15.
júní 2005, varðandi skipan í starfshóp til að meta áhrif
dóms Hæstaréttar varðandi búsetu í frístundabyggð á
21 Litli Bergþór