Litli Bergþór - 01.12.2005, Page 23
fengleika svæðisins. Framganga nefndarinnar í málinu
frá upphafi hefur verið mótsagnakennd og skilaboðin
misvísandi. Þessi framganga er að mati sveitarstjómar
með öllu ólíðandi og setur fyrirhugað samkomulag Þing-
vallanefndar og sveitarfélagsins í uppnám. Eyða verður
óvissu um afstöðu nefndarinnar til heilsársvegar á þess-
um stað og hvort nefndin sé í raun mótfallinn gegnum-
akstri um Þingvallasigdældina eins og skilja má á
viðtölum við Pétur M. Jónasson sem hefur haft mikil
áhrif á skoðanir nefndarinnar.
Sveitarstjóm mun ekki standa í vegi fyrir ferli málsins
hér eftir sem hingað til og ítrekar vilja sinn til að heils-
ársvegur sem uppfylli nútímasjónarmið um öryggi og
samgöngubætur verði lagður milli Laugardals og Þing-
vallasveitar. Með nýjustu yfirlýsingum Þingvallanefndar
um að hún telji heppilegast að Gjábakkavegur liggi innan
þjóðgarðsmarka frá Dímon að Gjábakka lítur sveitar-
stjórn svo á að yfirlýsing nefndarinnar frá 19. apríl 2004
um að vegurinn skuli liggja utan þjóðgarðsmarka sé
fallin úr gildi. Til þessa hefur nefndin ekki lýst sig and-
víga heilsársvegi milli Laugarvatns og Þingvalla og því
hlýtur heilsársvegur á þessum stað að uppfylla kröfur
Vegagerðarinnar um uppbyggðan heilsársveg sem hefur
einhverja röskun í för með sér.
Við undirbúning gerðar matskýrslunnar kynnti Vega-
gerðin leið frá Gjábakka sem kölluð var leið 12 og var
það skoðun sveitarstjómar að sú leið væri heppilegust
með tilliti til öryggis-, hagkvæmnis- og umhverfissjónar-
miða. Sveitarstjóm ákvað að samþykkja ekki þá leið, til
að koma til móts við óskir Þingvallanefndar um að veg-
urinn skyldi vera utan þjóðgarðsmarka. Nú hefur komið
fram að Þingvallanefnd gerir ekki athugasemd við, að
vegurinn sé uppbyggður innan þjóðgarðsins.
í ljósi þessa vill sveitarstjóm beina þeirri ósk til Þing-
vallanefndar að leið sú sem kölluð var númer 12 í
fmmhönnun Vegagerðarinnar og liggur að óvemlegum
hluta innan þjóðgarðsmarka verði hluti að nýrri mats-
skýrslu. Lítur sveitarstjóm svo á að hér sé um sanngimis-
mál að ræða sem auðveldað getur framtíðar samskipti
milli þeirra sem með málefni Þingvallasveitar fara.
Sveitarstjóm vill einnig beina þeirri ósk sinni til
Vegagerðarinnar að þær tafir sem óhjákvæmilega verða á
framkvæmdinni megi verða til þess að verkið verði boðið
út í einum áfanga sem gæti unnið upp þá töf sem hinn
óvænti úrskurður ráðherra hefur valdið.“
Kjalvegur. Lagt fram erindi frá Atvinnuþróunarsjóði
Suðurlands um uppbyggingu heilsársvegar á milli Suður-
og Norðurlands í samvinnu við Norðurveg ehf. Tilgangur
erindisins er að kanna áhuga á aðkomu að verkefninu og
þátttöku í áðumefndu hlutafélagi. Eftirfarandi bókun var
samþykkt samhljóða: „Sveitarstjóm Bláskógabyggðar
samþykkir að leggja fram allt að kr. 500.000 sem hlutafé
í Norðurveg ehf. Tilgangur félagsins er að ljúka nauðsyn-
legum athugunum á byggingarkostnaði, rekstrarkostnaði
og arðsemismati og að kynna málið fyrir sveitarfélögum,
stjómvöldum, þingmönnum, hagsmunaaðilum og
almenningi. Sveitarstjóm lýsir yfir fullum stuðningi við
framkomna hugmynd.“ Umrædd fjárhæð verður tekin inn
á fjárhagsáætlunun ársins 2006.
Austureyjarvegur. Sveitarstjóm samþykkir að í sam-
starfi við Rafiðnaðarsamband Islands verði Bláskóga-
byggð framkvæmdaraðili að þeirri uppbyggingu sem
liggur fyrir á Austureyjarvegi að því tilskyldu að loforð
um fjárframlög frá landeigendum og sumarhúsaeigendum
liggi fyrir. Fyrir liggur að landeigendur og sumarhúsa-
eigendur á svæðinu ætla að leggja fram kr. 13.500.000.
Nú þegar er gert ráð fyrir því að á næstu tveimur árum
fari þrjár milljónir af safnvegafé sveitarfélagsins í þetta
verkefni en það em rúm 40% af úhlutuðu fé í þennan
málaflokk. Auk þess samþykkir sveitarstjóm að leggja til
við Vegagerðina að á árunum 2007 - 2009 verði lögð í
verkefnið kr. 500.000 á ári af safnvegafé sveitarfélagsins.
Oddvita er falið að fylgja málinu eftir af hálfu sveitar-
félagsins.
Bréf frá Vegagerðinni, dags. 28. júní 2005, þar sem
fram kemur að úthlutað hefur verið til Bláskógabyggðar
kr. 800.000 til endurbóta á vegi að Fremstaveri árið
2005.
Tillaga um fullnaðarafgreiðslu byggðaráðs. Lögð var
fram eftirfarandi tillaga oddvita: „Sveitarstjóm Bláskóga-
byggðar samþykkir að á meðan að sumarleyfi sveitar-
stjónrar stendur yfir verði byggðaráði falið fullnaðar-
afgreiðsla byggingar- og skipulagsmála sveitarfélagsins".
Samþykkt samhljóða.
Efnistaka í Öxará. Þann 30. júní 2005 stöðvaði
Arinbjöm Vilhjálmsson skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins
efnistöku á vegum Þingvallanefndar úr farvegi Öxarár í
samræmi við skipulags- og byggingalög. Sveitarstjóm
samþykkir aðgerðir skipulagsfulltrúa.
Bréf frá Skipulagsstofnun, dags. 30. júní 2005, varð-
andi umsókn um meðmæli með byggingarleyfi í Skála-
brekku 1 Þingvallasveit. Samkvæmt bréfinu getur Skipu-
lagsstofnun ekki mælt með byggingarleyfi samkvæmt
3.tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- og byggingalaga og
leggur til að uppbygging á þessari lóð þurfi að kynna
með formlegum hætti. Sveitarstjóm samþykkir að fella
skipulagið inn í deiliskipulag frístundabyggðar í landi
Skálabrekku sbr. 16. fund skipulagsnefndar frá 23. júní
2005, 15 lið. Samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að
auglýsa skipulagið.
Bréf frá Birni Bjamasyni dags. 14. júní 2005 varð-
andi samkomulag milli Þingvallanefndar og Bláskóga-
byggðar, Sveitarstjóm mótmælir því að fram hafi farið
formlegur fundur 27. janúar 2005. Eingöngu fór þar fram
óformleg kynning á störfum Alta fyrir Þingvallanefnd.
Þar sem þessi drög að samkomulagi stangast að mörgu
leyti á við gildandi lög og reglur sem sveitarfélögum er
falið að starfa eftir, þá hafnar sveitarstjórn framlögðum
samkomulagsdrögum Þingvallanefndar alfarið.
46. fundur byggðaráðs 9. ágúst 2005.
Mættir voru byggðaráðsmenn og ritaði formaður
fundargerð.
Formaður setti fund og bauð nýjan sveitarstjóra, Valtý
Valtýsson, velkomin til starfa og óskaði honum velfam-
aðar í störfum fyrir sveitarfélagið.
Bréf frá Landhönnun slf, dags. 27. júlí 2005, þar
sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi
Biskupstungna / Bláskógabyggðar. Um er að ræða 77 ha
spildu úr landi Kjaranstaða sem óskað er eftir að breytist
úr landbúnaðamotum í frístundasvæði. Byggðaráð sam-
þykkir að heimila auglýsingu á breyttu skipulagi í sam-
ræmi við 18. gr. skipulags- og byggingalaga.
Afrit af bréFi Brunavarna Amessýslu, dags. 6. apríl
2005, til Sýslumannsins á Selfossi varðandi umsókn
Bláskógabyggðar um leyfi til að reka veitingastofu í
félagsheimilinu Aratungu, Reykholti. Byggðaráð leggur
til að sveitarstjóra ásamt umsjónamanni fasteigna verði
falið að fara yfir framkomnar athugasemdir og gera
áætlun um úrbætur.
23 Litli Bergþór