Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Blaðsíða 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2009
Hermann Tönsberg á hlaðinu á Hömrum ásamt Sigríði
Bjarnadóttur öniniu sinni og Guðflnnu Ragnarsdóttur.
Myndin er tekin um 1950. (Ljósmynd Ragnar Jónsson)
fjóssins og íbúðarhússins, þar sem talið er að kirkjan
hafi staðið, og þar votti einnig fyrir vegghleðslu.
Kirkjur voru ekki byggðar og haldið við nema af
fjársterkum landeigendum, Hamrar hafa því augljós-
lega verið stórbýli á Þjóðveldistímanum. Einhverjir
mektarmenn þess tíma hvíla því í garðinum.
Máldagi kirkjunnar á Hömrum gerður af Stefáni
Jónssyni biskup (1491 - 1518):
„Byskyps Stephans maldage. Kirkia sancti thor-
laki at Hömrvum j Skallholtz kirkiv sokn
a x hundrvd j heimalandi. Þar standa og xx hund-
rud j jordvnni fyrer omaga vist.“
I Jarðabók Arna Magnússonar 1708 segir um
kirkjuna: „menn minnast að húsið var uppi“ Kirkjan
á Hömrum líður því líklega undir lok á fyrri hluta 17.
aldar eða fyrir u.þ.b. 300 árum síðan. Hamrar hafa
því verið kirkjustaður í um hálft árþúsund.
Ábúendur og niðjar þeirra á Hömrum á
tólftu og þrettándu öld
Finnur Arnórsson prestur, fæddur um 1120, og lést
21. mars. 1196.
Foreldrar: Arnór Þorgeirsson fæddur um 1090 og
Arnbjörg Brandsdóttir fædd um 1090. Ekki er vitað
hvar þau bjuggu. Ekkert er vitað um niðja Finns né
maka. í Þorsteins þætti stangarhöggs segir: „Þórkatla
var og Amundadóttir, móðir Arnbjargar, móðir Finns
prests og Þorgeirs (f. 1125) og Þuríðar (f. 1122) Og
hefur margt höfðingsmanna frá þeim komið." Ljóst
er af þessu að Finnur hefur mjög líklega átt afkom-
endur sem kveðið hefur að.
Bjarna Finnssonar nafninu væri freistandi að skjóta
hér inn sem syni Finns Arnórssonar. Nafnið Bjarni
Finnsson kemur fyrir í Sturlungasögu í bardaga milli
Búðdælinga og Saurbæinga, sem átti sér stað 17. júní
1170. „Bjarni fékk og mikið sár á síðu“ Hann gæti
hafa verið fæddur um 1140 og ef rétt reyndist, væri
afabarnið, djákninn, alnafni hans. í þessum bardaga
er einnig getið Asbjarnar Finnssonar. Þeirra er beggja
getið í íslendingabók en án nokkura ættartengsla.
Hamra-Finnur Bjarnason fæddur um 1160,
(Islendingabók segir um 1150) Börn: 1. Bjarni Finns-
son, djákni, fæddur um 1185. Hann var með í víginu
á Hrafni Sveinbjarnarsyni og var gerður útlægur um
allt land, nema Austfjörðum. Hrafn var goðorðsmað-
ur og læknir, (f. um 1166). Hann bjó á Hrafnseyri
við Arnarfjörð, hann deildi við Þorvald Snorrason,
Vatnsfirðing, (f. um 1170 d. 6. ágúst 1228) sem lét
hálshöggva hann 1213.
Eftir því sem máldagi Neskirkju í Selvogi frá ca.
1313 segir á Bjami sonur Hamra-Finns að hafa byggt
þar kirkju. (Arnesinga saga)
2. Guðrún Finnsdóttir, fædd um 1185. Maki Loftur
Svartsson (fæddur um 1185)
Meðal barnabarna Guðrúnar og Lofts var Arni
Helgason, Skálholtsbiskup (1304 - 1320)
3. Þóra Finnsdóttir fædd um 1200. Maki. er Þor-
móður Svartsson í Gufunesi.
I fornleifaskráningu jarðarinnar Gufuness sem
Minjasafn Reykjavíkur lét gera 2004 segir: „í sögu
Arna biskups Þorlákssonar er getið Þormóðar í Gufu-
nesi og konu hans Þóru Finnsdóttur frá Hömrum.“
(Biskupasögur, 1. bindi, Hið íslenzka bókmenntafé-
lag Kaupmannahöfn, 1858.)
Ekki er ólfklegt að viðurnefnið Hamra-Finnur, sé
tilkomið til aðgreiningar frá nafna hans og er þá Finn-
ur Arnórsson prestur líklegastur. Skv. íslendingabók
var Finnsnafnið fágætt fyrri hluta 12 aldar.
Hamra-Finnur er forfaðir minn og er afi minn
Jóhannes Jónsson (1885-1968) 20. liður frá honum
talið, og því eru verulegar líkur á að Finnur Arnórs-
son prestur sé einnig forfaðir okkar.
Olafur Svartsson fæddur um 1195. íslendingabók
telur hann fæddan um 1170, það stenst engan veginn
því ef svo væri er hann að berjast með Gissuri jarli,
hátt á tíræðisaldri, 1264. Ólafur Svartsson var áhrifa-
mikill héraðshöfðingi og alla tíð afar tryggur banda-
maður Gissurar Þorvaldssonar, síðar jarls, (d. 1268)
sem var Haukdælingur og kominn í beinan karllegg
af Ketilbirni gamla landnámsmanni á Mosfelli.
Ólafur tók þátt í Örlygsstaðabardaga í Skagafirði,
21. ágúst 1238, fjölmennustu orrustu íslandssögunn-
ar. Ólafur var meðal gesta Gissurar Þorvaldssonar
í jólaboði sem hann hélt vinum sínum að Tungu
(Bræðratungu) árið 1241. „Þar var mjöðr blandinn ok
mungát heitt“ (Sturlunga II bls. 356)
Ekkert er vitað um foreldra Ólafs né maka. Börn:
Haukur Ólafsson fæddur um 1225.
Eg tel nokkuð ljóst að Ólafur hafi verið bróðir
httpV/www.ætt.is
5
aett@aett.is