Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Side 8
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2009
Skálholtsstaður 1772. Hluti myndar eftir John Cleveley.
klett undan Hömrum í Grímsnesi. þar sem umboðs-
maður Skálholtsbiskups bjó löngum.“
Rétt er að benda á hér að þungur straumur hefur
legið niður með Ullarkletti úr víkinni á þessum tíma,
ella hefði lfk Jóns Gerrekssonar ekki strandað þar.
Hvítá hefur því runnið með Hamralandi ekki ólíkt og
áður en leirburðurinn frá Hagavatni um Farið kom í
ána 1980 og 1999 og breytti farvegi hennar.
Þegar Símon Dalaskáld kom að Hömrum um 1900
til að líta Ullarklett kvað hann,:
Fyrr hér viður svalan sand
svartan laus við hroka
biskup rak itpp lík á land
látið í gráan poka.
Sextánda öldin
Diðrik van Mynden, hirðstjóri, var veginn í Skálholti
10. ágúst 1539. Hann hafði farið um með ránshendi
og morðum. Meðal staða
sem hann rændi var Við-
eyjarklaustur.
I annálum Espólíns eru
fjórir menn taldir fremst-
ir, Jón refr og Sveinn,
Jón Hamraráðsmaður og
Núpr, oc drapu þeir þá er
inni voru. í ritgjörð Jóns
Gizzurasonar stendur
„..Jón Jónsson, ráðsmað-
ur frá Hömrum, kallaður
Hamra-Jón.“ Fitjaannál
segir um þennan atburð
m.a. „Þar voru sérdeilis
4 tilgreindir, sem frarn-
gjarnastir voru. Það var
ráðamaður frá Hömrum,
hét hann Jón Snorrason
og vinnumaður þaðan er
Núpur hét.
Hamra-Jón, ráðsmað-
ur á Hömrum (Jón Jóns-
son eða Jón Snorrason ) er farinn frá Hömrum um
1540, en hann hlýtur að hafa búið að Hömrum nokk-
uð lengi, annars hefði hann ekki fengið viðumefnið
Hamra-Jón .
1540 er á Hömrum ráðsmaður að nafni Arni. (I
Islendingabók er getið Arna Olafssonar, sem er talinn
fæddur um 1500 og er bryti í Skálholti (Esp.5873).
Samfeðra er Einar Olafsson, ráðsmaður í Skálholti
1557-1560 og var áður m.a. prófastur á Kialarnesi
1541-1545.)
Umræddur Arni átti stutta dvöl á Hömrum. í bisk-
upaánnálum Jóns Egilssonar segir,: „A dögum bisk-
ups Ögmundar hvarf ráðamaðurinn frá Hömrum, hann
gekk heiman og norður mýrar til hesta sinna, það var
um vertíðarlok. Konurnar voru að vallarvinnu á tún-
inu, þá hann fór norður eptir, hann sást aldrei úr því.
En sögn manna hefir verið, að þá bjó í Reykjanesi sá
nraður er Sveinn hét og kenndi þessi Arni honum um,
að hann hefði tekið frá sér fyrir páskana kjöt, smjör
og fiska, og mundi hann og sonur hans, sá er Jón hét,
hafa myrt hann, og stungið honum niður í lækinn og
undir jarðbrúnirnar í Kringlugili, og þar hefði menn
fundið hnífinn hjá pyttinum, alblóðugan.“
A árunum 1545-1564, varð í það minnsta þrisvar
sinum bráður nautadauði á Hömrum. Biskupsannálar
Jóns Egilssonar greina frá þessu:
Anno 1545. .. fyrsti nautadauði á Hömrum, þar
dóu 14 naut.
Anno 1552 ... annar nautadauði á Hömrum, þar
dóu 12 kýr og 6 naut.
Anno 1564 ... var nautadauði sá þriðji á Hömrum
dóu 8 naut og víða naut á bæjum í Grímsnesi.
Ekki voru skýringar á takteinum hvers kyns pest
væri um að ræða. „Menn vissu varla hvernig það til
kom, en sögn rnanna er það, að einn smali á Hömrum
hafi þar við heitazt, að hafa kaupið dauður“ segir um
nautadauðann 1552.
Hamrar voru lengi vel matarbúr fyrir Skálholtsstað,
sem skýrir þennan fjölda nautgripa. f ráðsmanns-
reikningi frá 1557 segir m.a... „Jtem för af Haumrum
heim til staðarins til dráps 5 naut gömul og eitt naut
þreuett." (íslenskt fombréfasafn XII bindi.)
Marteinn Einarsson, biskup 1548-1556, gerði sér,
í það minnsta, tvívegis ferð til Hamra. Anno 1549.
„Höfð er njósn af Marteini þar sem hann hefur næt-
urgistingu að Hömrum“ (Safn til sögu íslands bls.
89-90.)
Anno 1555. „..þetta sama ár drukknaði Ólaf-
ur skólameistari, sem áður er sagt. Það sama haust
missti biskupinn hestamann sinn, af sama hesti og
Ólafur hafði áður drukknað, á Hjarðarneshólmavaði.
Biskupinn ætlaði til Hamra“ (Biskupaannálar Jóns
Egilssonar)
Sautjánda öldin og Hamraumboðsmenn
Jón Jónsson er fæddur um 1600. Foreldrar hans
Hamrar áttu afréttarland í
Hestfjalli á meðan býlið var
í eigu Skálholtsstóls. Það
var afmarkað beitarhólf,
sem umiukt er af Hest-
vatni, Slauku og Hvítá, og
var lokað með garðhleðslu
s.k. Biskupsgarði eða
vörslugarði, margra kíló-
metra löngum. Garðurinn
náði meðalmanni í öxl en
er nú að mestu horfinn í
jörðu. (Ljósmynd Jóhanna
Jóhannesdóttir)
http://www.ætt.is
8
aett@aett.is