Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Blaðsíða 14
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2009
6. ágúst 1832 fara tveir synir Finnboga Þorgilssonar
ríka (1760-1833), þeir Höskuldur á Þorleifsstöðum og
Finnur á Reynifelli að heiman í hestaleit. A leiðinni
koma þeir við á Breiðabólsstað og hlýða þar á messu. Að
því loknu ætla þeir suður yfir Þverá en drukkna báðir í
ánni. Hér sést Þverá með Eyjafjallajökul í baksýn.
anna. Jörundur er íslandskonungur sumarið 1809.
(„sem kóngur ríkti hann, með sóma og sann, eitt sum-
ar á landinu bláa.“) Um 1830 fjölgar skipaferðum til
landsins og verslun eykst. 1827 er hafin útgáfa Skírn-
is (sem kemur enn út og er elsta tímarit á Norðurlönd-
um), það sama ár er Kambsránið í Flóanum.
Þá var Hannes Finsen biskup í Skálholti, stórlærð-
ur um íslenska og norræna sögu (1785-1796). Um
það leyti er Skálholtsstóll lagður niður en áður höfðu
jarðeignir biskupsstólsins verið seldar. 1789-1819 var
sýslumaður Vigfús Þórarinsson á Hlíðarenda (faðir
Bjarna skálds Thorarensen), hann var fyrirmannlegur
og málgefinn ölmaður. Hann dó slysalega í smiðju
sinni. Arlega sendi hann tvo menn inn í Veiðivötn til
silungsveiða. Síðar var Bonnesen á Velli sýslumaður,
uppstökkur, brellinn en þó talhlýðinn. A dögum Finn-
boga var Steingrímur Jónsson (síðar biskup) prestur
í Odda (1811-1824) og meðal presta í Keldnaþingum
var Halldór Magnússon á Stokkalæk, tröll að vexti en
miðlungi gáfaður.
1791 gekk fjárpest undir Eyjafjöllum og árið eftir
voru mislingar í mannfólkinu. 1798 gekk skarlatssótt.
1817 var veturinn snjóasamur, sumarið stutt og skepnu-
fellir hinn næsta vetur. Þá var harður vetur 1827.
Katla gaus 1823 en tjón af öskunni var lítið. 1829
voru jarðskjálftar í Landsveit og á Rangárvöllum.
Finnbogi hinn ríki bjó á Reynifelli á Rangárvöll-
um (1790-1833).
Um aldamótin 1800 búa nánustu ættingjar hans á
næstu bæjum; Magnús bróðir hans býr í Tungu (sem
var milli Keldna og Stokkalækjar), Jón bróðir hans
býr á Rauðnefsstöðum og seinna átti Höskuldur son-
ur hans eftir að gerast bóndi á Þorleifsstöðum.
Jarðeignir Finnboga, sem mér er kunnugt um, eru
sem hér segir og kaupár er innan sviga: Litla-Reyð-
arvatn (1801), Mörk í Landsveit (1818), Vatnsdalskot
(1819), Lágafell í Landeyjum (1825), „Helgubær“
(Helgusandar ?) og Syðri-Rot Eyjafjöllum (1827) og
Miðkot í Fljótshlíð (1831).
Arið 1797 er bústofn Finnboga, sem hér segir og
hef ég bústofn úrvalsjarðarinnar Snjallsteinshöfða
innan sviga til samanburðar: kýr = 4 (5), kvígur = 2
(1), naut = 0(1), kálfur = 1 (1), ær = 70 (33), gimbrar
= 0? (7), sauðir = 48 (7) og hestar = 12 (9).
Manntalsárið 1801 eru í heimili á Reynifelli, auk
hjónanna, börnin fimm og tvær vinnukonur, samtals
níu manns. Ekki reið sorgin alfarið framhjá garði, því
þau hjón missa einkadóttur sína 18 ára gamla árið
1810. Arið 1816 er einu fleira í heimili en 1801, því
þar eru auk hjónanna, fjögur börn þeirra, fósturdóttir,
einn niðursetningur og tvær vinnukonur.
6. ágúst 1832 fara þeir að heiman í hestaleit tveir
synir Finnboga, þeir Höskuldur á Þorleifsstöðum
og Finnur á Reynifelli. A leiðinni koma þeir við á
Breiðabólstað og hlýða þar á messu. Að því loknu
ætla þeir suður yfir Þverá en drukkna báðir í ánni.
Þessi atburður er ekki einungis mikið tilfinningalegt
áfall fyrir heimilið heldur líka búskaparlega, því þeg-
ar hér er komið sögu var Finnbogi orðinn harðfull-
orðinn maður - á þess tíma mælikvarða - (72,ja ára),
en Finnur hafði um mörg ár verið aðalmáttarstólpi
fjölskyldunnar til allra aðalstarfa. Blessaður gamli
maðurinn lýkur heyskapnum um sumarið og svo taka
við erfiðar smalamennskurnar um haustið. Næsta vor
hefjast árstímabundin störf og að því loknu heyskap-
urinn, en í júlílok er Finnbogi allur. Hér lýkur glæst-
um ferli efnaðs atorkumanns, en ætla má að síðasta
æviárið hafi orðið honum dapurlegt strit.
Finnbogi var sagður „dánumaður, vel fróður.“
Einhver dulræna hefur fylgt þessum mönnum, því
svo virðist sem sumir þeirra hafi (í svefni ?) náð að
skynja atburði sem gerðust víðsfærri.
Helga kona hans stóð fyrir búinu 1833-1835.
Menn töldu hana „grannvitra og einfalda" - var hún
þó vel ættuð.
(Höskuldur sonarsonur Finnboga var „greindur
vel, svolítið sérkennilegur, eljusamur og þrautseig-
ur.“ Finnborg Finnsdóttir á Hrísbrú, sem Halldór
Kiljan Laxness nefnir í Innansveitarkroniku, er son-
ardóttir Finnboga á Reynifelli. Meðal afkomenda
Finnboga eru Þór veðurfræðingur, Björn í Efra-Seli
(faðir Guðbjarts), Raftholtsbræður og búhyggjumað-
urinn Bjarni á Arbakka).
Finnbogi er skírður 8.7.1760, d. 28.7.1833.
Þorgils Þorgilsson
1718 - 8.10.1763
Um hans daga var mikið barist í Evrópu (1756-1763).
Englendingar ná Kanada undan Frökkum og treysta
völd sín á Indlandi. A búskaparárum Guðrúnar háðu
Bandaríkjamenn frelsisstríð sitt (1776-1783) og „Stjóm-
arbyltingin mikla“ varð í Frakklandi 1789. Adam Smith
er með kenningar um frjálsa samkeppni (1776).
Þá koma strangari reglur um fermingu barna
(1744) og húsvitjanir presta, ennfremur „húsagatil-
skipunin“ (1746). Eggert Olafsson og Bjami Pálsson
gengu á Heklu (20.6.1750), nokkru seinna rannsök-
uðu þeir ísland og hagi fólksins (1752-1757). Skúli
http://www.ætt.is
14
aett@aett.is