Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Síða 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2009
„Hann Svarti Pétur á sólunum...“
Mannlýsingar geta verið nieð margvíslegum
hœtti, það sýndi Anna Guðrún Hafsteins-
dóttir formaður Ættfræðifélagsins þegar hún
flutti erindi um afa sinn Pétur Zóphonías-
son, fyrsta formann Ættfrœðifélagsins, sem
systir hennar, Dóra Hafsteinsdóttir, flutti á
ættarmóti/niðjamóti að Hólum í Hjaltadal
29. maí 1993.
Góðir ættingjar og venslamenn!
Þegar Páll Zóphoníasson hringdi til mín frá Vest-
mannaeyjum til að biðja mig um að lýsa afa mínum
Pétri Zóphoníassyni, í fimm mínútna ræðu þá færðist
ég mjög undan þeim heiðri.
Þá benti þessi frændi minn mér á að ég yrði elsta
barnabarn Péturs á þessu ættarmóti, og þar að auki
væri ég ein af fáum á lífi sem hefðu þekkt hann. Þetta
þótti mér all nöturlegur sannleikur þótt það verði að
segjast Páli til hróss að hann benti mér með þessu
ofurvarlega á hvað ég væri orðin gömul.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir verður að segjast
eins og er að ég þekkti Pétur móðurafa minn mest
af afspum og ég var aðeins tíu ára þegar hann dó.
Fyrsta endurminningin sem kom upp í hugann tengd
honum var að ég sat í stiganum heima á Marargötu að
horfa á Flalldóru ömmu mína stússa í eldhúsinu. Eg
var að syngja „Hann svarti Pétur á sólunum“, mér til
gamans og hrekk við þegar amma segir: „Guð hjálpi
þér barn, að vera að syngja þessar vísur um hann afa
þinn!“ Afa minn! Eg hafði ekki hugmynd um að ég
væri að syngja um hann, og ég hef enn ekki hugmynd
um hvar ég lærði braginn, en eitt veit ég að móðir mín
kenndi mér hann ekki. Hún gætti þess alltaf vandlega
að minnast aldrei á það sem gæti talist einhverjum í
fjölskyldunni til vansa. Ég held að ég verði að fara
með braginn vegna þeirra sem ekki hafa heyrt hann
áður.
Hann Svarti Pétur á sólunum,
á sólunum, á sólunum
var stimamjúkur hjá stúlkunum
en strandaglópur í ástum.
En það er sagt að hann hafi haus
og hann sé aldeilis makalaus
En skrúfa finnist sem skrölti laus.
Það skulum við ekki fást um.
Hann sagði um daginn ó Dísa mín,
Ó Dísa mín, ó Dísa mín.
Ég tefli um ást þína elskan mín,
en ef að bara hún næðist.
En Dísa fussar og segir svei,
og svei, svei, svei, og svei, svei,sveii.
Þú ert asni og aulagrey
sem allur leikur á þræði.
Þú þykist greindur og gáfaður,
en grettur ertu og nefljótur
og svo freklega frammyntur.
Það finna hljótum við bæði.
Þessi bragur mun hafa verið ortur um Pétur Zóph-
oníasson og sunginn í revíu á Sauðárkróki endur fyrir
löngu. Þegar ég fór að huga að honum kemur fram
skemmtileg mannlýsing sem kemur dálítið heim og
saman við þá mynd sem ég hef af afa mínum
„Hann Svarti-Pétur..“ Jú, afi var dökkur á brún og
brá og skipti vel litum. Hann var hár og spengilegur,
180 cm á hæð samkvæmt passanum hans sem ég fann
einhvers staðar, „og minnti helst á indverskan fursta“,
segir Zóphonías sonur hans um hann.
„Hann Svarti Pétur á sólunum..“ Ég minnist þess
að móðir mín sagði mér að amma hefði alltaf farið
með afa á stúkuböllin sem voru mjög algeng. Þar
hefði hún dansað mikið og skemmt sér vel og af því
dreg ég þá ályktun að afi hafi verið mikill dansmaður
og í bragnum sé átt við skósólana.
„Stimamjúkur hjá stúlkunum en strandaglópur í ást-
um..“ Það nægir að benda á að afi átti að minnsta kosti
þrjú börn utan hjónabands, en varla hefur hann þá ver-
ið strandaglópur í ástum eins og segir bragnum.
„Það er sagt að hann hafi haus og hann sé aldeil-
is makalaus..“ Það fór orð af honum fyrir greind,
stálminni og ættvísi. „Hann var reikningsmaður
ágætur og hamhleypa til verka“, segir Brynleifur
Tobíasson um hann. Hann segir einnig: „Það er eins
og sumir menn hafi alltaf nógan tíma, þó að alkunn-
ugt sé að þeir séu störfum hlaðnir. Svo var Pjetur
Zóphoníasson. Hann hafði líka tíma til að skemmta
sjer og vinum sínum, og engan mann hefi jeg þekkt
sem kunni jafn vel að skemmta sjer og öðrum sem
hann..“ og Brynleifur heldur áfram: „Hann var upp-
örvandi, fræðandi, góðgjarn og gestgjafi mikill. Kon-
ungs hafði hann hjarta".
Þá komum við að ljóðlínunni: „En skrúfa fínnist
sem skröltir laus. Það skulum við ekki fást um..“
Þarna mun vísað til þess að afi skrollaði og því man
ég eftir.
MUNIÐ AÐ GREIÐA GÍRÓSEÐLANA!
http://www.ætt.is
18
aett@aett.is