Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Side 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2009
Eða þá tilfinningin að lesa bréf borgarstjórans í
Reykjavík frá 21. júní 1943, þegar ég var tæplega
þriggja mánaða. þar sem hann skipar föður minn
fastan bifreiðarstjóra. Laun á hann að taka samkv. IX.
launaflokki í samþykkt um laun starfsnranna bæjarins
frá 1. apríl 1939. Og undir er kraftmikil hönd Bjarna
Benediktssonar. Þetta var stór stund fyrir föður minn
sem hafði byrjað sín búskaparár í kreppunni og
snapað vinnu árum saman líkt og allur þorri fátækra
manna á þeim tíma. Enda sagði hann oft við mig síð-
ar á ævinni að atvinnuleysi væri eitt það versta sem
menn gætu lent í.
Það er líka fyndið að lesa að hann faðir minn hafi í
nóvember 1948 þurft að greiða 50 kr í sátt fyrir ólög-
legt bifreiðarstæði. Það var eins gott að halda uppi
lögum og reglu.
Og þann 11. september 1936 skrifar séra Friðrik
Hallgrímsson: Eg hefi í dag gefið saman í hjónaband
Ragnar Svavar Jónsson og Björg Þuríði Guðfinns-
dóttur á heimili mínu Skálholtsstíg 2, hér í borginni.
Hjónavígslubréfið er glæsilegt enda útgefið eftir
allramildilegastri skipun hans hátignar konungsins
Christjans hins tíunda, sem er af guðs náð konung-
ur Islands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í
Slesvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Láenborg og Ald-
inborg. Sjálf búa þau samkvæmt skjalinu á Klepps-
mýrarbletti 12 Reykjavík, á voru landi íslandi. Og
fyrir herlegheitin greiða þau 27 kr og 50 aura. En bak
við glæsileika hins konungslega skjals leyndist annar
veruleiki. Honum kynntist ég þegar ég las lýsingu
móður minnar á giftingarvetrinum þeirra pabba:
„Við fluttum í Sogamýrina um haustið 1935.
Það var gamall sumarbústaður, tvö herbergi og lítið
eldhús með smá kolavél. Frá henni lá miðstöð í her-
bergin en ofnarnir volnuðu varla svo ég varð að vera
í eldhúsinu með Erlu, sem var systir mín, þá á fyrsta
ári. Gólfkuldin var svo mikill að hún gat naumast
verið á gólfinu. Við settum þess vegna upp rólu sem
Ragnar smíðaði í eldhúsdyrnar og í henni rólaði Erla
sér. Þegar við vorum í svefnherberginu urðum við
að láta loga á olíuvél en það gerði nú ekki gott loft.
Skúrinn var þyljaður að innan með masonítplötum og
klæddur bárujárni að utan, enda hélaði allt að innan
þegar kalt var.
Þennan vetur var mjög lítið um vinnu. Ragnar
hjólaði morgun hvern ofan á eyri til að leita sér að
vinnu, en það voru margir dagar sem ekki var neina
vinnu að fá. Og langur dagur að hanga niðri á eyri
matarlaus og kaldur. Mjólk fengum við keypta rétt
hjá okkur, aldrei meira en einn pott á dag, ég veit
varla á hverju maður lifði.
Þetta haust, 11. september 1936, gifturn við Ragn-
ar okkur. Oli bróðir gaf okkur fjóra stóla. Við höfðum
keypt okkur gamalt borðskifli á fornsölu. Svo gaf
kunningjafólk Ragnars okkur sex bolla. Gömul kona
gaf okkur 10 kr. og kunningi Ragnars sem var bakari
gaf okkur rjómatertu.“
Ekki var meira að segja um það brúðkaup. En
mamma heldur áfram:
„Við vorum þarna eitt ár eða fram á næsta haust.
Það var mjög erfitt að fá leigt. Það fyrsta sem spurt
var um var: Hvað gerir maðurinn þinn? Veturinn sem
við vorum í Sogamýrinni fengum við Erla mislinga
og lágum báðar samtímis. En maður var nú ýmsu
vanur. „
1939 fer pabbi á síld norður á Siglufjörð. Útgerð-
armaðurinn Olafur Ragnars skrifar kvittun: Vinna
sumarið 1939 607.53 aurar, úttekt 161.00 Peningar
446.53 aurar. Um sumarið sendir hann mömmu bréf:
Siglufirði 17/7 39. Elsku Björg mín
Alla tíma sæl og blessuð fátt er í fréttum, mér
líður vel og hef það gott en lítið að gera ennþá
og langir eru dagarnir. Oft hugsa ég heim til
ykkar og óska að ég væri kominn heim sem
snöggvast. Þegar ég kom til Siglufjarðar voru
Jóna og Ella báðar oná bryggju og fóru með
mér upp í bragga þar sem ég bý. Ég borða á
Hótel Gullfoss. Það veiðist síld en það er svo
langt í burtu alla leið austur á Vöpnafirði og það
er 20 tíma stím og þá er ekki gott að salta hana
því hún verður að vera ný. Það verður byrjað
að salta 20-25 þessa mánaðar. Mikið er kom-
ið af fólkinu, allt fullt. Það sem ekki er ráðið
er í vandræðum með húspláss, eitt herbergi er
leigt hér á 75-100 kr. Það verða líklega um 70
stúlkur og 15 karlmenn. Jæja elskan mín ég fer
að hætta þessu pári og bið kærlega að heilsa
Lillu minni og mömmu og öllum sem ég þekki.
Það er alltaf ágætis veður hér, sól og sumar. Á
sunnudaginn var voru Siglfirðingar að keppa,
fyrst við Norðmenn og svo við Dani og unnu
báða. Þeir voru að bjóða mér að vera með á
æfingum. Jæja elskan mín vertu blessuð og sæl
og guð geyrni ykkur.
Þinn Ragnar S Jónsson.
Utanáskrift er Gránugötu 32 Siglufirði, skrifaðu
mér sem fyrst.
Já, þannig leggjast púslbitarnir hver við annan
og gefa mér býsna heillega mynd af þessu unga pari
sem var að hefja sína lífsgöngu saman í kreppu og
atvinnuleysi, fátækt og basli en með brjóstin full af
ást, vonurn og draumum. Og ég er svo glöð yfir öll-
um bréfunum og skjölunum sem þau varðveittu, engu
var hent. í dag eru þetta fjársjóðirnir mínir, fjársjóðir
sem ég mun varðveita og skila til barna rninna og
barnabarna.
Já, ég á henni móður minni mikið upp að unna.
Hún skráði og skráði, heilu kompurnar á ég fullar
af minningum og fróðleik frá ævi hennar og störf-
um. Þar skilaði sér menntun föður hennar Guðfinns
http://www.ætt.is
20
aett@aett.is