Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2009, Qupperneq 24
FRÉTTABRÉF
^ÍTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.astt.is, Netfang:aett@aett.is
Þjóðskjalasafn íslands
Safnið er opið:
Mánudaga
Þriðjudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
Föstudaga
kl. 10:00- 18:00
kl. 10:00-19:00
kl. 10:00-18:00
kl. 10:00-18:00
kl. 10:00- 16:00
Afgreitt verður daglega úr skjala-
geymslumkl. 10.30, 13.30 og 15.30
Opið hús
Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá
kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð.
Allir eru velkomnir með spurningar og svör,
áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og
alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér-
fræðingar á hverju strái sem elska að tala um
ættfræði og veita fúslega aðstoð.
Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin
sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og
kíkið í nýjar ættfræðibækur.
Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús.
Það gengur óðum á hin ómissandi manntöl og
þau eru á góðu verði.
STORLÆKKAÐ
VERÐ Á MANNTÖLUM
Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í
takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefín.
Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið
hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo
allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki
við ættfræðirannsóknir.
Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum
manntöl í afmælisgjafír.
Verðskráin lítur svona út:
Manntal 1910
1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr
2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr
3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr
4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr
5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr
Manntal 1845
1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi
Manntal 1816
6. Iiefti 500 kr (allt sem til er)
Manntal 1801
3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til
er)
Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins
Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga
kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma
697-6223 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett.
is og gudfragn@mr.is.
Félagsfundur
Fimmtudaginn 26. mars verður haldinn félagsfundur kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að
Laugavegi 162, 3. hæð, Reykjavík.
Dagskrá: „Opt stendr illt af kvenna hjali“ Hrönn Hilmarsdóttir íslenskufræðingur heldur fyrirlestur
um hlutverk Auðar Vésteinsdóttur í Gíslasögu Súrssonar.
Kaffi og spjall
Ættfræðifélagið mun halda málþing á Bifröst í lok júlí í
samvinnu við Háskólann á Bifröst og Þjóðskjalasafn íslands.