Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Blaðsíða 123

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1920, Blaðsíða 123
NÝLÁTNIR MERKISMENN 121 hennar líka að þeim kostum og fleir- um. Hún var að eðli mjög glaðvær í lund og gat hent gaman að öllu. Þótt hún hefði fáar bækur lesið, varð henni undarlega mikið úr öllu, sem eitthvað var nýt't í, gott eða fagurt, stórt eða satt.------Föður mínum, þótt einhæf- ur væri, var líka margt vel gefið. Hann var mannvinur mikill, og svo gestris- inn, að hann jafnaðarlega gekk í veg fyrir fólk, leiddi heim fagnandi og hét á móður mína að bera óðara á borð, það eða það sælgæti, sem oftlega var ekki til! Hann var hinn mesti garpur og hverjum manni þolnari við strit og vos, tveggja maki til flestra starfa, hvort hann kunni verkið vél eða illa. — Kæmi fyrir að faðir minn skuldaði manni eitthvað, varð hann hugsjúkur, sem og oft endranær í kröggum og vanda; varð þá móðir mín að tala kjark í hann og tókst henni það venju- lega svo vel, að hann lék á al'ls oddi; tók þá karlmenskan aftur við stýrinu, en hið barnslega sjúka hvarf fyrir borð.” — Sjö voru þeir bræður, en eigi var nema Matthías einn settur til menta; bar og snemma á hinum frá- bæru gáfum hans, hugmyndaríki — og lífsgleði. Þakkar hann áhrifunum frá móður sinni og hinni stórfeldu náttúru hinn andlega þrótt og hugsjóna-auð, er hann eignaðist í svo yfirfljótanlegum mæli. “Minmsstæðara öllu öðru frá bernskuárunum eru hin miklu og marg- kynjuðu áhrif náttúrunnar á hina næmu en fávísu barnssál — eins og all- ir munu kannast við, er alist hafa upp á móðurskauti stórfeldrar náttúru en fjarri hégómaglaum stórbæja og marg- mennis. Alt var sögulegt með eins- konar persónublæ og sem lifandi; gil og gljúfur voru álfheimar og ódáins- lönd; lit- og veðrabrigði, kvöld og morgnar, fjörðurinn og fjaran, snjór- inn, skuggarnir, fjöMin, klettar og klungur, þytur fossanna, ómur þagnar- innar á hinum skuggalegu öræ!fum uppi á heiðunum, og ekki sízt hinir miklu blessuðu skógar með hreiðrin og fugla- sönginn á vorin; alt þetta, og hvað fyrir sig, heldur bernskunnar hugblæ meðan minni og meðvitund endist.”— Þannig vakinn og undirbúinn fyrir lær- dóminn og lífið og störfin, sem því fylgja, kveður Matthías sveit sína og sezt í skóla árið 1859, 24 ára gamall; var hann þá búinn að stunda sjó- mensku og sveitavinnu, verzlunarstörf og fara til útlanda. Hann settist í þriðja bekk og útskrifaðist 1863, en 1866 af prestaskólanum. I bernsku- minningum sínum segir hann, þegar til kom að fyrst yrði farið að kenna hon- um undir skóla: “Eg hafði stöku sinn- um stunið því upp við guð, að gefa eg yrði prestur; hafði gömul kona spáð mér því.” Og nú var hann orðinn prestur, enda tekur hann að kenna eftir það. Það er Matthías sem kennimaður íslenzku þjóðarinnar, sem lengst mun verða í minni hafður, er getið hefir sér þann orðstýr er aldrei deyr. Hann kendi þjóðinni, samtíð sinni, — lagði út af öllu og ræddi um alt, — ljóðin hans, leikritin hans, sög- urnar, ritgerðirnar, þýðingarnar a-f út- lendum málum, alt eru þetta fræði, sem hann er að útskýra fyrir þjóðinni. Hann varð læs á tungur samtíðarinn- ar til þess að fá lesið og fræðst, eigi fyrir sig einan, og mat hann þó fróð- leik manna mest, heldur til þess að fá lesið fyrir þjóðina. Þjóðin gekk að störfum sínum, sumir heima fyrir, en nokkrir leituðu til annara landa og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.