Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Side 49
ÚR DAGBÓKUM J. M. BJARNASONAR
31
1 dag voru mér gefin ljóðmæli mín
í skrautbandi. Ég las eintak af 11.
þætti Eiríks sögu Hanssonar. Tvær
slæmar prentvillur hefi ég orðið var
við.... Ég þyrfti að rita skýringar
við þenna þátt.
Mr. E. E. Best (Inspector of
schools) kom hingað í Geysisskóla í
okt. Hann var ánægður með kennsl-
una.... Hitti Mr. Best á ný á kenn-
arafundi á Hnausum.... Þá lét hann
mig heyra kvæði Whittiers um Ro-
hert Burns, og við grétum báðir yfir
kvæðinu. Maðurinn er í innsta eðli
sínu skáld í fremstu röð. Hann skildi
oiig (en þekkti mig ekki — skildi mig
það augnablik) og ég varð var við
hann vildi mér vel. Skólaumsjónar-
oaenn í Manitóbafylki eru allir ágæt-
ismenn; þó ber Alex Mclntyre af
þeim öllum ... hann var kennari
nainn 1900 ... ég mun aldrei gleyma
þeim manni.
Ég hef orðið var við að yngra fólk-
inu líkar vel annar þáttur Eiríks
Hanssonar, en hinu eldra líkar hann
ekki eins vel.
Hví er Undína (Helga Baldvins-
Hóttir) hætt að senda blöðunum
kvæði? Hún er þó fremst allra ís-
lenzkra kvenna, sem fengizt hafa
við ljóðagerð. Ég hef oft fellt tár
yfir „Kjallara-plöntunni hennar“....
6- des. 1902. — í kveld var sjón-
leikur eftir mig leikinn að Hnaus-
um í Breiðuvík.... Ég gekk heim frá
Hnausum í nótt. Sofnaði í morgun
kh 6 ... ég hef það sem menn kalla
»timburmenn“ alveg eins og ég
hefði drukkið mig fullan af whisky.
Ég má ekki nú orðið vaka fram yfir
^iðnætti.
Hristveig Metúsalemsdóttir las í
dag handritið af þriðja þætti Eiríks
sögu Hanssonar.... Hún og allir er
lesið hafa alla söguna segja að hann
sé beztur. Samt hef ég sterka löng-
un til að brenna hann og hætta öll-
um skáldskap.
Hjörtur Leó álítur að „Eiríkur
Hansson“ hafi eyðilagt heilsu mína.
... getur verið, því ég vann að hon-
um þegar ég átti að sofa. En —
„there is pleasure in poetic pains.“
Haustið 1900 voru mér sendar
tvær vísur frá íslandi... undir ritað
var G. E. Vísurnar eru þessar:
„Þín eru ljóðin ljúf og hrein
þau líða í hjarta mitt inn;
þau mýkja sár og sollin mein,
og svæfa’ oss með tárvota kinn.
Þau eru blíð — svo barnslegt mál,
þau beina’ oss á kærleikans braut,
þau eru fædd í sannri sál,
er sorgmæddra græða vill þraut.“
... Ég vildi gefa mikið til þess að
vita með vissu hver höfundurinn er.
Ég hef lesið ritdóm Einars Hjör-
leifssonar um I. og II. þátt E. H. Yfir
höfuð er ritdómurinn góður og gerir
bókinni mikið gagn.... Hann er
mjög á móti íslenzkunni í bókinni...
Samt segir hann: „Jafn illa og hann
kann íslenzku, er miklu meira fjör í
hans máli og tilþrif ólíku sterkari en
í íslenzku margra manna, sem rita
margtfalt hreinna mál...“
Jólatré reist í skólahúsinu . . .
börnin gefa mér ætíð einhverja góða
gjöf um jólin. En hvað gef ég þeim
í staðinn?
í tímaritinu „Freyju“ er mynd af
mér; og myndin má heita hræðileg.
... ég hef verið mjög þunglyndur