Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Side 82
64
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
ára afmælissamkomu deildarinnar „Esj-
an“ í Árborg. Þá flutti dr. Beck ræður
um fslandsferð þeirra hjóna á samkom-
um hjá deildinni „Báran“ að Mountain í
Norður Dakota og hjá deildinni „ísland“
í Morden í Manitoba. Á sumum þessara
funda sýndi frú Margrét Beck myndir frá
fslandi og Færeyjum. Auk ræðuhalda
meðal íslendinga hefir dr. Beck komið
fram á samkomum norskra félaga í
Norður Dakota, en á þeim samkomum
hefir hann flutt ræður um norræn efni
eða íslenzk. Þá hefir hann eins og jafnan
áður birt fjölda ritgerða og ritdóma um
íslenzk efni í blöðum, tímaritum og safn-
ritum beggja megin hafsins. Varaforseti
félagsins, próf. Haraldur Bessason, hefir
sótt fundi nærliggjandi deilda, og féhirð-
ir Þjóðræknisfélagsins, Grettir L. Jo-
hannson ræðismaður, fór til Morden og
kom fram á fundi deildarinnar „fsland".
Mörg önnur störf hefir gjaldkeri félags-
ins unnið, fleiri en jafnvel samnefndar-
menn hans gera sér grein fyrir. Það er
mikið verk að sjá um fjárfiag slíkrar
stofnunar sem Þjóðræknisfélagið er. —
Grettir tókst á hendur langferð, er hann
fór til Washington sem fulltrúi Þjóð-
ræknisfélagsins til þess að vera við jarð-
arför hins góða manns, Thor Thors sendi-
herra. Þá ber að geta þess, að Grettir
veitti mikla aðstoð við upptöku sjón-
varpsþáttar, þar sem sýndir voru meðal
annars íslenzkir þjóðbúningar.
Páll Hallson vararitari kom fram fyrir
hönd Þjóðræknisfélagsins á samkomu
þjóðræknisdeildarinnar að Lundar og af-
henti deildinni félagsfána þann, sem áður
getur.
Frú Hólmfríður Daníelson, ritari Þjóð-
ræknisfélagsins, hefir staðið í bréflegu
sambandi við allar deildir félagsins. Hún
hefir veitt fjölmörgum aðiljum ýmiss
konar fræðslu um ísland og fslendinga.
Hún hefir og átt hlut að kvikmyndasýn-
ingu og sjónvarpsupptöku, sem fjölluðu
um íslenzka þjóðhætti. Hún hefir og
veitt stuðning sumu því fólki, sem nú
vinnur að undirbúningi aldarafmælis
kanadíska fylkjasambandsins.
Fjármálaritari, Guðmann Levy, hefir
enn sem fyrr gegnt starfi sínu af árvekni
og séð um útbýtingu Tímaritsins og inn-
heimtu meðlimagjalda. Jóhann Beck hef-
ir á árinu veitt ýmiss konar aðstoð við
félagsstörfin. Á störf þeirra Jakobs F.
Kristjánssonar og Kristínar Johnson er
áður minnzt.
Nefndarmönnum þakka ég góða sam-
vinnu á árinu og fyrir allt það, sem þeir
hafa á sig lagt, til að greiða götu Þjóð-
ræknisfélagsins.
Sjálfur hefi ég sem forseti Þjóðræknis-
félagsins sótt fund þjóðræknisdeildarinn-
ar „Esjan“ í Árborg og flutt þar kveðjur.
Einnig veittist mér sú ánægja að eiga
fund með nokkrum meðlimum í stjóm
Icelandic Canadian Club í Toronto á
heimili bróður míns, Hannesar. Snemma
í þessum mánuði sat ég stjórnarnefndar-
fund deildarinnar „Norðurljós“ í Edmon-
ton. Þá flutti ég kveðjur frá Þjóðræknis-
félaginu á fslendingadeginum að Gimli.
Á fslandi rákum við Jakob F. Kristjáns-
son erindi Þjóðræknisfélagsins. Við heim-
sóttum Brynjólf Jóhannesson leikara og
ræddum við hann væntanlega ferð hans
hingað vestur. Einnig náðum við tali af
Gunnari Friðrikssyni og ræddum við
hann um væntanlega þátttöku fslands í
heimssýningunni í Montreal, sem haldin
verður 1967, en einn dagur þeirrar sýn-
ingar verður helgaður fslandi.
Eins og okkur er kunnugt, þá eru hér
á þingi virðulegir fulltrúar íslands, Pétur
Thorsteinsson sendiherra og frú Oddný
Björgólfsdóttir kona hans. Býð ég þau
hjartanlega velkomin hingað.
Næst er að víkja að útgáfumálum. —
47. árgangur Tímaritsins kemur út á
þessu þingi. Tímaritið hefir átt við fjár-
hagsörðugleika að etja á liðnum árum,
og hefir útgáfa þess verið rekin með
meiri halla en Þjóðræknisfélagið hefir
efni á. Til viðreisnar þessu máli gæti
komið til greina að hækka meðlimagjöld.
Fimmtíu centa hækkun á ári myndi
greiða verulegan hluta af greindum
tekjuhalla. Svo er auðvitað önnur leið
opin, en hún er sú, að leggja Tímaritið
niður.
Auk Tímaritsins er okkur einnig þörf
á að ræða útgáfu vikublaðsins Lögberg-
Heimskringla. Blaðið býr við kröpp kjör.
f strangasta skilningi er blaðið ekki á
ábyrgð Þjóðræknisfélagsins, en í réttum
skilningi er það þó okkar málgagn. Eitt
byggist á öðru, og án blaðsins væri Þjóð-
ræknisfélagið illa statt, og framtíð blaðs-
ins verðum við að ræða síðar á þessu
þingi.
Á liðnu ári studdi Þjóðræknisfélagið
útgáfu tveggja bóka. önnur bókin er
Veslur-íslenzkar æviskrár, sem er rituð
af séra Benjamín Kristjánssyni. Hin bók-
in er "The Icelandic People in Maniioba"
eftir Vilhelm Kristjánson.
Eins og flestum mun kunnugt, voru
þeir séra Benjamín Kristjánsson og
Bjarni Sigurðsson á ferð hér s. 1. haust,
og gafst okkur tími til að halda þeim
dálítið samsæti. Séra Benjamín hvetur
alla ^ Vestur-íslendinga til að láta skrá
sig í hið mikla safnrit, sem Vestur-ís-
lenzkar æviskrár eru.
Bók Vilhelms Kristjánsonar hefir hlot-
ið góða dóma, og verðskuldar hún því
útbreiðslu.